Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Page 26
Vikublað 17.–19. janúar 201726 Menning
L
ímband er helsti efnivið-
ur pólsku listakonunn-
ar Moniku Grzymala sem
opnaði sýningu á verk-
um sínum í galleríinu Berg
Contemporary á föstudag. Verk
Moniku er oftar en ekki stað- og
tímabundnar innsetningar þar sem
hún notar límbandið til að draga
línur í rýmið. Línurnar stökkva
af veggjunum og út í tóma rým-
ið og mynda eins konar þrívíddar-
teikningar, það sem hún kallar
„Raumzeichnung“ upp á þýska
tungu – en þar í landi hefur hún
búið og starfað um árabil.
Í Berg sýnir hún meðal annars
tvær slíkar rýmisteikningar.
Stærsta verk sýningarinnar er eins
konar fjall úr silfurlitu límbandi
sem þekur stóran hluta gallerís-
ins, en þar er einnig smærra verk
úr möttu, svörtu límbandi sem
lætur teikninguna virka flata og
tvívíða úr fjarlægð en stekkur fram
í rýmið þegar áhorfandinn gengur
nær. Þannig myndar hún ringlandi
sjónhverfingu (Þetta er illa hægt
að fanga á ljósmynd svo þú verður
bara að fara að kíkja).
Höggmyndir úr límbandi
„Áður fyrr vann ég fyrst og
fremst fígúratíf verk en
einn kennari minn í
listaháskóla, Bogom-
ir Ecker, benti mér á
að ég notaði mest-
an hluta tímans í
að lýsa ósýnilegum
línum sem táknuðu
tengsl hluta og fólks.
Þegar ég gerði mér
grein fyrir þessu breytt-
ist allt – og ég kastaði frá
mér öllu því sem ég hafði gert
áður og byrjaði að teikna línur,“ seg-
ir Monika.
„Ég byrjaði að teikna línur á
blöð, en á einhverjum tíma fyllti
ég skissubókina mína og fór að
teikna út fyrir hana og út á veggina.
Þegar ég var byrjuð að gera það
virkaði nokkuð skynsam-
legt að prófa límbandið
því að með því gat ég
teiknað í loftið og
myndað eins kon-
ar höggmyndir.
Strúktúrarnir sem
verða til með þess-
um hætti eru nokk-
uð fastir og traustir.“
Monika segist
vera hrifin af því að
gera strúktúra sem eru
bæði einstakir, tímabundn-
ir og skammlífir og segir það ekki
verra þótt þeir breytist eða losni
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Mynd SiGtryGGur Ari
Mynd MoniKA GrzyMAlA
Teiknað í loftið
Pólska listakonan Monika Grzymala vinnur rýmisteikningar með límbandi„Ég byrjaði að
teikna línur á blöð,
en á einhverjum tíma fyllti
ég skissubókina mína og
fór að teikna út fyrir hana
og út á veggina.
Maria Bals-haw er nýr yfirmaður
Tate-listasafn-
anna og er þar
með orðin ein
allra áhrifamesta
manneskjan í listaheimin-
um. Balshaw er fyrsta konan
til að stýra Tate, sem heldur
úti fjórum listasöfnum í Bret-
landi, meðal annars einu mik-
ilvægasta nútímalistasafni
heims. Balshaw tekur við af
Sir Nicholas Serota, sem hefur
sinnt starfinu í tæp 30 ár.
Ungar eftir Nönnu Krist-ínu Magn-
úsdóttur hef-
ur verið valin
besta alþjóðlega
stuttmyndin á kvik-
myndahátíðinni Flickerfest í
Sydney í Ástralíu. Það er Ólafur
Darri Ólafsson sem fer með að-
alhlutverkið. Myndin hefur áður
verið verðlaunuð á Northern
Wave og RIFF-kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík.
Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine fóru fram um síð-ustu helgi en þar er það fyrst
og fremst grasrótin í íslenskri
tónlist sem er verðlaunuð. GKR
var valinn listamaður ársins, Fu-
fanu áttu lag ársins „Sports“, Black
Lights með Samaris var valin
plata ársins, falinn demantur
ársins var platan Andi með lista-
manninum Andi, mest spennandi
hljómsveitin er Ayia, besta tón-
leikabandið er Hatari, sérstakt
hrós fékk útgáfutvíeykið Hið
Myrka Man og minningarverð-
laun Grapevine voru tileinkuð
raftónlistarmanninum Biogen.
Úr listheiminum
GKr.