Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 38
Helgarblað 13.–16. janúar 201734 Menning Einkamálaauglýsingar frá fornöld Anna Júlía Friðbjörnsdóttir blandar saman portrettmyndum af rómverskum styttum og texta úr breskum einkamálaauglýsingum Þ egar blaðamann og ljós- myndara DV ber að garði í Gallerí Gróttu í Bókasafni Seltjarnarness snemma á fimmtudag er Anna Júlía Friðbjörnsdóttir myndlistarkona í óða önn að setja upp sýninguna Álengd. Henni til halds og trausts er önnur myndlistarkona, Elín Hans- dóttir. Í svörtum römmum á veggjun- um hanga tvískiptar myndir sem eru annars vegar unnar upp úr einka- málauglýsingum sem voru lengi vel fastur liður í breskum dagblöðum, og svo hins vegar portrettljósmyndum af andlitum rómverskra höggmynda. Á miðju gólfi standa svo opnar gamlar kennslu- og vísindabækur á svarthvítum myndum af tunglinu eins og það blasir við okkur frá jörðunni. Nafn sýningarinnar vísar einmitt í mælieiningar úr stjörnu- fræðinni – álengd er sú fjarlægð sem er frá reikistjörnu til tungls sem snýst í kringum hana. Þetta er önnur einkasýning Önnu Júlíu sem er menntuð frá Man- chester Metropolitan University og Guildhall University í London, en hún hefur þess utan stofnað og rit- stýrt myndlistartímaritinu Sjónauka og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um heim. Lítil portrett í textaformi „Ég hafði lengi verið að velta fyrir mér hvernig ég gæti notað þessa texta sem ég safnaði á árunum 1998 til 2002, úr breskum einkamáladálkum sem kallast Lonely Hearts. Það er svo áhugavert að fólk borgar fyrir hvert orð, þannig að þetta er mjög knappt form. Þarna er fólk er að lýsa sjálfu sér og væntingum sínum í örfáum orðum. Mér finnst þetta eigin lega vera lítil portrett af þessum einstak- lingum. Þessi menning er auðvitað algjörlega breytt í dag, þetta er líklega bara allt á internetinu,“ segir Anna Júlía og hugrenningatengslin við Tinder og önnur stefnumótafor- rit eru nánast óhjákvæmileg þegar maður skoðar verkin. „Svo fann ég þessa bók, Roman Portraits frá 1941, með mjög falleg- um ljósmyndum af rómverskum skúlptúrum – portrettmyndir af höfði þeirra. Tæknin sem ljósmyndarinn notar er í raun eins og hann væri að mynda fólk – sem er svolítið óvenju- leg nálgun þegar skúlptúrar eru skrá- settir. Þessi bók hreif mig. Gæðin í prentuninni eru líka svo mikil og fal- leg. Ljósmyndirnar sem ég valdi eru af óþekktu fólk en stytturnar voru engu að síður byggðar á raunveru- legu fólki. Það voru meira að segja oft notaðar grímur og vaxafsteyputækni. Það var hins vegar svolítið vandaverk að finna myndir og texta sem gætu passað saman, til dæmis hvað varðar aldur og karakter einkenni.“ Eftir að hafa klippt blaðsíður úr bókinni stillir hún þeim við hlið text- ans úr einkamáladálkunum, sem hún hefur handteiknað með blýanti á blaðsíður úr sömu bók. Áferð verkanna er hlýleg og mynstrið í textanum er búið til með speglun á ljósi og skuggum úr samsvarandi mynd. Seríuna nefnir Anna Corda Solitaria, en það þýðir einmana hjörtu á latínu. „Sumir hafa viljað grípa ástarvinkilinn á þessu, en þetta eru fyrst og fremst einmana sálir. Fólk er ekki bara að leita að maka heldur einnig félagsskap eða ein- hverju öðru sem það vantar í lífið,“ segir Anna Júlía. Tunglið sameinar okkur „Þegar maður skellir saman þessum texta, sem er eiginlega úr nútíman- um, og ljósmyndum af fornum stytt- um þá finnst manni að þetta fólk á höggmyndunum gæti alveg eins hafa hugsað þessa hluti. Eflaust er fólk bara alltaf eins á öllum tímum. Það er meðal annars þessi sammannlegi þáttur sem mér finnst áhugaverður.“ Anna Júlía bendir einnig á að tunglið sem birtist okkur í fjölbreytt- um myndum á miðju gólfinu og ein- um veggnum sameini alla þá raun- verulegu einstaklinga sem koma að og blandast saman í sýningunni – listamanninn, einmana Breta og forna Rómverja – ekki síður en hinn mannlegi einmanaleiki og ástarþrá. „Hér hef ég safnað fundnum bók- um frá ólíkum tímum sem sýna okk- ur ýmsar birtingarmyndir tunglsins, en allar sýna þær þó hvernig við sjá- um tunglið frá jörðinni. Í gegnum aldirnar og í öllum menningarheim- um hefur tunglið verið talið tengjast ýmsum hindurvitnum og sögum – og svo auðvitað rómantíkinni líka. En ekki síst er það talið hafa raunveru- leg áhrif á okkur, bæði jákvæð en kannski helst neikvæð. Ég hugsaði að tunglið er eitt dæmi um fyrirbæri sem tengir allt þetta raunverulega fólk saman og mig líka. Við höfum öll horft á þetta sama tungl, þessi hlutur hefur verið óbreyttur allan þennan tíma, við höfum öll horft á það og velt því fyrir okkur.“ Álengd var opnuð í gær, fimmtu- daginn 12. janúar, á fullu tungli og stendur til 4. febrúar. n Andlegur maður í leit að flókinni konu „Það var hins vegar svolítið vandaverk að finna myndir og texta sem gætu passað saman, til dæmis hvað varðar aldur og karakter- einkenni. Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann er mjög „andlegur“ og þá fann ég þessa styttu sem horfir upp í loftið.“ Mynd AnnA JúLíA FriðbJörnsdóTTir „Þarna er fólk er að lýsa sjálfu sér og væntingum sínum í ör- fáum orðum. Mér finnst þetta eiginlega vera lítil portrett af þessum einstaklingum. Metsölulisti Eymundsson 5.–11. janúar 2017 Íslenskar bækur 1 Átta vikna blóð-sykurkúrinn Michael Mosley 2 Stúlkan sem engin saknaði Jónína Leósdóttir 3 Synt með þeim sem drukkna Lars Mytting 4 Hrafnamyrkur Ann Cleeves 5 Almanak Háskóla Íslands 2017 Þorsteinn Sæmundsson/ Gunnlaugur Björnsson 6 This is IcelandÝmsir höfundar 7 Land föður mínsWibke Bruhns 8 AflausnYrsa Sigurðardóttir 9 Sölvasaga unglingsArnar Már Arngrímsson 10 Salka Valka kiljaHalldór Laxness Handbækur / Fræði- bækur / Ævisögur 1 Átta vikna blóð-sykurkúrinn Michael Mosley 2 Almanak Háskóla Íslands 2017 Þorsteinn Sæmundsson/ Gunnlaugur Björnsson 3 Land föður mínsWibke Bruhns 4 Almanak Þjóðvina-félagsins 2017 Þorsteinn Sæmundsson/ Gunnlaugur Björnsson 5 Ómótstæðileg EllaElla Mills Woodward 6 5:2 MataræðiðMichael Mosley 7 TvísagaÁsdís Halla Bragadóttir 8 Prjónafjör 2Anna Kristín Helgadóttir 9 Íslensk-dönsk/dönsk-íslensk orðabók Halldóra Jónsdóttir 10 Máttur matarinsUnnur Guðrún Pálsdóttir/ Þórunn Steinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.