Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 6
Vikublað 28. febrúar–2. mars 20176 Fréttir S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Dagsektir gætu reynst banabiti Útvarps Sögu n Halda áfram að nota aukatíðni í leyfisleysi n Vilja senda út á tveimur tíðnum P óst- og fjarskiptastofnun hefur frá og með 24. febrúar síðastliðnum byrj- að að leggja dagsektir á Út- varp Sögu sem nema 75 þúsund krónum á dag. Ástæðan er að forsvarsmenn útvarpsstöðv- arinnar hafa haldið áfram að nota tíðnina 102,1 og brjóta þannig gegn fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að þeim bæri að hætta því. Tímabundið leyfi og misskilningur Forsaga málsins er að Útvarp Saga, sem er á FM 99,4, fékk árið 2015 tímabundið leyfi Póst- og fjar- skiptastofnunar (PFS) til að senda líka út á 102,1 í tilraunaskyni til að mæla dreifingu sína. Forsvars- menn Útvarps Sögu voru nefnilega ósáttir við að stöðin næðist illa víða á höfuð borgarsvæðinu á tíðni 99,4. DV fjallaði um það í nóvem- ber þegar PFS synjaði Útvarpi sögu um að fá að senda út dagskrá stöðvarinnar á tveimur FM-tíðn- um til að tryggja betri dreifingu um allt höfuð borgarsvæðið. Í þeirri ákvörðun voru samskipti stofnunar- innar við forsvarsmenn stöðvarinn- ar rakin. Svo virðist sem forsvars- menn Útvarps Sögu hafi misskilið svar PFS við upphaflegu beiðninni þar sem kom skýrt fram að ef stöðin vildi fá 102,1 tíðnina, yrði stöðin að hætta að nota 99,4 innan nokkurra mánaða. Takmörkuð auðlind Í kjölfarið fylgdu nokkrar fram- lengingar á tímabundinni úthlutun stöðvarinnar á 102,1 þar sem Út- varp Saga var að láta mæla hlustun á tíðnina áður en ákvörðun yrði tek- in um hvor tíðnin yrði fyrir valinu. Ekkert bólaði á svörum og hélt stöð- in ótrauð áfram að senda út á rás- unum tveimur þrátt fyrir að frestur hennar hefði runnið út þann 30. nóvember 2015. Í apríl 2016 var stöðinni svo veittur lokafrestur til að komast að niðurstöðu. Eftir að hafa feng- ið annan frest fór stöðin loks fram á að fá að nota báðar tíðnirnar, með vísan í meðal annars það að Bylgjan og Ríkisútvarpið hefðu leyfi til að senda út á fleiri en einni tíðni á höfuð borgarsvæðinu. PFS hefur hins vegar bent á að FM-tíðni- bandið sé takmörkuð auðlind sem nota beri skilvirkt og vegna eftir- spurnar væri ekki svigrúm til að úthluta fleiri en einni tíðni á sama svæði til hverrar stöðvar. PFS vill meina að dreifing 99,4 væri að mestu leyti viðunandi og bauð stöð- inni aðstoð við að bæta nýtingu og auka útbreiðslu með ýmsum hætti. Í ákvörðuninni sem DV fjallaði um í nóvember kom fram að Út- varp Saga þyrfti að hætta tafarlaust að nota 102,1 fyrir 25. nóvember ellegar myndi PFS grípa til aðgerða. Þær aðgerðir hófust síðan 24. febrúar síðastliðinn, þar sem Út- varp Saga sendir enn út á báðum tíðnum og virðist neita að skila annarri þeirra inn. Ein tíðni banabiti stöðvarinnar Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, hefur lýst því yfir að hér sé um að ræða allsherjar sam- særi til að þagga niður í stöðinni, sem vissulega er umdeild, þar sem ákvörðunin muni kippa stoðunum undan rekstri stöðvarinnar. Þessi sjónarmið komu líka fram í samskiptum Útvarps Sögu við PFS í ákvörðun stofnunarinnar um að leggja dagsektir á stöðina. Þar héldu forsvarsmenn stöðv- arinnar fram að „það muni augljós- lega hafa afgerandi áhrif á rekstrar- grundvöll stöðvarinnar ef dagsektir verða lagðar á og það sé í raun ígildi þess að loka fyrir starfsemi fé- lagsins. Sendirinn á 102,1 MHz sé nauðsynlegur til útbreiðslu og dreifingar á stóru hlustunarsvæði stöðvarinnar á Suð-vesturhorni landsins og höfuð borgarsvæðinu.“ Sendi út á einni tíðni í 12 ár Í þessu samhengi bendir PFS á að dagskrá Útvarps Sögu hafi verið send út á einni tíðni, 99,4, á höfuð- borgarsvæðinu árin 2003–2015. „Það felur því alls ekki í sér stöðvun á rekstri stöðvarinnar ef slökkt verður á sendi á tíðninni 102,1 MHz. Þó svo að útbreiðsla sé betri á 102,1 MHz þá dugði sendir á tíðninni 99,4 MHz til þess að reka stöðina í 12 ár og hlýtur að geta dugað á meðan mál þetta er rekið fyrir úrskurðarnefnd. Úr- skurðarnefnd taldi það ljóst í úr- skurði sínum 2. desember 2016 að stöðvun útsendinga á 102,1 MHz myndi ekki hafa í för með sér að út- sendingar kæranda muni stöðvast, heldur væri um óbreytta starfsemi að ræða frá því sem var áður en mál þetta hófst.“ Reiðir hlustendur Það er óhætt að segja að það hafi verið mikil reiði í símatímum Út- varps Sögu á föstudag, þar sem meðal annars var gripið til þess að hafa sérstakan aukasímatíma, og hlustendum og velunnurum stöðv- arinnar mörgum heitt í hamsi sem og forsvarsmönnum hennar. Hyggj- ast hlustendur jafnt sem forsvars- menn þrýsta á Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra, að beita sér í málinu þar sem málaflokkurinn heyri undir hann. PFS er heimilt að beita dag- sektum frá 50 þúsund krónum og allt upp í hálfa milljón, og þó 75 þúsund krónur séu nærri lág- markinu þá er fjárhæðin fljót að telja. Þannig getur einn mánuður af dagsektum kostað þessa litlu útvarpsstöð rúmar 2,3 milljónir króna. Þrátt fyrir þvingunaraðgerð- irnar segjast forsvarsmenn Sögu hvergi ætla að hvika í baráttu sinni gegn þögguninni. n Til að þagga niður í stöðinni Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri lýsti því yfir í útsendingu að dagsektir PFS væru tilraun til að þagga niður í Útvarpi Sögu. Forsvarsmenn stöðvarinnar óttast að það muni reynast banabiti hennar að senda bara út á einni tíðni. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Augljóslega hafa afgerandi áhrif á rekstrargrundvöll stöðv- arinnar ef dagsektir verða lagðar á og það sé í raun ígildi þess að loka fyrir starfsemi félagsins. Eitrið barst inn í bílinn „Þetta var mjög óhugnanlegt og þetta gerðist allt saman mjög hratt,“ segir Kristín Hafsteinsdóttir en dóttir hennar var hætt komin eftir að hafa setið í bíl í tæpa mínútu á meðan útblástursefni frá púströrinu safnaðist upp í farþegarýminu. Ástæðan var sú að snjór hafði safnast upp fyrir framan púströrið og hindrað útblástur. Kristín vonast til að frásögnin verði öðrum víti til varnaðar. Kristín segir að atvikið hafi átt sér stað síðdegis á sunnudag en Elías, maður hennar, hugðist þá sækja hana í vinnu ásamt börnum þeirra tveimur. „Bílinn var auðvitað á kafi í snjó eins og allir aðrir bílar. Mað- urinn minn setti dóttur okkar í barnabílstólinn og startaði síðan bílnum og fór að moka burt snjó- num. Hann var alveg handviss um að hann hefði mokað burt öllum sjó frá púströrinu.“ Svo virðist hins vegar sem nægilega mikill snjór hafi náð að safnast upp fyrir framan púströrið á ný. „Lovísa fer að gráta svo mað- urinn minn drífur sig að moka og lítur svo á Lovísu. Hún er grafkyrr í bílstólnum og með lokuð augun svo hann heldur að hún sé sofn- uð. Þegar hann opnar bíldyrnar til þess að hleypa stráknum inn í bílinn kemur á móti honum útblásturslykt. Þá var snjórinn búinn að loka fyrir útblásturinn á pústinu svo allt fór inn í bíl- inn. Hann drífur sig að Lovísu þar sem hún er orðin grá og föl í framan. Rífur hana úr bílstólnum og blæs framan í hana þar til hún rankar við sér.“ Kristín segir að dóttir hennar hafi verið fljót að koma til en hvetur fólk til að hafa varann á sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.