Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Page 20
Helgarblað 13.–16. janúar 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Krafturinn í þessu
var svakalegur
Kolbeinn var hætt kominn í Hafnarfirði ásamt hundinum Stíg. – DV
Ekki allt fengið með
aldrinum
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, nýr iðnaðar-, ferðamála-
og viðskiptaráðherra, er næst
yngst ráðherra Íslandssögunnar.
Þórdís, sem er
ríflega 29 ára, er
þannig rúmu ári
eldri en Eysteinn
Jónsson sem varð
fjármálaráðherra
í Stjórn hinna
vinnandi stétta
árið 1934 átti þá mánuð í 28 ára
afmælið. Á samfélagsmiðlum
hafa ýmsir farið mikinn undan-
farna daga um reynsluleysi Þór-
dísar Kolbrúnar og haft uppi
miklar efasemdir um að hún
valdi ráðherraembættinu. Þeim
hinum sömu er rétt að benda
á að Eysteinn, sem líkt og að
framan er rakið varð ráðherra
yngri en Þórdís Kolbrún, þótti
afskaplega farsæll stjórnmála-
maður. Eysteinn sat á þingi í 25
ár og þar af var hann ráðherra í
18 ár. Það er því ekki allt fengið
með aldrinum. Þ
að er ástæða til að óska nýrri
ríkisstjórn velfarnaðar og vart
veitir henni af góðum óskum
því margt bendir til að hún eigi
erfiða vegferð fyrir höndum. Nýr for-
sætisráðherra, Bjarni Benediktsson,
segist vonast til að málamiðlanir muni
nást við stjórnarandstöðuna í stór-
um málum og þar takist að fá alla um
borð. Það er alltaf gott að hafa bjart-
sýni með í farteskinu en engin sérstök
ástæða er til að ætla að Bjarna verði að
þessari ósk sinni. Stjórnarandstaðan
hefur þegar sett sig
í stellingar og ekki
líkleg til að veita
stjórninni nokkur
grið.
Úrslit kosninga
voru sigur fyrir
hægri- og miðju-
öfl í stjórnmálum.
Ljóst var að þjóð-
in var ekki að biðja
um vinstri stjórn,
en þeir sem vilja
slíka stjórn hljóta
að klóra sér í koll-
inum yfir dugleysi
Vinstri grænna eftir
kosningar en flokk-
urinn sýndist vera fullkomlega áhuga-
laus um að komast til áhrifa. Stjórn-
málaflokkar vilja komast til valda og
hafa áhrif, en Vinstri græn virtust
sérkennileg undantekning frá þeirri
reglu. Þar á bæ er eins og litið sé á
málamiðlanir í ríkisstjórnarviðræðum
sem svik við heilagar hugsjónir.
Það var ekki fyrr en viðræður Sjálf-
stæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar voru á lokametrunum
sem einhverjir flokksmenn Vinstri
grænna rönkuðu við sér og tóku af
nokkurri ákefð, ásamt Framsóknar-
flokki, að stíga í vænginn við Sjálf-
stæðisflokkinn. Þá var það orðið of
seint. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,
Vinstri grænna og Framsóknarflokks
var kostur í stöðunni, en hik Vinstri
grænna gerði út um þær hugmyndir.
Það er gremjulegt fyrir Vinstri græn
og ekki síður fyrir Framsóknarflokk-
inn. Þessir flokkar munu hafa hátt í
stjórnarandstöðu, en um leið er vitað
að þeir vildu gjarnan vera á sama stað
og Viðreisn og Björt framtíð.
Myndun ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokks, Viðreisnar og Bjartrar fram-
tíðar er í takt við vilja stórs hóps kjós-
enda en um leið er ríkisstjórnin með
minnsta mögulega meirihluta. Sú
staðreynd mun vera vatn á myllu
stjórnarandstöðunnar sem mun leita
markvisst að tækifærum til að veikja
stjórnina. Um leið er mikilvægt að
stjórnarliðar standi þétt saman og
láti gagnrýni ekki slá sig út af laginu.
Þegar eru vangaveltur manna á mill-
um um það hvaða stjórnarþingmaður
sé líklegur til að hlaupast undan
merkjum og fella eigin ríkisstjórn.
Þeim spekúlasjónum mun ekki linna
í bráð enda hafa einstaka stjórnarliðar
gefið þeim byr undir báða vængi með
óvarlegum yfirlýsingum. Það hefði
verið heppilegra fyrir ríkisstjórnina
að svekktir þingmenn sem ekki fengu
ráðherrasæti hefðu ekki hlaupið í fjöl-
miðla og básúnað óánægju sína held-
ur átt kurteislegt tal við formann sinn
og kvartað við hann á einkafundum.
Ríkisstjórnin verður undir smá-
sjá stjórnarandstöðu, fjölmiðla og al-
mennings. Hún mun örugglega ekki
fara í umfangsmiklar kerfisbreytingar
en takist henni að varðveita efnahags-
legan stöðugleika, sýna í verki að hún
vilji efla heilbrigðiskerfið og hugi að
hag neytenda, þá er hún allavega ekki
á rangri leið. n
Erfið vegferð
Hrafninn og rjúpan
- þjóðleg og falleg gjöf
Graf.is - sími: 571 7808 / Lilja Boutique hf. - 18 rauðar rósir, Kópavogi
graf.is/design
„Þessir flokkar munu
hafa hátt í stjórnar
andstöðu, en um leið er
vitað að þeir vildu gjarnan
vera á sama stað og Við
reisn og Björt framtíð.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Bjart og kalt Það hefur verið hrollkalt á landinu undanfarna daga og víða hefur verið bjart. Líkur eru á suðaustan rigningarveðri á sunnudag og svo gæti kólnað á
nýjan leik. mynd SiGtRyGGuR ARi
Þetta er ofbeldi
Þórbergur var sektaður fyrir krækiberjabrugg. – DV
Nauðsynlegt að hafa raunhæfar
væntingar
Arnar Pétursson um möguleika Íslands á HM í handbolta. – DV