Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 24
Helgarblað 13.–16. janúar 20172 Netverslanir - Kynningarblað
Flott merki á góðu verði
– spennandi nýjungar reglulega
Netverslunin Daria.is
V
ið leitumst við að vera með
flott merki á góðu verði og
reynum líka meðvitað að
halda verðinu niðri með
lítilli álagningu,“ segir Jó-
hanna Ósk Þorsteinsdóttir, eigandi
netverslunarinnar Daria.is, en þar
eru seldar mjög vinsælar snyrti- og
húðvörur auk snyrtispegla sem hafa
slegið í gegn.
„Stækkanlegir snyrtispeglar með
ljósi seldust mjög mikið hjá okkur
fyrir jólin og núna erum við að fá
fleiri tegundir af þeim,“ segir Jó-
hanna. Meðal vinsælla snyrtivöru-
merkja í versluninni eru „make-up“
vörur frá The Balm og LA Splash. „Við
erum líka með leirmaska
sem hafa slegið í gegn
og heita Muddy Body.“
Daria.is sendir
vörur hvert á land
sem er og líka til
útlanda. Enginn
sendingarkostn-
aður er fyrir pakka
sem komast inn
um bréfalúgur en
fyrir stærri pakka
þarf að greiða
sendingarkostnað,
en ábyrgðarpóstur
með rekjanlegu
númeri kostar 590
krónur. En sé keypt
fyrir 15.000 krónur
eða meira fellur
sendingar-
kostnaður
alltaf niður.
Daria.is
er til húsa
að Hafnar-
götu 26 í
Reykjanes-
bæ og þar er
rekin verslun
á staðnum auk
vefverslunarinnar.
Jóhanna og eiginmað-
ur hennar sjá um rekstur fyrirtæk-
isins en auk þeirra er ein starfskona.
Verslunin að Hafnargötu 26 er opin
virka daga frá 13 til 18 og 12 til 16
á laugardögum. Þar er
bæði hægt að skoða og
prófa vörurnar.
„Við erum einmitt
á leið til Los Angeles
núna til að taka þátt í
stærstu snyrtivörusýn-
ingu í heimi – Imats,“
segir Jóhanna sem alltaf
er opin fyrir því að bjóða
viðskiptavinum upp á
nýjar og áhugaverðar
vörur. Það er því um að
gera fyrir áhugasama að
fylgjast með á vefnum
daria.is eða kíkja í versl-
unina í Hafnargöt-
unni, því reglulega eru
spennandi nýjungar í
boði. n
Fyrsta flokks fæðubótarefni
og fjölbreyttar heilsuvörur
Bodybuilder.is
N
etverslunin Bodybuilder.is
býður upp á mikið úrval af
fæðubótarefnum og ýms-
um vinsælum vörum fyrir
þá sem stunda íþróttir eða
vilja komast í betra form. Eigandinn,
Arnlaugur Einarsson,
hefur rekið
verslunina í sjö ár með góðum ár-
angri og úrvalið er afskaplega mikið.
Flestar vörurnar koma frá Bretlandi
(Gonutrition) og Þýskalandi (Body
Attack) og eru því framleiddar í sam-
ræmi
við
stranga löggjöf ESB um innihalds-
efni. Þetta eru því bæði hollar og ör-
uggar vörur.
Hágæða próteinduft njóta
vinsælda meðal viðskiptavina
Bodybuilder.is en ýmsar aðrar vör-
ur eru ekki síður vinsælar og allrar
athygli verðar. Þar má nefna kol-
vetnasnauða steinefnadjúsa. Þessi
safaþykkni eru afskaplega góður
valkostur í staðinn fyrir gosdrykki
og sykraðar safategundir, til dæmis
handa börnum. Í boði eru 14 bragð-
tegundir. „Þessi djúsþykkni eru líka
mikið notuð af langhlaupurum
og öðrum sem stunda þrekíþrótt-
ir því steinefnin koma þarna
sterk inn,“ segir
Arnlaugur.
Þá má nefna
Leucine amínó-
sýru en það er stök
amínósýra sem
seld er bæði í
töflu- og duft-
formi. „Hún
er tekin inn
bæði fyrir og
eftir æfingar
og eykur fitu-
brennslu.
Ég kynntist
þessari vöru
fyrst vegna
þess að ég er í
svokölluðum „carb nite“-
hóp á Facebook. Þar er fylgt hug-
myndafræði þar sem lagt er upp úr
kolvetnasnauðu fæði en
Leucino amínósýran
ýtir síðan undir bæði
brennslu og vöðva-
uppbyggingu og
hjálpar þannig enn
frekar til við að ná
árangri,“ segir Arn-
laugur.
Önnur vara sem
hefur notið mikilla
vinsælda undan-
farið er hristibrús-
inn „fuelshaker“:
„Dufthólfið er inn-
byggt í brúsann og
hann virkar öðruvísi
að því leyti að þú los-
ar duftið beint í brús-
ann án þess að þurfa
að opna hann og hella
duftinu í,“ segir Arn-
laugur en þetta er
óneitanlega afar hand-
hægur brúsi fyrir þá
sem útbúa sér oft drykki
úr dufti.
Fyrirtæki Arnlaugs
starfar eingöngu á netinu
og vefsíðan bodybuild-
er.is er opin allan sól-
arhringinn. Vörur eru
sendar hvert á land sem
er. Enginn sendingar-
kostnaður er fyrir þá
sem kaupa fyrir 10.000
krónur eða meira en ef keypt er
fyrir lægri upphæðir bætist hóflegt
sendingargjald við.
Það er um að
gera að skoða úrval-
ið á bodybuilder.is og
kanna hvort þú finnur
ekki einmitt vörur sem
þér henta til að komast
í betra form. n