Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Page 13
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Fréttir 13
Hrafninn og rjúpan
- þjóðleg og falleg gjöf
Graf.is - sími: 571 7808 / Lilja Boutique hf. - 18 rauðar rósir, Kópavogi
graf.is/design
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd
„Það var ótrúlega gaman að fylgjast
með Íslendingunum í gær sem voru
að grafa sig út úr húsunum sínum. Get
alveg fullyrt að ég hef aldrei séð annað
eins. Þetta verður líklega það fyrsta
sem við segjum fólki þegar við komum
aftur heim,“ segir Megan Pankrafz sem
kom ásamt eiginmanni sínum, Mark, í
langa helgarferð til Íslands síðastliðinn
fimmtudag. Ástæðan er sú að þau fengu
mjög gott verð á beinu flugi frá Minnea-
polis til Keflavíkur.
„Snjórinn sem kyngdi niður að-
faranótt sunnudags setti mikinn svip á
ferðina. Það er líka svo fallegt hérna. Í
kvöld ætlum við svo í norðurljósaferð og á
morgun förum við í Bláa lónið.
Í morgun fórum við í svona „hop on hop
off“-rútuferð um höfuðborgarsvæðið. Við
lærðum heilmargt á þeim klukkutíma sem
ferðin tók. Við erum líka mjög spennt að fara
í Bláa lónið. Sem sagt við erum að missa
okkur í því að vera túristar þar sem þetta er í
fyrsta skiptið sem við komum.“
Hjónin eru ánægð með hvað miðbærinn
í Reykjavík er lítill þar sem þau þurfa ekki að
leigja sér bíl til að komast á milli staða. „Við
erum ömurlegir bílstjórar. Veit ekki heldur
hvernig þetta hefði farið ef við hefðum leigt
bíl í öllum þessum snjó. Heppin þið segi ég
nú bara.“
Megan kveðst sömuleiðis mjög ánægð
með þá veitingastaði sem hún hefur borðað
á í miðbæ Reykjavíkur. „Það er rosalega
góður matur hérna. Ég á líka eftir að mæla
með veitingastöðunum ykkar við vini okkar
þegar við komum aftur heim.“
Aðspurð hvort þeim þyki Reykjavík dýr
borg svarar Mark því að honum þyki verð-
lagið ekkert mikið hærra en það sem þau eru
vön. Þau vissu ekki mikið um Ísland áður en
þau komu en ódýr flugmiði gerði að verkum
að þau létu slag standa. Þau segjast alls
ekki sjá eftir því enda hafi ferðalagið farið
fram úr þeirra björtustu vonum.
Ali Aboulala, Alsír
„Ég var nú bara að vakna. Ég kom til Íslands eldsnemma í morgun en vegna þess að það
er snjór yfir öllu þá átti ég í miklum vandræðum með að finna leiðina að hostelinu sem
ég gisti á þar sem allir göngustígar eru ófærir. Ég gekk í hringi um miðbæinn í góðar tvær
klukkustundir og fann ekki hostelið fyrr en um klukkan 11 í morgun. Ég tímdi þó ekki að
eyða miklum tíma í að sofa enda hef ég bara daginn í dag og morgundaginn.“
Þetta segir Ali Aboulala sem er einn á ferðalagi um Evrópu. Fyrst fór hann frá
heimalandi sínu til Barcelona þaðan sem hann kom til Íslands árla mánudagsmorguns.
Þá ætlar hann til Kaupmannahafnar, Posnan í Póllandi og Prag í Tékklandi áður en hann
flýgur aftur til Barcelona og svo heim til Alsír.
„Þó svo að ég sé bara nýkominn þá get ég fullyrt að ég hef aldrei séð neitt eins og
Ísland. Þetta er gjörólíkt öllum þeim stöðum sem ég hef komið á í heiminum og þeir eru
orðnir ansi margir.“
Hann kveðst ferðast mikið en hann reynir að heimsækja nokkur ný lönd í hverri ferð.
Aðspurður hvað hafi vakið áhuga hans á Íslandi segir Ali að það hafi verið gott gengi
íslenska karlalandsliðsins á EM í fyrrasumar.
„Þeir voru ótrúlegir. Síðan fór ég að skoða þetta litla land og ákvað í framhaldinu að
heimsækja það. Ég hlakka mikið til að skoða mig um hérna. Því miður var uppselt í Bláa
lónið þegar ég ætlaði að panta en ég fer í eitthvert annað lón. Það kemur bílstjóri frá
einhverju ferðaþjónustufyrirtæki á morgun og sækir mig. Í dag ætla ég hins vegar bara
að halda mig í miðborginni og njóta þess að vera kominn.“
Megan og Mark Pankraf, Minnesota
í Bandaríkjunum