Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 28
Vikublað 17.–19. janúar 201728 Fólk
Heimsþekktur ljósmyndari og mágur Englandsdrottningar
E
inn af þekktustu ljósmyndur-
um Breta, Snowdon lávarð-
ur, er látinn, 86 ára gamall.
Hann var kvæntur Margréti
prinsessu, systur Elísabet-
ar Englandsdrottningar, á árunum
1960–1978. Snowdon, sem skírður
var Antony Armstrong-Jones, var afar
virtur ljósmyndari og um tíma list-
rænn ráðgjafi Sunday Times. Þekkt-
astur er hann fyrir myndir sínar af
frægu fólki, þar á meðal konungsfjöl-
skyldunni, sem birtust meðal annars í
Vogue, Vanity Fair og Daily Telegraph.
Árið 1968 gerði hann heimildamynd
fyrir fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur
þar sem fjallað var um ellina. Myndin
hlaut Emmy-verðlaun. Honum var
margt til lista lagt og hannaði til dæm-
is fuglabúr fyrir dýragarðinn í London
sem þykir mikið listaverk. Hann hlaut
margvíslegar viðurkenningar á löng-
um ferli.
Snowdon þótti afar sjarmerandi
maður með góða kímnigáfu. Einkalíf
hans var vægast sagt skrautlegt. Sögu-
sagnir voru á kreiki um að Snowdon
hefði átt í ástarsamböndum við karl-
menn og einhverjir þeirra hafa verið
nafngreindir. Um þann orðróm sagði
Snowdon: „Ég varð ekki ástfanginn
af strákum en nokkrir karlmenn hafa
orðið ástfangnir af mér.“ Hann átti
tvö börn með Margréti prinsessu og
mörgum árum síðar kom í ljós að
hann hafði eignast dóttur stuttu áður
en þau gengu í hjónaband.
Stormasamt hjónaband
Í Bretlandi var hann fyrsti almúga-
maðurinn í 450 ár til að giftast kon-
ungsdóttur. Þau Margrét voru gefin
saman í Westminster Abbey og var
það fyrsta konunglega brúðkaupið
sem sjónvarpað var frá og 300 millj-
ónir fylgdust með því. Ingrid Dana-
drottning var eini meðlimur erlendra
konungsfjölskyldna sem mætti í brúð-
kaupið en í konunglegum kreðsum
þótti afar ófínt að prinsessa skyldi gift-
ast ljósmyndara.
Sambandið við prinsessuna var
stormasamt og líferni þeirra beggja
villt með tilheyrandi áfengisneyslu.
Rifrildi þeirra voru heiftarleg, kunn-
ingi þeirra lýsti þeim þannig að það
hefði verið eins og að verða vitni að
tveim einstaklingum skiptast á byssu-
skotum. Þegar sambandið var sem
verst hafði Snowdon fyrir vana að
lauma miðum milli blaðsíðna í bók-
um sem kona hans var að lesa. Á ein-
um þeirra stóð: Þú lítur út eins og
handsnyrtifræðingur af gyðingaætt-
um og ég hata þig.“
„Ég vildi óska að hún næði sér
í elskhuga og léti mig í friði,“ sagði
Snowdon við vin sinn. Hann átti í
ástarsamböndum utan hjónabands
en varð hins vegar æfur þegar eigin-
kona hans fékk sér elskhuga. Mánuði
eftir að myndir birtust af prinsess-
unni í sundfötum á sólarströnd með
elskhuga sínum, sem var 17 árum
yngri en hún, var tilkynnt um skilnað
hjónanna.
Í uppáhaldi hjá drottningu
Eftir skilnað þeirra Margrétar kvænt-
ist Snowdon að nýju og eignaðist
dóttur en átti á sama tíma í ástarsam-
bandi við blaðakonu sem fyrirfór sér
árið 1996. Seinna hjónabandi hans
lauk árið 2000 eftir uppljóstrun um að
hann hefði eignast barn utan hjóna-
bands. Þrátt fyrir skilnaðinn við Mar-
gréti var Snowdon einn af eftirlætis-
ljósmyndurum Elísabetar drottningar
og hélt áfram að mynda hana og aðra
meðlimi konungsfjölskyldunnar.
Sem barn þjáðist Snowdon af löm-
unarveiki sem gerði að verkum að
hann var haltur. Hann var alla tíð öt-
ull talsmaður fatlaðra og barðist fyr-
ir réttindum þeirra. Vinur hans lýsti
honum eitt sinn með orðunum: „Það
er ómögulegt að ímynda sér blíðari
eða fágaðri mann en hann.“ n
Með Bandaríkjaforseta Snowdon og Margrét með Johnson forseta og eiginkonu hans.
„ Í konunglegum
kreðsum þótti afar
ófínt að prinsessa skyldi
giftast ljósmyndara.
Snowdon
lávarður
kveður
Snowdon lávarður
Einn virtasti ljósmyndari
Breta er látinn.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Margrét prinsessa Hjónaband
þeirra Snowdon einkenndist af
heiftarlegum rifrildum.
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
www.plusminus.is
ÚTSALA
Útsalan er hafin
20-80 %
afsláttur af umgjörðum