Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 36
Helgarblað 13.–16. janúar 201732 Lífsstíll
n Líkami okkar glímir stöðugt við sveppi n Til eru margar tegundir sem geta valdið óþægindum
M
ikil umræða hefur verið
um myglu upp á síðkastið
og iðulega er hún tengd
við rakaskemmdir í hús-
næði og vöxt sem getur
skapast í kjölfar þessa. Margir kvarta
um einkenni þessu tengd og er okk-
ur ákveðinn vandi á höndum því
það getur verið afar flókið að stað-
festa að um slíkt sé að ræða og eru
ekki til neinir fastmótaðir verkferlar
í raun og veru. Það er staðreynd að
líkami okkar er stöðugt að glíma við
sveppi, sem í flestum tilvikum eru
tækifærissinnaður sýkingarvaldur.
Þeir sem eru almennt hraustir eiga
yfirleitt ekki í miklum vandræðum,
ónæmiskerfið og hin eðlilega bakter-
íuflóra heldur sveppunum í skefjum,
en hjá þeim sem eru ónæmisbældir
vegna sjúkdóms, lyfja eða annarra
ástæðna geta sveppir hreinlega tek-
ið yfirhöndina og valdið alvarlegum
veikindum.
Margar tegundir sveppa
Það eru margar tegundir sveppa til
og þeir valda mismunandi vanda,
þeirra algengastur og sennilega
best þekktur er Candida sem veldur
þrusku í munni, sýkingum í og á kyn-
færum, í fellingum húðar, á bleyju-
svæði barna og í nöglum svo dæmi
séu tekin. Í alvarlegri tilvikum getur
þessi sveppategund sýkt innri líf-
færi og komist í blóðrásina með ófyr-
irséðum afleiðingum. Alvarlegar
sveppasýkingar sem við óttumst sér-
staklega, hjá þeim sem glíma við HIV
sjúkdóm, krabbamein, líffæraþegum
eða eru ónæmisbældir af einhverj-
um orsökum, eru einnig vel þekktar
og útheimta öfluga meðferð greinist
þær hjá slíkum einstaklingum.
Veruleg óþægindi
Þeir sveppir sem eru í umhverfi okk-
ar og í samhengi við raka geta valdið
verulegum óþægindum einnig
eins og við höfum fylgst með í um-
ræðunni undanfarin ár með sveppa-
sýkt húsnæði. Þar er um að ræða
samspil raka, óþols, ofnæmis og
svo eiturefna sem sveppurinn gefur
frá sér. Einkenni geta verið marg-
vísleg, en algengast er að þau komi
fram í loftvegum, slímhúð, húð og
svo eru mjög mörg einkenni sem
fólk tengir við þennan vanda sem
erfitt getur reynst að staðfesta en
geta tengst eituráhrifum. Enn aðrar
tegundir sveppa sem herja á okkur
mannfólkið eru dermatophytar sem
fyrst og fremst sýkja húðina og negl-
ur og valda klassískum breyting-
um á nöglinni með þykknun og lita-
breytingu hennar.
Margir glíma við sýkingu
Það er því ljóst að sveppir eru allt í
kringum okkur og við finnum mis-
mikið fyrir þeim. Þá getur verið
erfitt að eiga við vandann. Hér á
landi er mjög algengt vandamál hjá
einstaklingum að glíma við nagla-
sveppi. Tíðnin virðist meiri, eftir því
sem næst verður komist, en víðast
erlendis og helgast hugsanlega af
samsetningu vatnsins hér, mikilli
sundlaugarmenningu og mögulega
því að sjaldan gefast tækifæri til að
ganga í opnum skóm. Undirliggj-
andi sjúkdómar eins og sykursýki
og útæðasjúkdómar geta ýtt undir
slík vandamál. Af öllu þessu má
ráða að margir glíma við sveppa-
sýkingu, því er hægt að segja að nú
þegar glíman hefur færst í aukn-
um mæli að umhverfi okkar flækist
verkefnið að greina og meðhöndla
einstaklingana. Það er því ekkert
grín að vera myglaður ef svo mætti
að orði komast. n
Myglusveppur Þeir
sveppir sem eru í umhverfi
okkar og í samhengi við
raka geta valdið verulegum
óþægindum. Mynd Aðsend
Ertu
myglaður?
Teitur Guðmundsson
læknir
Gleraugnaverslunin Eyesland hefur opnað nýja og glæsilega verslun
á Grandagarði 13. Mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Ray-Ban 5228 umgjörð
kr. 25.970,-
Ný gleraugu?