Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Page 36
Helgarblað 13.–16. janúar 201732 Lífsstíll n Líkami okkar glímir stöðugt við sveppi n Til eru margar tegundir sem geta valdið óþægindum M ikil umræða hefur verið um myglu upp á síðkastið og iðulega er hún tengd við rakaskemmdir í hús- næði og vöxt sem getur skapast í kjölfar þessa. Margir kvarta um einkenni þessu tengd og er okk- ur ákveðinn vandi á höndum því það getur verið afar flókið að stað- festa að um slíkt sé að ræða og eru ekki til neinir fastmótaðir verkferlar í raun og veru. Það er staðreynd að líkami okkar er stöðugt að glíma við sveppi, sem í flestum tilvikum eru tækifærissinnaður sýkingarvaldur. Þeir sem eru almennt hraustir eiga yfirleitt ekki í miklum vandræðum, ónæmiskerfið og hin eðlilega bakter- íuflóra heldur sveppunum í skefjum, en hjá þeim sem eru ónæmisbældir vegna sjúkdóms, lyfja eða annarra ástæðna geta sveppir hreinlega tek- ið yfirhöndina og valdið alvarlegum veikindum. Margar tegundir sveppa Það eru margar tegundir sveppa til og þeir valda mismunandi vanda, þeirra algengastur og sennilega best þekktur er Candida sem veldur þrusku í munni, sýkingum í og á kyn- færum, í fellingum húðar, á bleyju- svæði barna og í nöglum svo dæmi séu tekin. Í alvarlegri tilvikum getur þessi sveppategund sýkt innri líf- færi og komist í blóðrásina með ófyr- irséðum afleiðingum. Alvarlegar sveppasýkingar sem við óttumst sér- staklega, hjá þeim sem glíma við HIV sjúkdóm, krabbamein, líffæraþegum eða eru ónæmisbældir af einhverj- um orsökum, eru einnig vel þekktar og útheimta öfluga meðferð greinist þær hjá slíkum einstaklingum. Veruleg óþægindi Þeir sveppir sem eru í umhverfi okk- ar og í samhengi við raka geta valdið verulegum óþægindum einnig eins og við höfum fylgst með í um- ræðunni undanfarin ár með sveppa- sýkt húsnæði. Þar er um að ræða samspil raka, óþols, ofnæmis og svo eiturefna sem sveppurinn gefur frá sér. Einkenni geta verið marg- vísleg, en algengast er að þau komi fram í loftvegum, slímhúð, húð og svo eru mjög mörg einkenni sem fólk tengir við þennan vanda sem erfitt getur reynst að staðfesta en geta tengst eituráhrifum. Enn aðrar tegundir sveppa sem herja á okkur mannfólkið eru dermatophytar sem fyrst og fremst sýkja húðina og negl- ur og valda klassískum breyting- um á nöglinni með þykknun og lita- breytingu hennar. Margir glíma við sýkingu Það er því ljóst að sveppir eru allt í kringum okkur og við finnum mis- mikið fyrir þeim. Þá getur verið erfitt að eiga við vandann. Hér á landi er mjög algengt vandamál hjá einstaklingum að glíma við nagla- sveppi. Tíðnin virðist meiri, eftir því sem næst verður komist, en víðast erlendis og helgast hugsanlega af samsetningu vatnsins hér, mikilli sundlaugarmenningu og mögulega því að sjaldan gefast tækifæri til að ganga í opnum skóm. Undirliggj- andi sjúkdómar eins og sykursýki og útæðasjúkdómar geta ýtt undir slík vandamál. Af öllu þessu má ráða að margir glíma við sveppa- sýkingu, því er hægt að segja að nú þegar glíman hefur færst í aukn- um mæli að umhverfi okkar flækist verkefnið að greina og meðhöndla einstaklingana. Það er því ekkert grín að vera myglaður ef svo mætti að orði komast. n Myglusveppur Þeir sveppir sem eru í umhverfi okkar og í samhengi við raka geta valdið verulegum óþægindum. Mynd Aðsend Ertu myglaður? Teitur Guðmundsson læknir Gleraugnaverslunin Eyesland hefur opnað nýja og glæsilega verslun á Grandagarði 13. Mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Ray-Ban 5228 umgjörð kr. 25.970,- Ný gleraugu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.