Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Side 16
Helgarblað 13.–16. janúar 201716 Fréttir Erlent
Edwin Debrow var dæmdur í 40 ára fangelsi fyrir morð sem hann framdi 12 ára gamall
Þ
ó að Edwin Debrow sé
aðeins 37 ára hefur hann
líklega verið lengur í fang-
elsi en allir jafnaldrar hans
í heiminum. Síðastliðin ár
hefur öryggisfangelsið í Beeville í
Texas verið heimili Edwins. Ástæð-
an er örlagarík ákvörðun sem hann
tók sem barn árið 1991, árið sem
hann varð tólf ára. Í september
það ár varð Edwin leigubílstjóra að
nafni Curtis Edwards að bana. Ed-
wards þessi var kennari í San Ant-
onio og starfaði sem leigubílstjóri í
aukavinnu.
Seldi krakk 10 ára
Edwin ólst upp í sárri fátækt í East
Side-hverfinu í San Antonio þar sem
fíkniefnaneysla og afbrot voru dag-
legt brauð hjá stórum hluta íbúa.
Fjölskylda Edwins fór ekki varhluta
af þessu en hann var alinn upp af
einstæðri móður og átti sex systkini.
Hann gekk til liðs við gengi í hverf-
inu, Altadena Blocc Crips, þegar
hann var tíu ára og um svipað leyti
var hann byrjaður að selja krakk á
götum hverfisins undir handleiðslu
eldri meðlima gengisins. Hann stal
bílum og þótt hann væri ekki einu
sinni kominn á kynþroskaskeiðið
gaf hann vændiskonum eiturlyf í
skiptum fyrir munnmök. Þá framdi
hann rán með eldri félögum sínum
og skaut á hús þar sem vitað var að
meðlimir annarra gengja bjuggu.
„Ég naut verndar og þegar maður er
barn í jafn hörðum heimi og þess-
um hefur vernd mikla þýðingu fyr-
ir mann,“ sagði Edwin í viðtali við
Texas Monthly fyrir skemmstu.
Kvöldið sem allt breyttist
Það var svo að kvöldi 21. september
árið 1991, þegar Edwin var tólf ára,
að líf hans breyttist til frambúðar.
Það kvöld fékk vinur móður hans,
maður að nafni Floyd Hardeman,
sem líkt og Edwin hafði villst af leið
í lífinu, Edwin til að koma með sér
í ránsleiðangur. Markmiðið var að
ræna leigubílstjóra og fór svo að
þeir veifuðu bíl sem fyrrnefndur Ed-
wards ók.
Hardeman settist í framsæti bif-
reiðarinnar á meðan Edwin settist
aftur í. Stuttu eftir að Edwards ók af
stað með farþegana krafðist Edwin
þess að hann afhenti það lausafé
sem var í bifreiðinni. Edwards, sem
var einstæður faðir sex ára drengs,
neitaði. Þegar ljóst var að ránið væri
að fara út um þúfur dró Edwin upp
byssu og skaut Edwards í hnakkann.
Edwards, sem talinn er hafa lát-
ist samstundis, missti vitanlega
stjórn á bifreiðinni og slasaðist Ed-
win töluvert á meðan Hardeman
flúði af vettvangi. Edwin tókst að
skakklappast út úr bifreiðinni áður
en hann missti meðvitund skammt
frá vettvangi. Þegar hann vaknaði
á sjúkrahúsi skömmu síðar sagði
hann læknum og heilbrigðisstarfs-
„Þessi börn
hafa alist
upp í litlum búrum
þar sem þau hafa
upplifað hluti sem
við getum ekki
ímyndað okkur.
Tólf ára fangi Þessi
mynd vakti mikla athygli á
sínum tíma. Á henni sjást
laganna verðir leiða Edwin
Debrow sem var tólf ára
þegar hann myrti mann.
Með móður sinni Edwin
sést hér á mynd með móður
sinni, Seletha. Myndin var
tekin á síðasta ári.
Tólf ár orðingi
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is