Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 38
Vikublað 17.–19. janúar 20172 Þorrinn - Kynningarblað
Harðfiskur eins og hann gerist bestur
Víkingur og Sjómaðurinn
H
arðfiskur er ómissandi
hluti af þorraveislunni og
þorrahlaðborðinu. Þegar
fólk vill gera vel við sig,
eins og á þorranum, er
mikilvægt að velja ekki bara hvaða
harðfisk sem er heldur bara það
besta. Víkingur og Sjómaðurinn
eru dæmi um hágæða harðfisk sem
sómir sér vel á þorrabakkanum.
Þessi harðfiskur er unninn úr fyrsta
flokks línufiski, hann er mildur og
án allra bindiefna.
Víkingur harðfiskurinn í gjafa-
umbúðum er sérvalinn, mjúkur og
í lofttæmdum umbúðum. Víkingur
fæst í Nettó, Fjarðarkaupum, Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar, Hagkaupum
og Iceland.
Sjómaðurinn færst í verslunum
Bónuss. n
Sjá nánar á heimasíðunni
www.icelandseafish.com
Þorskurinn langbestur í harðfiskinn
Stjörnufiskur búinn að koma Færeyingum á bragðið
H
arðfiskurinn má segja að
sé hálfgert þjóðartákn Ís-
lendinga. Hann er sann-
kallað ofurfæði því hann er
ekki bara meinhollur heldur
einnig bragðgóður og stórskemmti-
legt að borða hann. Stjörnufiskur er
gamalgróið fyrirtæki og stofnað árið
1988. Ekki alls fyrir löngu, eða í jan-
úar 2016, tóku félagarnir Guðni Már
Þorsteinsson og Þorlákur Grímur
Halldórsson við rekstri þess. Stjörnu-
fiskur sérhæfir sig annars vegar í
framleiðslu á harðfiski og svo bita-
fiski, sem er harðfiskur verkaður í
handhægum bitum. “Harðfiskurinn
er frábær í millimál á meðan bitafisk-
urinn kemur algerlega í staðinn fyr-
ir snakk og annars konar nasl,” seg-
ir Guðni. Báðar vörurnar eru gerðar
úr íslenskum þorski sem keyptur er
af markaði og beint af bátnum sem
Þorlákur gerir út á Grindavík. Fram-
leiðslan er sömuleiðis öll staðsett þar.
Færeyingar elska harðfisk
“Við seljum harðfiskinn okkar í hin-
ar ýmsu matvörubúðir svo sem Bón-
us og ICELAND matvörukeðjuna. Svo
erum við að flytja út vörur á færeysk-
an markað. Færeyingar eru vitlaus-
ir í þurrkaðan fisk og kaupa töluvert
af okkur,” segir Guðni. Stjörnufisk-
ur hyggst auka framleiðslu sína og
leggja net sín út á fleiri erlenda mark-
aði í framtíðinni, enda með frábæra
vöru í höndunum. “Eftir að við fórum
alfarið í að verka þorskinn jókst salan
töluvert hjá okkur og það er mín trú
að þorskurinn henti einfaldlega best í
harðfiskinn,” segir Guðni.
Fylgstu nánar með Stjörnufiski
á facebooksíðu Stjörnufisks. Hægt
er að hafa samband við Stjörnufisk í
síma 8976302 eða með því að senda
tölvupóst í stjornufiskur@simnet.is n