Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 10
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201710 Fréttir
Ferðalagið heFði getað drepið mömmu
n Dayana sakar lækni á Læknavaktinni um alvarleg læknamistök n Kraftaverk að Ana skyldi lifa af 30 klukkustunda ferðalag frá Íslandi til Brasilíu með þrjá blóðtappa
H
ugsaðu þér ef hún hefði
komið aftur heim til sín
í líkkistu?“ Þetta segir
Knútur Einar Knudsen
sem segir að meint
læknamistök hefðu getað kostað
tengdamóður sína lífið. Atvikið
átti sér stað í nóvember 2016 en
Ana Maria Alves, sem er búsett í
Brasilíu, hafði dvalið á Íslandi hjá
dóttur sinni, Dayönu Alves, og
Knúti í tæpa þrjá mánuði þegar
annar fótleggurinn hennar byrjaði
að bólgna fjórum dögum áður en
hún átti flug aftur til Brasilíu.
Bólgan og verkirnir stigmögn-
uðust með hverjum deginum sem
leið. Þegar Ana komst loks á leiðar-
enda eftir 30 klukkustunda ferða-
lag var fóturinn orðinn svo stokk-
bólginn að hún gat með engu móti
stigið í hann. Henni var samstund-
is ekið á sjúkrahús þar sem brasil-
ískir læknar fundu þrjá blóðtappa
í fætinum. Þeir segja það krafta-
verk að Ana skyldi lifa ferðalagið
af. Hjónin kvörtuðu undan lækn-
inum sem hitti Önu á Íslandi áður
en hún hélt til Brasilíu, til Embættis
landlæknis, og eru gríðarlega ósátt
við þau svör sem fengust í mál-
inu. Þau telja málið skýrt dæmi um
grafalvarleg læknamistök.
Fótleggurinn svartur og
fjólublár
Dayana og Knútur hafa verið gift í
10 ár og búið á Íslandi öll sín hjú-
skaparár. Í ágúst í fyrra kom Ana í
fyrsta skipti til Íslands til að heim-
sækja dóttur sína og tengdason en
hún dvaldi á Íslandi í þrjá mánuði
áður en hún hélt af landi brott
þann 21. nóvember síðastliðinn.
Ferðalagið á milli Íslands og Bras-
ilíu er mjög langt en samtals þurfti
Ana Maria að taka fjögur flug til að
komast á áfangastað.
„Við tókum eftir því, nokkrum
dögum áður en mamma átti bók-
að flug heim, að vinstri fótleggur
hennar byrjaði smátt og smátt að
bólgna. Þetta leit út fyrir að vera
bjúgur en daginn áður en hún átti
að fara var okkur alveg hætt að lít-
ast á blikuna. Fóturinn var orðinn
svartur og fjólublár,“ segir Dayana.
Í framhaldinu fóru þau hjónin með
Önu Mariu á Læknavaktina í Kópa-
vogi.
„Mamma harkar alltaf allt af sér.
Fyrst hún samþykkti að fara þá var
eitthvað mikið að.“
Eftir nokkra bið á Læknavaktinni
tók læknir á móti þeim og hjónin
röktu veikindi Önu dagana á und-
an. „Okkur grunaði að þetta væri
bjúgur en auðvitað er undarlegt að
fá bara bjúg á annan fótinn,“ segir
Dayana en eftir að læknirinn var
búinn að mæla blóðþrýsting Önu,
sem var innan eðlilegra marka,
mælti hann með því að hún fengi
sér teygjusokk. Hann sagði að fyrst
blóðþrýstingurinn væri eðlileg-
ur þá væri ekkert alvarlegt að hrjá
Önu.
Þá ráðlagði hann Önu að hreyfa
sig mikið í háloftunum til að koma
í veg fyrir blóðtappa. Að auki skrif-
aði hann upp á lyf gegn bjúg fyrir
Önu en ráðlagði henni að taka þau
ekki fyrr en eftir að hún væri komin
heim til Brasilíu.
Ekki ástæða til að fresta fluginu
Í greinargerð vegna kvörtunar Önu
til Embættis landlæknis segir lækn-
irinn, sem tók á móti henni á Lækna-
vaktinni, að samkvæmt því sem
hann skrifaði hjá sér hafi Ana verið
með bjúg í nokkrar vikur, en ekki
nokkra daga líkt og fram kemur í
kvörtunarbréfinu sem Dayana skrif-
aði fyrir hönd móður sinnar. Lækn-
irinn kveðst ekki geta útskýrt mis-
ræmið.
Í greinargerðinni segir meðal
annars: Mín greining var sú að
um bjúg væri að ræða vegna
„insufficens“ á bláæðum. Hún bað
ákveðið um bjúgtöflur en vegna fyrir-
hugaðs ferðalags taldi ég ekki heppi-
legt að hún tæki slík lyf fyrir ferða-
lagið. Mínar ráðleggingar lutu að því
að fyrirbyggja blóðtappa og því ráð-
lagði ég henni að hreyfa sig talsvert
í vélinni. Ef ástandið myndi versna
mikið þá leita sem fyrst til læknis
við heimsóknina. Vitað er að langar
flugferðir ýta undir myndun blóð-
tappa í fótleggjum. Ég lét hana hafa
milt þvagræsilyf og verkjalyf. Þar sem
sjúkdómsgreining mín var sú sem ég
greini hér að ofan sá ég ekki ástæður
til að hún frestaði fluginu.
Þá segir í niðurlagi greinargerðar
læknisins: „Ég harma mjög veikindi
Önu og það er einlæg von mín að
hún nái sér að fullu sem fyrst.“
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Það var ekkert
gert fyrir hana.
Auðvitað átti að senda
okkur beint á bráðamót-
tökuna og láta okkur
aflýsa fluginu.
Í hjólastól Þegar komið var til München var Ana orðin svo slæm að hún þurfti að nota
hjólastól til að komast leiðar sinnar.
Ósátt „Auðvitað átti að senda okkur beint á bráðamóttökuna og láta okkur aflýsa fluginu,“ segir Dayana. Mynd Sigtryggur Ari
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun