Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 25
Helgarblað 13.–16. janúar 2017 Kynningarblað - Netverslanir 3 Myndlist snillingsins Jóns Engilberts lifir áfram í fallegum hönnunarvörum Engilberts hönnun E ngilberts hönnun er hönnunarfyrirtæki í eigu Grétu Engilberts og Hjartar Sólrúnarsonar. Bæði eru þau hugmyndaríkir listamenn en í vörum fyrirtækisins öðlast mynd­ list Jóns Engilberts nýtt líf. Hann var einn fremsti myndlistarmaður Ís­ lendinga á 20. öld en Gréta Engil­ berts er dótturdóttir Jóns og kynnt­ ist bæði manninum og list hans náið á unga aldri. „Jón skar sig úr og var stórmerki­ legur maður. Ég ólst upp hjá honum og bjó hjá honum alla tíð. Í mínum augum var hann ástarmálari þjóðar­ innar á síðustu öld. Þetta voru afar rómantískar myndir. Hann var af­ skaplega hrifinn af konum og þá meina ég ekki á óviðeigandi hátt, hann var afar góður við sína eigin­ konu en var hugfanginn af kven­ legri fegurð og ástinni. Hann bar líka mikla virðingu fyrir konum og kom þannig fram við þær. Hann var mjög ljúfur og góður maður en þurfti að berjast hart fyrir sínu á tímum þegar ekki ríkti kannski mikill skilning­ ur á myndlist hér á landi. Þetta voru erfiðir tímar. Hann lærði í Danmörku og var þá hluti af frægum hópi mynd­ listarmanna sem kölluðu sig Kamm­ eraderne. Hann var búinn að öðlast ákveðinn sess í Danmörku og hefði getað náð enn lengra en flúði heims­ styrjöldina síðari til Íslands.“ Umræddur hópur var mikið í grafík og segir Gréta að Jón hafi verið í hópi fárra listamanna sem voru brautryðjendur í grafíklist hér á landi. Hann málaði jafnframt fígúratívar myndir af fólki sem og abstraktmyndir og myndir sem voru mitt á milli þess að vera fígúratívar og abstrakt. Í ýmsum hönnunargripum Grétu lifir myndlist Jóns Engilberts áfram og skilar sér til almennings. Þar má nefna boli, slæður, klúta og skjólur (buff). Þetta eru ákaflega fal­ leg klæði og fegurð myndlistar Jóns rennur þar saman við smekklega og listræna hönnun Grétu. Ónefnd­ ir eru fiber­klútar til afþurrkunar á gleraugum, og púðar sem eru mikil heimilisprýði. Til hliðar við þetta hannar Gréta líka fallega skartgripi, meðal annars úr leðri og nikkelfríum efnum sem eru ekki ofnæmisvaldandi. Athygli vekur hvað verðlagt er lágt hjá Engilberts hönnun þegar haft er í huga að hér er um að ræða vandaða íslenska hönnun. Sem dæmi má nefna að bolir – en þeir eru fyrir bæði kynin – eru á aðeins 6.900 krónur, slæður eru á 12.900 krónur og skjólurnar (buffin) á 4.500 krónur. „Það er einfaldlega stefna hjá mér að bjóða íslenska hönnun á þannig verði að allir geti haft efni á henni,“ segir Gréta. Vefverslunin er á vefslóðinni engilberts­honnun.is en margir hafa gaman af að koma í verslun Grétu, skoða úrvalið og gera góð kaup. Verslunin er til húsa að Rofabæ 9, opið er virka daga frá kl. 14 til 18 og laugardaga frá 11 til 16. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.