Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 15
Vikublað 17.–19. janúar 2017 Fréttir 15 Lúpínuseyði Gamla góða lúpínuseyðið sem Ævar Jóhannesson framleiddi og gaf fólki í um aldarfjórðung. Uppskriftin er sú sama, en nú er búið að bæta við; engifer, sítrónusafa, stevíu og sítrónusýru og bragðið því talsvert betra og áhrifin sömuleiðis. Lúpínuseyðið hefur gert mörgum gott. Í ævi­ minningum Ævars og á heimasíðu okkar, www.lupinuseydi.is er að finna magnaðar sögur af fólki sem hefur haft gott af því að drekka seyðið. Hvönnin Ætihvönn er ein merkasta lækninga jurt Íslandssögunnar en hvönnin hefur verið notuð allt frá landnámi. Rannsóknir á Raunvísindastofnun hafa sýnt að í hvönn eru efni sem verka á bakteríur, veirur, sveppi og jafnvel á krabbameinsfrumur auk efna sem virðast örva ónæmiskerfið. Ætihvönn hefur verið notuð við meltingartruflunum svo sem krampa og vindi í meltingarfærum og gegn kvilla í lifur. Hvönnin hefur verið talin góð til að losa slím úr öndunarfærum og verið notuð við bronkítis og brjósthimnubólgu og öðrum lungnakvillum. Hvönnin er enn­ fremur talin virka vel gegn tíðu þvagláti, blöðrubólgu, hálsbólgu, kvefi og flensu. Lúpínuseyði með engifer, sítrónu og stevíu Hvönn með engifer, sítrónu, spínati, myntu og stevíu Hvönn með engifer, sítrónu, túrmerik, peru og stevíu Hvönn með engifer, sítrónu, bláberjum og stevíu Drekktu í þig íslenska náttúru þér til heilsubótar Sölustaðir: Hagkaup, Heilsuhúsið, Fjarðarkaup, Bónus, 10-11 Austurstræti og Lágmúla, Blómaval, Raðhús, Vöruval Svarti Haukur ehf s. 517 0110 www.lupinuseydi.is svartihaukur@svartihaukur.is Dularfull mannshvörf á höfuðborgarsvæðinu Garði og hrein- lega gufaði upp á páskunum. Sverrir hafði farið að skemmta sér í Klúbbn- um á pálmasunnudagskvöld og tek- ið leigubíl heim. Á ganginum á hann að hafa heilsað konu er vann sem starfsstúlka á staðnum og var Sverr- ir þá á leið inn í herbergi sitt. Stuttu seinna heyrir þessi sama kona að Sverrir er heimsóttur af einhverju fólki sem ekki var mjög vanalegt á þessum tíma sólarhrings og heyrðist henni sem Sverrir færi með þeim út. Hann fannst ekki eftir það. Einar Vigfússon, 1977 Einar Vigfússon, 46 ára sellóleik- ari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, var talinn einn af mestu tónlistarmönn- um þjóðarinnar. Hann hafði átt við veikindi að stríða í höndum sem gerðu það að verkum að hann gat ekki sinnt list sinni um tíma. Um það leyti sem hann hvarf var hann ný- tekinn til starfa á ný eftir veikindafrí. Talið er að Einar hafi farið að heiman um miðnætti frá heimili sínu í mið- bæ Reykjavíkur. Hann fannst aldrei. Guðlaugur Kristmannsson, 12. febrúar 1980 Guðlaugur Kristmannsson, 56 ára, bjó vestast í vesturbænum og það var um stundarfjórðungsgangur frá heimili hans á vinnustaðinn, sem var verslun á horni Ægisgötu og Mýrar- götu. Þennan morgun ákvað Guð- laugur að ganga til vinnu sem hann gerði oft í góðu veðri. Þegar hann kom ekki til vinnu sinn- ar á venjulegum tíma var fljót- lega farið að grennslast fyrir um hann. Þremur árum eftir hvarfið var Guðlaugur úrskurðaður lát- inn. Guðmundur Finnur Björns- son, 22. nóvember 1987 Guðmundur hvarf sporlaust að- faranótt sunnudagsins 22. nóv- ember 1987. Hann hafði far- ið út að skemmta sér í tilefni tvítugsafmælis síns ásamt bróð- ur sínum og vini. Eftir að hafa byrjað kvöldið heima fyrir var stefnan tekin á skemmtistaðinn Hollywood og tóku þeir þang- að leigubíl. Þegar þangað var komið fóru bróðir Guðmund- ar og vinurinn strax í röðina en Guðmundur varð eftir og borg- aði leigubílinn. Þegar hann ætl- aði að fara í röðina með strákunum tveimur, andmælti kona aftar í röð- inni því og fyrir kurteisissakir fór hann aftast í röðina. Bróðir hans og vinurinn fóru inn en aldrei hefur sést til Guðmundar aftur. Matthías Þórarinsson, desem- ber 2010 Matthías Þórarinsson týndist í des- ember 2010, þá aðeins 21 árs. Þrátt fyrir mikla leit hefur hann aldrei fundist. Málið þykir dularfullt en jeppi hans fannst brunninn til kaldra kola skammt frá malarnámum á Kjalarnesi í janúar árið 2011. Matthí- as hafði búið í jeppanum og innrétt- að sem húsbíl. „Hann er mjög sjálfstæður, gerir allt á eigin forsendum og hefur mikið sjálfstraust,“ sagði móðir hans í við- tali við DV í ágúst 2011. Samkvæmt lögum er Matthías talinn af þar sem þrjú ár eru liðin frá hvarfi hans. Það var eins og jörðin hefði gleypt hann. Hörður Björnsson, 14. október 2015 Hörður Björnsson var 25 ára þegar lýst var eftir honum. Síðast sást til hans á Laugarásvegi í Reykjavík að- faranótt 14. október 2015. Hörður var skólaus þegar síðast sást til hans. Var hans leitað víða án árangurs og teygði leitin sig til Hveragerðis en þar kom ekkert fram. Málið telst óleyst í dag. n óskar eftir aðstoð björgunarsveita Bíll Matthíasar Bíllinn fannst brunninn. Mynd dV EHF / SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.