Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Page 16
Vikublað 17.–19. janúar 201716 Sport
G
eir hefur spilað eins vel og
hann getur úr þeim spil-
um sem hann hefur,“ segir
Gunnar Magnússon, þjálf-
ari Hauka og fyrrverandi
aðstoðarlandsliðsþjálfari í hand-
knattleik, í samtali við DV. Ísland
hefur spilað þrjá leiki á HM í hand-
bolta án þess að vinna. Það gerðist
síðast á stórmóti 2004.
Eftir tap í ágætum fyrsta leik við
Spán fylgdi annað svekkjandi tap í há-
spennuleik gegn Slóvenum. Á sunnu-
daginn spiluðu strákarnir við Tún-
is og skildu liðin jöfn, þegar upp var
staðið. Liðið er því með eitt stig í riðl-
inum. Skammt er stórra högga á milli
því ef liðið hefði skorað marki meira
í tveimur síðustu leikjum væri liðið
með fimm stig af sex mögulegum.
Mikil reynsla inni á milli
„Ég gerði væntingar um að vinna
leikinn við Túnis. Það voru ákveðin
vonbrigði að klára það ekki og taka
bæði stigin,“ segir Gunnar í samtali
við DV. Hann segir að leikmennirnir
hafi verið sjálfum sér verstir. „Við vor-
um komnir í þannig stöðu að við átt-
um að klára þetta.“ Hann segir að ekki
sé hægt að kenna reynsluleysi um
hvernig liðið spilaði úr lokamínútun-
um en liðið fékk á kafla seint í leikn-
um nokkur tækifæri til að komast
þremur mörkum yfir. „Inni á milli eru
þarna menn með mikla reynslu. Samt
má segja að við höfum verið heppnir
að missa þetta ekki niður í tap.“
Angóla-leikurinn í nýju ljósi
Hann segir að jafnteflið setji Angóla-
leikinn, sem fer fram í dag (þriðju-
dag), í allt annað samhengi. Liðið
þurfi helst að vinna þann leik með
miklum mun til að setja sig í væn-
lega stöðu gagnvart Túnis í barátt-
unni um þriðja sætið í riðlinum.
Vinni Ísland Makedóníu og Angóla,
gæti baráttan um þriðja sætið stað-
ið á milli Túnis og Íslands. Liðin eru
jöfn í innbyrðis viðureignum svo þá
skiptir markatalan máli.
Gunnar segir að fyrirfram hefði
mátt líta á Angóla-leikinn sem leik
þar sem hægt væri að hvíla lykil-
menn. Gjörbreytt staða sé uppi nú.
„Við þurfum að slátra Angóla til að
tryggja okkur í haginn og verða fyr-
ir ofan Túnis. Það er himinn á haf á
milli þess að komast í 16 liða úrslit
en að spila við lélegustu liðin á HM í
President cup,“ segir Gunnar en þess
má geta að fjögur efstu liðin í þess-
um sex liða riðli komast í 16 liða úr-
slit. Allt bendir til þess að liðið sem
hafnar í fjórða sæti mæti Frakklandi
í 16 liða úrslitum. Það vill enginn.
Liðið sem hafnar í þriðja sæti í okkar
riðli gæti mætt Noregi – og þar liggja
möguleikar Íslands að mati Gunnars.
En til þess þarf Ísland að vinna bæði
Angóla og Makedóníu.
Gunnar bendir á að Makedónar
spili við Spán seint á miðvikudags-
kvöld, en Íslendingar hvíla þann dag.
Það sé ótvíræður kostur fyrir Ísland
þegar liðin mætast í þýðingarmikl-
um leik á fimmtudag. Makedón-
ar verði þreyttari en við. „Vörn og
markvarsla hefur verið í góðu lagi.
Ef við höldum áfram að bæta okkur
fram að þessum leik þá held ég að
við vinnum Makedóníu. Við þurfum
hins vegar að treysta á að Slóvenía
vinni Makedóníu og Túnis.“
Þeir ungu eru öflugir
Ungu strákarnir fjórir, sem eru á sínu
fyrsta stórmóti, hafa komið með kraft
inn í liðið. Þannig átti Janus Daði
Smárason frábæra kafla á móti Tún-
is, þar sem hann fór stundum illa með
varnarmennina. „Við vorum í gær
[sunnudag] að stilla upp fyrir Janus og
mér fannst hann koma sterkur inn.“
Þá segir hann ánægjulegt að sjá
hvað Arnar Freyr Arnarsson hafi
komið öflugur inn í liðið. Ómar Ingi
Magnússon og Bjarki Már Elísson
hafi einnig átt fínar innkomur.
„Ég er sáttur við hann“
Hann er ánægður með Geir Sveins-
son. „Mér finnst hann hafa gert vel.
Þetta er ekki auðveld staða. Mér
finnst hann dreifa álaginu vel og
gefa mönnum séns. Ég er sáttur við
hann.“ Hann segist þó setja spurn-
ingarmerki við ástandið á sumum
leikmönnum liðsins og nefnir þar
Ásgeir Örn Hallgrímsson, sem eigi
augljóslega nokkuð í land. Hann sé
þó að gefa sig allan í verkefnið, fyr-
ir land og þjóð. „Eins hefði ég vilj-
að hafa rétthenta skyttu með Ólafi
Guðmundssyni. Við lendum stund-
um í vandræðum þegar Rúnar er sá
eini sem er að skjóta á níu metrum.“
Hann nefnir Sigurberg Sveinsson,
Tandra Má Konráðsson og Adam
Hauk Baumruk, sem menn sem geti
skotið fyrir utan. „Geir hefur spilað
eins vel og hann getur úr þessu.“
Ekki skjóta of snemma
Spurður hvað liðið þurfi að bæta seg-
ir Gunnar að vörn og markvarsla hafi
verið góð á mótinu. „Grunnurinn er
til staðar. Ég veit að við getum lagað
sóknarleikinn á stuttum tíma. Spurn-
ing um að spila lengur í kerfunum og
fá aðeins meira flot á boltann. Við
þurfum að vera þolinmóðari og ekki
svona fljótir að skjóta. Þá fáum við
betri færi. Ég er viss um að Geir og
strákarnir eru að ræða þessa hluti.“ n
„Þurfum
n Gunnar Magnússon segir jafnteflið
setja næsta leik í nýtt samhengi
n Mætum þreyttum Makedónum
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Þjálfari Hauka Gunnar er ánægður með Geir
en hefði viljað aðra rétthenta skyttu í hópinn.
Skytta Stórskyttan Rúnar Kárason hefur spilað Íslendinga best á mótinu eftir fyrstu þrjá
leikina, samkvæmt tölfræðisamantekt HBstatz. Hann hefur skorað 13 mörk og gefið sjö
stoðsendingar. Mynd EPA
Fyrirliðinn svekktur
Guðjón Valur hefur spilað
vel á mótinu. Herslumun
hefur vantað upp á að liðið
næði í fleiri stig. Mynd EPA
að slátra
angóla“
„Við lendum
stundum í
vandræðum þegar
Rúnar er sá eini sem er
að skjóta á níu metrum.
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS