Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Page 20
Vikublað 17.–19. janúar 201720 Skrýtið Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan starfsmann. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á steinn@dv.is Sturlaður markaður með Stórbrotnar faSteignir Dýrustu eignirnar sem eignuðust nýja eigendur á árinu 2016 M argar af glæsilegustu fast- eignum veraldar eignuð- ust nýja eigendur á árinu 2016. Dýrasta fasteign- in sem keypt var kost- aði hvorki meira né minna en 270 milljónir Bandaríkjadala, 31 millj- arð króna. Tekið skal fram að hér er einungis átt við heimili en ekki stærri fasteignir sem notaðar eru í öðrum tilgangi. Dýrustu eignina sem um ræðir, í Hong Kong, keypti kínverski fast- eignamógúllinn Hongtien Chen, en eignin er tæplega 900 fermetrar að stærð, á besta stað í hverfi hinna efnameiri þar sem hún gnæfir yfir Hong Kong. Í öðru sæti á þessum lista var önnur fasteign í Asíu, nán- ar tiltekið í Suzhou í Kína, sem kost- aði 154 milljónir dala, 17,6 milljarða króna. Fasteignin stendur tignarleg skammt vestur af Sjanghæ. Breska blaðið Daily Mail tók saman upplýs- ingar um dýrustu fasteignirnar sem skiptu um hendur á liðnu ári. n 2 Útópían Þessi glæsilega fasteign kom á sölu í Kína á liðnu ári og var ásett verð hátt í 18 milljarðar króna. Fasteignin hefur viðeigandi nafn, Taohu- ayuan, eða Útópía á íslensku. Ekki liggur fyrir hver keypti fasteignina, sem er með 32 herbergjum, hvorki meira né minna. Miðað við efnahags- uppganginn í Kína og ört fjölgandi milljarðamæringa er ekki útilokað að eignin hafi verið tiltölulega fljót að seljast. 3 Hátt launaður bankamaður The Crespi Hicks er stórglæsileg eign í Dallas í Bandaríkjunum. Andrew Beal, stofnandi Beal-bankans, splæsti 100 milljónum dala í eignina á liðnu ári, upphæð sem nemur 11,4 milljörðum króna. Sjö svefnherbergi eru í húsinu og er lofthæð á bilinu 4 til 5 metrar. Eignin var eitt sinn í eigu Tom Hicks sem líklega er einna best þekktur fyrir að hafa verið einn af eigendum knattspyrnuliðsins Liverpool. 4 Playboy-höllin Í fjórða sæti í úttektinni er sjálf Playboy-höllin sem var í eigu Hugh Hefner, stofnanda tímaritsins fræga. Það var ungur auðkýfingur, Daren Metropoulous, 33 ára meðeigandi Hostess, sem framleiðir meðal annars Twinkies-sælgætið, sem keypti höllina og er hann talinn hafa greitt 100 milljónir dala fyrir, eða 11,4 milljarða króna. Hefner hafði búið í húsinu frá árinu 1971 en í því eru sjö svefnherbergi, átta baðherbergi, vínkjallari, lítið kvikmyndahús, líkamsræktarstöð, tennisvöllur og sundlaug að sjálfsögðu. 5 2.800 fermetrar Tom Gores, eigandi NBA-liðsins Detroit Pistons, er talinn hafa greitt tæplega 100 milljónir dala fyrir þetta glæsilega hús við Carolwood Drive í Los Angeles. Það væsir ekki um Gores og fylgdarlið hans í húsinu sem er samtals 2.800 fer- metrar að stærð. Í því eru 10 svefnherbergi og á lóðinni við það eru íþróttavellir og sundlaug. Þess má geta að í húsinu er sérstök svíta, tæpir 500 fermetrar að stærð, sem hugsuð er fyrir aðaleigendur hússins. 1 900 fermetrar til einkanota Sem fyrr segir var það Kínverjinn Hongtian Chen sem keypti þessa glæsilegu eign í Hong Kong. Fyrirtæki hans, Cheung Kei Group, fjárfestir í fasteignum, hótelum og fjármálastarfsemi í Hong Kong. Í viðtali við South China Morning Post, þegar greint var frá kaupunum, sagði Hongtian að hann hefði keypt húsið til einkanota. Það væri erfitt að græða á fjárfestingu sem þessari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.