Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Page 8
Vikublað 17.–19. janúar 20178 Fréttir HVAR ER SÓSAN? Það er aðeins eitt sem er ómissandi í pítu og það er pítusósan. Kannski pítubrauðið líka. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. Hafna hækkunum Líf segir samstöðu í meirihluta borgarstjórnar um að hafna launahækkunum vegna úrskurðar kjararáðs E kki er búið að taka ákvörðun um með hvaða hætti Reykja- víkurborg mun bregðast við ákvörðun kjararáðs um hækkun þingfararkaups en ákvörðunin hefði að öllu jöfnu einnig átt að hafa áhrif á laun borgarfull- trúa. Líf Magneudóttir, forseti borgar- stjórnar, segir að samstaða sé um það hjá meirihluta borgarstjórnar að laun borgarfulltrúa verði ekki hækkuð í samræmi við hækkun kjararáðs. Sem kunnugt er ákvað kjararáð 29. október síðastliðinn að hækka þingfararkaup úr 762.940 krónum á mánuði í 1.101.194 krónur á mánuði. Ákvörðun kjararáðs olli miklum úlfa- þyt og var kallað eftir því víða að Al- þingi beitti sér og afturkallaði launa- hækkunina. Þannig sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á Facebook- síðu sinni að hækkunin væri fráleit og boðaði að hann myndi bregðast við með því að lækka sín laun og borgar- fulltrúa einhliða, brygðist Alþingi ekki við. Hafa ýtt ákvörðuninni á undan sér Borgarfulltrúar eru á föstum launum sem nema 77,82 prósentum af þing- fararkaupi. Fyrir hækkun kjararáðs nam sú upphæð 593.720 krónum. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti 15. nóvember síðastliðinn tillögu um að laun kjörinna fulltrúa borgarinnar myndu haldast óbreytt líkt og þau voru fyrir ákvörðun kjararáðs og skal sú ráð- stöfun standa yfir „þar til Alþingi hef- ur haft tækifæri til að bregðast við úr- skurði kjararáðs, eða eigi síðar en til 31. desember nk. Bregðist Alþingi ekki við úrskurðinum er því beint til forsætis- nefndar að gera breytingu á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna full- trúa hjá Reykjavíkurborg.“ Á fundi for- sætisnefndar borgarinnar 16. desem- ber síðastliðinn var síðan samþykkt að framlengja þessa ákvörðun til 31. jan- úar 2017. LÍf Magneudóttir, forseti borg- arstjórnar, segir að enn sé ekki búið að taka ákvörðun um hvernig kjara- málum borgarfulltrúa verði háttað. „Við erum búin að ýta þessu svolítið á undan okkur. Við frestuðum því að taka ákvörðun til 31. desember síðast- liðins og síðan aftur til 31. janúar næst- komandi. Ástæðan er sú að við vild- um gefa Alþingi tíma og tækifæri til að taka ákvörðun um að snúa við úr- skurði kjararáðs. Nú virðist sem sagt að þingið hyggist ekki breyta neinu í þess- um efnum. Við höfum því látið teikna upp fyrir okkur ýmsar sviðsmyndir og reikna út í samræmi við þær. Við höf- um meðal annars rætt í forsætisnefnd hvort við ættum að binda laun borgar- fulltrúa við almenna launavísitölu, við þingfararkaup eða mögulega við sam- bærileg störf stétta innan Bandalags háskólamanna, svo dæmi séu nefnd. Verði niðurstaðan sú að laun borgar- fulltrúa verði áfram hlutfall af þing- fararkaupi mun það hlutfall lækka frá því sem nú er,“ segir Líf. En er ekki hætt við að sömu að- stæður komi upp aftur verði laun áfram prósentutala af þingfararkaupi? „Hingað til hefur þetta fyrirkomulag verið heppilegt, allt þar til í hruninu. Eftir það sátu þingmenn eftir í laun- um þar til nú að þessi gríðarlega mikla hækkun varð. Við erum hins vegar á leið með að endurskoða allt starfs- og launakerfi borgarfulltrúa í samhengi við fjölgun þeirra sem kemur til fram- kvæmda við næstu borgarstjórnar- kosningar, árið 2018. Ég á ekki von á að þessi staða komi upp aftur innan þess tíma.“ Mismikil ánægja Forsætisnefnd mun koma með tillögu að samþykkt um launakjör borgarfull- trúa. Líf segir ólíklegt að takast megi að ákvarða um launakjörin fyrir 31. jan- úar næstkomandi. Ástæðan er sú að vart muni vinnast tími til þess þar eð næsti reglulegi fundur forsætisnefnd- ar borgarstjórnar sé föstudaginn 27. janúar næstkomandi og borgarstjórn- arfundur sé boðaður 31. janúar. Það komi þó ekki að sök þar eð samþykkt borgarstjórnar hafi verið með þeim hætti að hækkun tæki ekki gildi í borg- arkerfinu þar til forsætisnefnd hefði tekið ákvörðun um hvernig haga skuli launakjörum. Líf ítrekar að ekki sé enn búið að taka ákvörðun um málið en hækkun kjararáðs muni ekki standa. „Við munum ekki þiggja sömu hækk- anir og alþingismenn fengu.“ Er samstaða um það hjá borgarfull- trúum? „Hjá meirihlutanum er það, já, en fólk er misánægt í borgarstjórn.“ n Samstaða hjá meirihlutanum Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar, segir að samstaða sé hjá meirihlutanum um að hafna hækkunum en fólk sé misánægt í borgarstjórn. Mynd Sigtryggur Ari „Við munum ekki þiggja sömu hækkanir og alþingis- menn fengu draga lappirnar Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig brugðist verður við ákvörðun kjararáðs í borgarstjórn. Mynd ÞorMAr Vignir gunnArSSon Freyr rögnvaldsson freyr@dv.is Erlend greiðslukort fjórðungur ársveltunnar Í desember nam erlend greiðslu- kortavelta 14,9 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða í desember 2015. Um er að ræða ríflega 58% aukningu frá sama mánuði árið áður. Allt árið 2016 greiddu erlendir ferðamenn 232 milljarða hérlendis með kortum sín- um, meira en helmingi meira en árið 2015 þegar greiðslukortaveltan var 154,4 milljarðar. Nærri lætur að erlend greiðslu- kortavelta hafi verið fjórðungur heildarveltu greiðslukorta hérlendis árið 2016 en öll velta greiðslukorta á Íslandi á árinu 2016 nam 1.006 millj- örðum. Af þeirri upphæð var velta innlendra korta 773 milljarðar og velta erlendra korta 232 milljarðar eins og áður sagði. Líkt og undanfarna mánuði var vöxtur í öllum útgjaldaliðum á milli ára. Mest jókst greiðslukortavelta farþegaflutninga með flugi í desem- ber, um 155,5% frá desember 2015, en velta flokksins nam 3,3 milljörð- um í desember síðastliðnum. Hluti greiðslukortaveltu flokksins er til- kominn vegna starfsemi innlendra flugfélaga á erlendri grundu. n Gríðarleg aukning á kortaveltu Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.