Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 30
Helgarblað 13.–16. janúar 201726 Sport „Æskan gerði hann að þeim leikmanni sem hann er“ n Dele Alli Slær í gegn n Faðir hans yfirgaf hann þegar hann var vikugamall n Móðir hans var alkóhólisti Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is T eddy Sheringham var að­ almaðurinn í framlínu Tottenham, Sol Campbell var ungstirnið í vörninni á meðan Darren Anderton sá um að byggja upp sóknir liðsins. Þetta var árið 1996, um það leyti sem Bamidele Jermaine Alli, betur þekktur sem Dele Alli, kom í heim­ inn. Tuttugu árum eftir að þremenn­ ingarnir sem taldir eru upp hér að framan voru aðalmennirnir í Totten­ ham er Dele Alli potturinn og pann­ an í sóknarleik liðsins. Sýndi fljótt hæfileika sína Þessi tvítugi leikmaður hefur vakið athygli fyrir góðan leik á tímabilinu og er að margra mati einn allra efni­ legasti knattspyrnumaður Englands um þessar mundir. Alli er fæddur og uppalinn í bænum Milton Keynes í Buckinghamskíri á Englandi. Alli var ellefu ára þegar hann gekk í raðir bæjarliðsins, MK Dons, og vakti hann snemma athygli fyrir knattspyrnuhæfileika sína. Fimm árum síðar, þegar hann var sextán ára, var Alli farinn að æfa með aðal­ liðinu og um það leyti spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir félagið. Karl Robinson var knattspyrn­ ustjóri MK Dons á þessum tíma og í viðtali við Telegraph ekki alls fyrir löngu rifjaði hann upp sín fyrstu kynni af leikmanninum. Karl segir að hann hafi látið leikmenn sína æfa hornspyrnur og Alli átti að hlaupa að nærstönginni til að skalla boltann aftur fyrir sig á fjærstöngina. Horn­ spyrnan var of lág og greip Alli til þess ráðs að setja hælinn í boltann og söng boltinn í markvinklinum. Karl rifjar upp að Alli hafi fagnað markinu með því að spýta út úr sér tyggjói sem hann var með upp í sér, hélt því á lofti með lærunum áður en hann sparkaði því upp í loftið og aft­ ur upp í sig. Þarna var Alli aðeins 16 ára. Slær stjörnum ref fyrir rass Það sem af er þessu tímabili hefur miðjumaðurinn öflugi skorað 10 mörk í deildinni og 20 í það heila fyrir Tottenham í aðeins 52 deildar­ leikjum. Alli hefur slegið goðsagna­ kenndum leikmönnum eins og Paul Scholes, Dav­ id Beckham, Frank Lampard og Steven Gerrard ref fyrir rass. Paul Scholes skor­ aði 17 mörk í fyrstu 52 deildarleikjum sínum, David Beck­ ham ellefu, Frank Lampard fimm og Steven Gerrard þrjú. Það sem meira er þá hefur Dele Alli líka gefið fleiri stoðsendingar en þessir leikmenn, eða 10 talsins. Scholes gaf þrjár, Beckham níu, Lampard þrjár og Gerrard þrjár í fyrstu 52 leikjum sínum. Þegar þetta er skrifað hefur Alli skorað tvö mörk í þremur úrvalsdeildarleikjum í röð sem er fáheyrt fyrir svo ungan leik­ mann sem að auki er sóknarsinnað­ ur miðjumaður. Og Alli virðist vera lukkudýr Tottenham­liðsins. Þegar hann hefur skorað hefur Tottenham aldrei tapað í deildinni, en alls er um að ræða sextán leiki; 12 hafa unnist og fjórir hafa endað með jafntefli. Stórlið fylgdust með Útsendarar stóru liðanna á Englandi voru ekki lengi að fá veður af hæfileikum Alli þegar hann braust fyrst fram á sjónarsviðið hjá MK Dons. Man chester United, Totten­ ham, Arsenal og meira að segja Ba­ yern München voru sögð fylgjast grannt með gangi mála hjá Alli en að lokum fór svo að Tottenham klófesti kappann rétt fyrir lok janúarglugg­ ans árið 2015 og greiddi fimm millj­ ónir punda fyrir. Alli var lánaður strax aftur til MK Dons og því er hann í raun að­ eins á sínu öðru tímabili hjá Totten­ ham. Strax á undirbúningstímabil­ inu sumarið 2015 vakti Alli hrifningu stuðningsmanna Tottenham þegar hann klobbaði Luka Modric, einn dáðasta son Tottenham undanfar­ inn áratug eða svo, í vináttuleik. Alli var ekki búinn að leika marga leiki fyrir Tottenham haustið 2015 þegar „Það sem verður að hafa í huga varð- andi Dele Alli er að hann átti ekki auðvelda æsku. Vonbrigði Dele Alli var í enska landsliðinu sem tapaði fyrir Íslandi í 16-liða úrslitum EM í fyrrasumar. Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í sínum fyrsta landsleik í nóvember 2015. Efnilegur polli Dele Alli varði öllum sínum frís tundum í æfingar. Hann var ellefu ára þegar hann g ekk í unglinga- akademíu MK Dons.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.