Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 39
Helgarblað 13.–16. janúar 2017 Menning 35
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun
Úr ostagerð
í Metropolitan-óperuna
Guðmundur Eiríksson, tekur þátt í söngkeppni á vegum Metropolitan-óperunnar
M
aður skráir sig nú sjaldan
í keppni til að tapa,“ seg-
ir Guðmundur Eiríksson,
25 ára barítónsöngvari
og ostagerðarmaður frá Flúðum,
kersknislega. Hann er kominn áfram
í Metropolitan International Vocal
Competition, alþjóðlegri söng-
keppni á vegum Metropolitan-
óperunnar, einnar allra virtustu
óperu heims. Sigurvegarinn fær að
syngja á gala-kvöldverði á alþjóð-
legri tónlistarhátíð óperuhússins.
Syngur aríur í New York
„Ég lagði inn umsókn um að fá að
taka þátt, sýndi hvað ég hafði verið að
gera og hjá hverjum ég væri að læra.
Í kjölfarið var ég beðinn um að koma
út til New York og taka þátt í keppn-
inni. Keppnin fer fram á einum degi,
29. janúar, og fer fram í æfingasal
í Metropolitan-óperuhúsinu. Ég
fer með fimm aríur með mér út, ég
má velja eina sjálfur til að syngja og
dómnefnd velur svo tvær aðrar sem
ég á að syngja,“ segir Guðmundur
sem er 25 ára og starfar við ostagerð
í Ostahúsinu samhliða söngnámi í
söngskóla Sigurðar Demetz.
„Ég var í kór þegar ég var í barna-
skóla og hafði mjög gaman af því að
hlusta á svona tónlist En svo var það
mamma sem skráði mig í söngnám
fyrir rúmum fimm árum – án þess að
ég vissi af því. Hún hringdi bara í mig
einn daginn og sagði mér að ég ætti
að mæta í inntökupróf,“ segir Guð-
mundur.
Kristján er ekkert að
skafa utan af því
„Ég hef því verið að syngja í fimm
ár, byrjaði í Söngskólanum í Reykja-
vík og færði mig yfir í Söngskóla
Sigurðar Demetz í fyrir einu og hálfu
ári. Þar hef ég verið að læra hjá Krist-
jáni Jóhannssyni, og það er eiginlega
ótrúlegt hvað hann hefur gert mikið
fyrir mig,“ segir Guðmundur.
„Kristján er frábær kennari.
Hann er ekkert að skafa utan af því
við nemendur, sem er náttúrlega frá-
bært fyrir mig. Þá lærir maður miklu
meira. Það er líka ótrúlegt hvað þetta
er góður skóli, fyrir allan aldur.“
Stefnir þú á frekara nám á
söngsviðinu?
„Ég ætla að sjá til hvernig þetta
fer allt saman. En jú, ég held að ég
stefni eitthvert í meira nám eftir
þetta ár.“ n
Met Metropolitan-óperan er
eitt virtasta óperuhús heims.
MYNd EPA
„Það var mamma
sem skráði mig
í söngnám fyrir rúmum
fimm árum – án þess að
ég vissi af því.
Lærlingur og kennari
Guðmundur Eiríksson hefur stundað
söngnám hjá Kristjáni Jóhannssyni í
eitt og hálft ár. MYNd SiGtrYGGur Ari
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
T
vær leiknar íslenskar kvik-
myndir verða frumsýndar á
Íslandi í kvöld, föstudaginn
13. janúar. Þetta eru Hjarta-
steinn og A Reykjavík Porno.
Hjartasteinn, sem er eftir Guð-
mund Arnar Guðmundsson, er
ljúfsár þroskasaga sem gerist á einu
örlagaríku sumri í íslensku smá-
þorpi. Myndin fjallar um sterka vin-
áttu tveggja drengja sem eru að
taka sín fyrstu skref inn í unglings-
árin, uppgötva nýjar tilfinningar og
hneigðir. Myndin hefur hlotið fjölda
verðlauna á kvikmyndahátíðum
víða um heim að undanförnu, með-
al annars aðalverðlaun Norrænna
kvikmyndadaga á kvikmyndahátíð-
inni í Lübeck.
A Reykjavík Porno er skosk-ís-
lensk framleiðsla. Það er Skotinn
Graeme Maley sem skrifar og leik-
stýrir, en aðalleikararnir og mikill
fjöldi þeirra sem koma að myndinni
eru Íslendingar. Myndin, sem ger-
ist á myrkasta tíma ársins í Reykja-
vík, fjallar um ungan mann sem er
kynntur fyrir vafasamri klámsíðu.
Forvitnin hleypur bráðlega með
hann í gönur og í kjölfarið hefst
örlagarík atburðarás sem hann hefði
ómögulega getað séð fyrir. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Tvær nýjar ís-
lenskar myndir
frumsýndar
n Hjartasteinn og A Reykjavík
Porno komnar í almenna sýningu
A reykjavík Porno
Hjartasteinn