Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 18
Helgarblað 13.–16. janúar 201718 Umræða Laurel og Hardy (alias Gög og Gokke, Steini og Óli) K vikmyndin „Helpmates“ er um tuttugu mínútna löng og hún hefst á því að Oliver Hardy vaknar timbraður og horfir yfir heimili sitt þar sem allt er á rúi og stúi eftir fyllirís- gleðskap heillar helgar. Þá hringir dyrabjallan og þar er kominn sendi- sveinn með símskeyti frá eiginkon- unni: þar segir að hún sé væntan- leg heim þennan sama dag, hafi flýtt för sinni. Það þýðir að nú þarf að koma húsinu í stand í einum græn- um. Hinn stóri og breiðvaxni Oliver hringir í sinn besta vin, Stan Laurel, og eftir kostulegt samtal fellst sá síð- arnefndi á að koma yfir og hjálpa vininum með tiltektina. Uppvask og hreingerningar eru auðvitað rak- ið efni í slapstikk-húmor, og auðvit- að gengur allt á afturfótunum með vatnsgusum, mölbrotnu leirtaui og þannig löguðu; meðal annars eyði- leggst fleira en eitt sett af alklæðn- aði húsbóndans í öllum atgangin- um. Loks á hann ekkert eftir fatakyns nema einhvers konar grímubúning, svona eins og gamaldags prúss- neskur stríðsmaður með korða og hjálm. Þannig heldur hann af stað á brautarstöðina þegar frúin hringir, hún er komin þangað; við höfðum áður séð af henni ljósmynd og þar sést kona sem ekki er hlátur í hug. Þótt margt hafi gengið brösótt í tiltektinni hefur hún samt merkilegt nokk lánast á endanum; allt er orðið hreint og huggulegt. Stan Laurel sem er að ljúka verkinu ákveður að lokum að kveikja upp í arninum svo að heimkoman af brautarstöð- inni verði næs og kósí fyrir hjón- in. Það fer auðvitað eins og við er að búast; kannan með uppkveiki- leginum fer um koll og húsið stend- ur í björtu báli. Þegar Oliver Hardy rennir í hlað er ekkert eftir af húsinu nema nokkrir burðarbitar, og inni í rústunum stendur Stan Laurel með garðslönguna og er að ljúka við að Laurel og Hardy Sannir snillingar í gamanleik. „Þeir voru um flest með hófstillta tjáningu; töluðu með sinni eigin rödd, stæla- laust, beittu augngotum og „eðlilegum svipbrigð- um“, sem tjáðu undrun, hreykslun, gleði, og þess- háttar. Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja Fyndnustu menn í heimi Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos Bragðgóð grísk jógúrt að vestan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.