Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 37
Helgarblað 13.–16. janúar 2017
V e g a m ó t a s t í g u r 4 | 1 0 1 R e y k j a v í k | s í m i 5 1 1 3 0 4 0 | v e g a m o t @ v e g a m o t . i s
FRÁ 11–16
Lífsstíll 33
Hvað virkar gegn kvefi?
Engin áhrifarík lækning er til en hægt er að gera ýmislegt til að gera líkamann betur undirbúinn
K
vef er þrálátur gestur sem
enginn kemst hjá að glíma
við. Stundum er sagt að ýmis
vítamín, steinefni eða önnur
efni geti gagnast í baráttunni
gegn kvefi en besta forvörnin er eins
og ávallt heilbrigður lífsstíll og bólu-
setning gegn inflúensusmiti. Doktor.
is tók saman ýmsar gagnlegar upp-
lýsingar um kvef, hvað gagnast gegn
kvefi og hvað gagnast ekki.
C-vítamín
Margir trúa því að með því að taka
inn háskammta af C-vítamíni geti
þeir komið í veg fyrir kvef en sú virð-
ist þó ekki vera raunin. Í samantekt
sem gerð var árið 2007 á 30 rannsókn-
um með um 11.000 þátttakendum var
niðurstaðan sú að regluleg neysla á C-
vítamíni hafði engin áhrif á tíðni kvefs
en daglegur skammtur af C-vítamíni
virðist hafa einhver áhrif á það hve
lengi viðkomandi var með kvef og hve
mikil einkennin voru ( þ.e. neysla á C-
vítamíni virðist stytta tímann og draga
úr einkennum í einhverjum mæli) en
áhrifin reyndust afar lítil.
Sólhattur
Það er trú margra að sólhattur hafi
áhrif á ónæmiskerfið en rannsókn-
ir hafa ekki getað sýnt fram á það.
Rót, fræ og aðrir hlutar plöntunnar
eru notaðir til að búa til jurtalyf sem
margir trúa að verji þá gegn kvefsmiti.
Rannsóknir hafa verið gerðar til að
reyna að sýna fram á virkni sólhatts
en niðurstöðurnar hafa ekki reynst
afgerandi. Samantekt á rannsóknum
varðandi sólhatt sýndi til dæmis að
ef bornir voru saman hópar fólks sem
tók sólhatt og fólks sem ekki gerði það
þá kom í ljós að þeir sem tóku sólhatt
inn voru um 30 prósent ólíklegri til að
fá kvef. Hins vegar voru niðurstöður
þessara rannsókna mjög misvísandi
og mismunandi útgáfur af sólhatti
voru notaðar og ekki vitað hvernig
þær virka í samanburði við það sem
fæst úti í búð. Þessi samantekt sýndi
einnig fram á að inntaka á sólhatti
hafði engin áhrif á tímalengd kvefsins.
Þannig virðist sólhattur koma að tak-
mörkuðu gagni en ef fólk hefur trú á
því þá skaðar ekki að taka hann inn.
Sink
Vísbendingar hafa komið fram um að
með því að taka inn sink um leið og
kvefeinkenni gera vart við sig sé hægt
að draga úr tímalengd kvefsins. Hins
vegar eru einnig til rannsóknir sem
sýna fram á að svo sé ekki og enginn
munur var á tímalengd kvefs þegar
bornir voru saman hópar fólks sem
tóku eða tóku ekki inn sink.
Því hefur einnig verið haldið fram
að sink myndi vörn á slímhúð í nefi og
því geti nefúði með sinki komið í veg
fyrir að kvefvírusinn nái fótfestu en
rannsóknir hafa ekki getað sýnt fram
á þetta.
Að verða kalt eða blotna
Það eina sem getur valdið kvefi eða
flensu er kvef eða flensuveira. Það
að verða kalt og /eða blautur orsak-
ar ekki veikindi. Hins vegar ef við-
komandi er með vírusinn í nefslím-
húðinni getur það að verða kalt aukið
líkurnar á að ónæmiskerfið ráði ekki
niðurlögum vírussins og viðkom-
andi fær kvef. Rannsókn var gerð þar
sem hópur fólks var látinn vera með
bera fætur í köldu vatni í 20 mínútur
og var það tvisvar sinnum líklegra til
að fá kvef en samanburðarhópur sem
kældi ekki fæturna. Líklegasta orsök-
in var talin sú að fólk getur borið með
sér kvefvírus í nefslímhúð án þess að
veikjast eða fá kvefeinkenni. Þegar
okkur verður kalt dragast æðarn-
ar í okkur saman og það hefur áhrif
á varnir líkamans og vírusinn á auð-
veldara með að fjölga sér og valda
þannig einkennum.
Hvað virkar þá?
Bólusetning gegn inflúensu gefur
vörn fyrir inflúensusmiti. Að öðru
leyti er besta vörnin fólgin í heilbrigð-
um lífsstíl. Með því að borða hollan
mat, hreyfa sig reglulega og halda sér
heitum yfir köldustu vetrar mánuðina
eflum við ónæmis kerfið og það verð-
ur betur í stakk búið til að berjast gegn
smiti. Kvefveirur eru fjölmargar, finn-
ast víða og smitast auðveldlega svo
við munum fá kvef af og til og engin
áhrifarík lækning er til. n
Kvef Enginn er óhultur þegar kvef
er annars vegar, ekki einu sinni
fráfarandi forseti Bandaríkjanna.