Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Page 38
Helgarblað 13.–16. janúar 201734 Menning
Einkamálaauglýsingar
frá fornöld
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
blandar saman portrettmyndum
af rómverskum styttum og texta úr
breskum einkamálaauglýsingum
Þ
egar blaðamann og ljós-
myndara DV ber að garði í
Gallerí Gróttu í Bókasafni
Seltjarnarness snemma á
fimmtudag er Anna Júlía
Friðbjörnsdóttir myndlistarkona
í óða önn að setja upp sýninguna
Álengd. Henni til halds og trausts er
önnur myndlistarkona, Elín Hans-
dóttir.
Í svörtum römmum á veggjun-
um hanga tvískiptar myndir sem eru
annars vegar unnar upp úr einka-
málauglýsingum sem voru lengi vel
fastur liður í breskum dagblöðum, og
svo hins vegar portrettljósmyndum
af andlitum rómverskra höggmynda.
Á miðju gólfi standa svo opnar
gamlar kennslu- og vísindabækur
á svarthvítum myndum af tunglinu
eins og það blasir við okkur frá
jörðunni. Nafn sýningarinnar vísar
einmitt í mælieiningar úr stjörnu-
fræðinni – álengd er sú fjarlægð sem
er frá reikistjörnu til tungls sem snýst
í kringum hana.
Þetta er önnur einkasýning Önnu
Júlíu sem er menntuð frá Man-
chester Metropolitan University og
Guildhall University í London, en
hún hefur þess utan stofnað og rit-
stýrt myndlistartímaritinu Sjónauka
og tekið þátt í fjölda samsýninga víða
um heim.
Lítil portrett í textaformi
„Ég hafði lengi verið að velta fyrir mér
hvernig ég gæti notað þessa texta
sem ég safnaði á árunum 1998 til
2002, úr breskum einkamáladálkum
sem kallast Lonely Hearts. Það er svo
áhugavert að fólk borgar fyrir hvert
orð, þannig að þetta er mjög knappt
form. Þarna er fólk er að lýsa sjálfu
sér og væntingum sínum í örfáum
orðum. Mér finnst þetta eigin lega
vera lítil portrett af þessum einstak-
lingum. Þessi menning er auðvitað
algjörlega breytt í dag, þetta er
líklega bara allt á internetinu,“ segir
Anna Júlía og hugrenningatengslin
við Tinder og önnur stefnumótafor-
rit eru nánast óhjákvæmileg þegar
maður skoðar verkin.
„Svo fann ég þessa bók, Roman
Portraits frá 1941, með mjög falleg-
um ljósmyndum af rómverskum
skúlptúrum – portrettmyndir af höfði
þeirra. Tæknin sem ljósmyndarinn
notar er í raun eins og hann væri að
mynda fólk – sem er svolítið óvenju-
leg nálgun þegar skúlptúrar eru skrá-
settir. Þessi bók hreif mig. Gæðin í
prentuninni eru líka svo mikil og fal-
leg. Ljósmyndirnar sem ég valdi eru
af óþekktu fólk en stytturnar voru
engu að síður byggðar á raunveru-
legu fólki. Það voru meira að segja oft
notaðar grímur og vaxafsteyputækni.
Það var hins vegar svolítið vandaverk
að finna myndir og texta sem gætu
passað saman, til dæmis hvað varðar
aldur og karakter einkenni.“
Eftir að hafa klippt blaðsíður úr
bókinni stillir hún þeim við hlið text-
ans úr einkamáladálkunum, sem
hún hefur handteiknað með blýanti
á blaðsíður úr sömu bók. Áferð
verkanna er hlýleg og mynstrið í
textanum er búið til með speglun
á ljósi og skuggum úr samsvarandi
mynd. Seríuna nefnir Anna Corda
Solitaria, en það þýðir einmana
hjörtu á latínu. „Sumir hafa viljað
grípa ástarvinkilinn á þessu, en þetta
eru fyrst og fremst einmana sálir.
Fólk er ekki bara að leita að maka
heldur einnig félagsskap eða ein-
hverju öðru sem það vantar í lífið,“
segir Anna Júlía.
Tunglið sameinar okkur
„Þegar maður skellir saman þessum
texta, sem er eiginlega úr nútíman-
um, og ljósmyndum af fornum stytt-
um þá finnst manni að þetta fólk á
höggmyndunum gæti alveg eins hafa
hugsað þessa hluti. Eflaust er fólk
bara alltaf eins á öllum tímum. Það
er meðal annars þessi sammannlegi
þáttur sem mér finnst áhugaverður.“
Anna Júlía bendir einnig á að
tunglið sem birtist okkur í fjölbreytt-
um myndum á miðju gólfinu og ein-
um veggnum sameini alla þá raun-
verulegu einstaklinga sem koma
að og blandast saman í sýningunni
– listamanninn, einmana Breta og
forna Rómverja – ekki síður en hinn
mannlegi einmanaleiki og ástarþrá.
„Hér hef ég safnað fundnum bók-
um frá ólíkum tímum sem sýna okk-
ur ýmsar birtingarmyndir tunglsins,
en allar sýna þær þó hvernig við sjá-
um tunglið frá jörðinni. Í gegnum
aldirnar og í öllum menningarheim-
um hefur tunglið verið talið tengjast
ýmsum hindurvitnum og sögum – og
svo auðvitað rómantíkinni líka. En
ekki síst er það talið hafa raunveru-
leg áhrif á okkur, bæði jákvæð en
kannski helst neikvæð. Ég hugsaði
að tunglið er eitt dæmi um fyrirbæri
sem tengir allt þetta raunverulega
fólk saman og mig líka. Við höfum öll
horft á þetta sama tungl, þessi hlutur
hefur verið óbreyttur allan þennan
tíma, við höfum öll horft á það og
velt því fyrir okkur.“
Álengd var opnuð í gær, fimmtu-
daginn 12. janúar, á fullu tungli og
stendur til 4. febrúar. n
Andlegur maður í leit að flókinni konu „Það var hins vegar svolítið vandaverk að
finna myndir og texta sem gætu passað saman, til dæmis hvað varðar aldur og karakter-
einkenni. Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann er mjög „andlegur“ og þá fann ég þessa
styttu sem horfir upp í loftið.“ Mynd AnnA JúLíA FriðbJörnsdóTTir
„Þarna er fólk er að
lýsa sjálfu sér og
væntingum sínum í ör-
fáum orðum. Mér finnst
þetta eiginlega vera
lítil portrett af þessum
einstaklingum.
Metsölulisti
Eymundsson
5.–11. janúar 2017
Íslenskar bækur
1 Átta vikna blóð-sykurkúrinn
Michael Mosley
2 Stúlkan sem engin saknaði
Jónína Leósdóttir
3 Synt með þeim sem drukkna Lars Mytting
4 Hrafnamyrkur Ann Cleeves
5 Almanak Háskóla Íslands 2017
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
6 This is IcelandÝmsir höfundar
7 Land föður mínsWibke Bruhns
8 AflausnYrsa Sigurðardóttir
9 Sölvasaga unglingsArnar Már Arngrímsson
10 Salka Valka kiljaHalldór Laxness
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Átta vikna blóð-sykurkúrinn
Michael Mosley
2 Almanak Háskóla Íslands 2017
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
3 Land föður mínsWibke Bruhns
4 Almanak Þjóðvina-félagsins 2017
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
5 Ómótstæðileg EllaElla Mills Woodward
6 5:2 MataræðiðMichael Mosley
7 TvísagaÁsdís Halla Bragadóttir
8 Prjónafjör 2Anna Kristín Helgadóttir
9 Íslensk-dönsk/dönsk-íslensk orðabók
Halldóra Jónsdóttir
10 Máttur matarinsUnnur Guðrún Pálsdóttir/
Þórunn Steinsdóttir