Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 8
Vikublað 17.–19. janúar 20178 Fréttir
HVAR ER SÓSAN?
Það er aðeins eitt sem er ómissandi í pítu og það er pítusósan.
Kannski pítubrauðið líka.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Hafna hækkunum
Líf segir samstöðu í meirihluta borgarstjórnar um að hafna launahækkunum vegna úrskurðar kjararáðs
E
kki er búið að taka ákvörðun
um með hvaða hætti Reykja-
víkurborg mun bregðast
við ákvörðun kjararáðs um
hækkun þingfararkaups en
ákvörðunin hefði að öllu jöfnu einnig
átt að hafa áhrif á laun borgarfull-
trúa. Líf Magneudóttir, forseti borgar-
stjórnar, segir að samstaða sé um það
hjá meirihluta borgarstjórnar að laun
borgarfulltrúa verði ekki hækkuð í
samræmi við hækkun kjararáðs.
Sem kunnugt er ákvað kjararáð
29. október síðastliðinn að hækka
þingfararkaup úr 762.940 krónum á
mánuði í 1.101.194 krónur á mánuði.
Ákvörðun kjararáðs olli miklum úlfa-
þyt og var kallað eftir því víða að Al-
þingi beitti sér og afturkallaði launa-
hækkunina. Þannig sagði Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri á Facebook-
síðu sinni að hækkunin væri fráleit og
boðaði að hann myndi bregðast við
með því að lækka sín laun og borgar-
fulltrúa einhliða, brygðist Alþingi ekki
við.
Hafa ýtt ákvörðuninni á undan sér
Borgarfulltrúar eru á föstum launum
sem nema 77,82 prósentum af þing-
fararkaupi. Fyrir hækkun kjararáðs
nam sú upphæð 593.720 krónum.
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti
15. nóvember síðastliðinn tillögu um
að laun kjörinna fulltrúa borgarinnar
myndu haldast óbreytt líkt og þau voru
fyrir ákvörðun kjararáðs og skal sú ráð-
stöfun standa yfir „þar til Alþingi hef-
ur haft tækifæri til að bregðast við úr-
skurði kjararáðs, eða eigi síðar en til 31.
desember nk. Bregðist Alþingi ekki við
úrskurðinum er því beint til forsætis-
nefndar að gera breytingu á samþykkt
um kjör og starfsaðstöðu kjörinna full-
trúa hjá Reykjavíkurborg.“ Á fundi for-
sætisnefndar borgarinnar 16. desem-
ber síðastliðinn var síðan samþykkt að
framlengja þessa ákvörðun til 31. jan-
úar 2017.
LÍf Magneudóttir, forseti borg-
arstjórnar, segir að enn sé ekki búið
að taka ákvörðun um hvernig kjara-
málum borgarfulltrúa verði háttað.
„Við erum búin að ýta þessu svolítið
á undan okkur. Við frestuðum því að
taka ákvörðun til 31. desember síðast-
liðins og síðan aftur til 31. janúar næst-
komandi. Ástæðan er sú að við vild-
um gefa Alþingi tíma og tækifæri til
að taka ákvörðun um að snúa við úr-
skurði kjararáðs. Nú virðist sem sagt að
þingið hyggist ekki breyta neinu í þess-
um efnum. Við höfum því látið teikna
upp fyrir okkur ýmsar sviðsmyndir og
reikna út í samræmi við þær. Við höf-
um meðal annars rætt í forsætisnefnd
hvort við ættum að binda laun borgar-
fulltrúa við almenna launavísitölu, við
þingfararkaup eða mögulega við sam-
bærileg störf stétta innan Bandalags
háskólamanna, svo dæmi séu nefnd.
Verði niðurstaðan sú að laun borgar-
fulltrúa verði áfram hlutfall af þing-
fararkaupi mun það hlutfall lækka frá
því sem nú er,“ segir Líf.
En er ekki hætt við að sömu að-
stæður komi upp aftur verði laun
áfram prósentutala af þingfararkaupi?
„Hingað til hefur þetta fyrirkomulag
verið heppilegt, allt þar til í hruninu.
Eftir það sátu þingmenn eftir í laun-
um þar til nú að þessi gríðarlega mikla
hækkun varð. Við erum hins vegar á
leið með að endurskoða allt starfs- og
launakerfi borgarfulltrúa í samhengi
við fjölgun þeirra sem kemur til fram-
kvæmda við næstu borgarstjórnar-
kosningar, árið 2018. Ég á ekki von á að
þessi staða komi upp aftur innan þess
tíma.“
Mismikil ánægja
Forsætisnefnd mun koma með tillögu
að samþykkt um launakjör borgarfull-
trúa. Líf segir ólíklegt að takast megi að
ákvarða um launakjörin fyrir 31. jan-
úar næstkomandi. Ástæðan er sú að
vart muni vinnast tími til þess þar eð
næsti reglulegi fundur forsætisnefnd-
ar borgarstjórnar sé föstudaginn 27.
janúar næstkomandi og borgarstjórn-
arfundur sé boðaður 31. janúar. Það
komi þó ekki að sök þar eð samþykkt
borgarstjórnar hafi verið með þeim
hætti að hækkun tæki ekki gildi í borg-
arkerfinu þar til forsætisnefnd hefði
tekið ákvörðun um hvernig haga skuli
launakjörum. Líf ítrekar að ekki sé enn
búið að taka ákvörðun um málið en
hækkun kjararáðs muni ekki standa.
„Við munum ekki þiggja sömu hækk-
anir og alþingismenn fengu.“
Er samstaða um það hjá borgarfull-
trúum? „Hjá meirihlutanum er það, já,
en fólk er misánægt í borgarstjórn.“ n
Samstaða hjá
meirihlutanum Líf
Magneudóttir, forseti
borgarstjórnar, segir
að samstaða sé hjá
meirihlutanum um
að hafna hækkunum
en fólk sé misánægt
í borgarstjórn. Mynd
Sigtryggur Ari
„Við munum ekki
þiggja sömu
hækkanir og alþingis-
menn fengu
draga lappirnar Ekki
hefur enn verið ákveðið
hvernig brugðist verður
við ákvörðun kjararáðs í
borgarstjórn. Mynd ÞorMAr
Vignir gunnArSSon
Freyr rögnvaldsson
freyr@dv.is
Erlend greiðslukort fjórðungur ársveltunnar
Í
desember nam erlend greiðslu-
kortavelta 14,9 milljörðum króna
samanborið við 9,4 milljarða í
desember 2015. Um er að ræða
ríflega 58% aukningu frá sama
mánuði árið áður. Allt árið 2016
greiddu erlendir ferðamenn 232
milljarða hérlendis með kortum sín-
um, meira en helmingi meira en árið
2015 þegar greiðslukortaveltan var
154,4 milljarðar.
Nærri lætur að erlend greiðslu-
kortavelta hafi verið fjórðungur
heildarveltu greiðslukorta hérlendis
árið 2016 en öll velta greiðslukorta á
Íslandi á árinu 2016 nam 1.006 millj-
örðum. Af þeirri upphæð var velta
innlendra korta 773 milljarðar og
velta erlendra korta 232 milljarðar
eins og áður sagði.
Líkt og undanfarna mánuði var
vöxtur í öllum útgjaldaliðum á milli
ára. Mest jókst greiðslukortavelta
farþegaflutninga með flugi í desem-
ber, um 155,5% frá desember 2015,
en velta flokksins nam 3,3 milljörð-
um í desember síðastliðnum. Hluti
greiðslukortaveltu flokksins er til-
kominn vegna starfsemi innlendra
flugfélaga á erlendri grundu. n
Gríðarleg aukning
á kortaveltu
Mynd Sigtryggur Ari