Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 11
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Fréttir 11 Ferðalagið heFði getað drepið mömmu n Dayana sakar lækni á Læknavaktinni um alvarleg læknamistök n Kraftaverk að Ana skyldi lifa af 30 klukkustunda ferðalag frá Íslandi til Brasilíu með þrjá blóðtappa Fjögur flug í 30 klukkustundir Morguninn eftir læknisheimsókn- ina fór Ana í fyrsta flugið af fjórum. Dayana og Knútur fylgdu henni til Þýskalands en þegar þau komu til München í Þýskalandi var Ana orðin svo slæm að hún þurfti að nota hjólastól til að komast leiðar sinnar á flugvellinum. „Fótleggurinn á henni var orðinn tvöfaldur og næstum því svartur. Við gerðum allar þær ráð- stafanir sem við gátum fyrir Önu svo ferðalagið yrði henni sem þægi- legast. Auðvitað hefði hún ekki átt að fara í þetta ferðalag. En þar sem læknirinn sagði að það væri í lagi þá ákváðum við að breyta ekki flug- miðunum. Auðvitað hlustuðum við á lækninn. Hann er með sérþekk- ingu, ekki við,“ segir Knútur. Þess vegna óraði þau ekki fyrir símtalinu sem þau fengu frá systur Dayönu, sem tók á móti móður þeirra á flug- vellinum í Salvador, tæpum sólar- hring eftir að þau kvöddu hana í München. Rússnesk rúlletta „Ferðalag Önu gekk vægast sagt mjög illa. Hún átti erfitt með að hreyfa sig sem læknar í Brasilíu vilja meina að hafi í raun bjargað henni þar sem blóðtappar geta farið á flakk um líkamann við hreyfingu. Það þurfti að klippa buxurnar af henni í síðasta flug- inu, þær voru orðnar svo þröngar. Þegar Ana komst loks á leiðarenda gat hún með engu móti stigið í fót- inn. Henni var því ekið beinustu leið á sjúkrahús. Læknirinn sem tók á móti Önu átt ekki til aukatekið orð þegar hann heyrði sögu henn- ar. Þegar hann fann svo þrjá blóð- tappa í fætinum sagði hann að það væri kraftaverk að hún væri enn á lífi. Það væri lífshættulegt að fljúga með einn blóðtappa. Hvað þá þrjá,“ segir Knútur og viðurkennir að þeim hjónum hafi verið gríðar- lega brugðið þegar þau fréttu af því að Ana væri komin á sjúkrahús í Salvador. „Við treystum lækninum 100 prósent. Það eru mistök sem við þurfum að glíma við það sem eftir er. En hugsaðu þér. Þetta var bara eins og rússnesk rúlletta. Hvort hún kæmist lífs eða liðin frá því að heimsækja dóttur sína til Íslands.“ Þá segir Dayana: „Það var ekkert gert fyrir hana. Auðvitað átti að senda okkur beint á bráðamóttökuna og láta okkur af- lýsa fluginu. Hann talaði aldrei um að hún gæti verið með blóðtappa sem er ástæðan fyrir því að fóturinn á henni bólgnaði svona upp. Hún var allan tímann með blóðtappa en ekki bjúg. Ferðalagið hefði getað drepið mömmu. Það get ég aldrei fyrirgefið. Ég er ekki læknir og hafði enga hugmynd um hvernig þetta hefði getað endað,“ segir Dayana sem er alls ekki sátt við svarið frá Embætti landlæknis þar sem henni þykir mál móður sinnar skýrt dæmi um alvarleg læknamistök. Betur hefur gengið hjá Önu en ætla mátti í fyrstu en ástand hennar var mjög alvarlegt fyrst eftir komuna til Brasilíu. Hún var nýlega útskrifuð af sjúkrahúsi og er farin að vinna hluta úr degi. n Mikil bólga Á þessari mynd sést hversu bólginn vinstri fóturinn var. Síðar kom í ljós að Ana var með þrjá blóðtappa. Ósátt „Auðvitað átti að senda okkur beint á bráðamóttökuna og láta okkur aflýsa fluginu,“ segir Dayana. Mynd SigtRygguR ARi „En hugsaðu þér. Þetta var bara eins og rússnesk rúlletta. Hvort hún kæmist lífs eða liðin frá því að heimsækja dóttur sína til Íslands. Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is · Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré. · Mikið úrval efna, áferða og lita. · Framleiðum eftir óskum hvers og eins. · Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði. BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Í takt við tímann • Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa. • Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum. frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.