Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 14
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201714 Fréttir
Launa- og bónusskrið
stjórnenda Íslandsbanka
n Bankinn lofar 430 milljóna bónus n Birna verið langlaunahæst frá yfirtöku ríkisins
Á
rslaun Birnu Einarsdóttur,
bankastjóra Íslandsbanka,
hækkuðu um 5,4 milljónir
króna milli ára og
frammistöðutengdar greiðsl
ur hennar hækkuðu um 26% frá ár
inu 2015. Bónusgreiðslur til átta
framkvæmdastjóra bankans hækk
uðu um ríflega 36% milli ára. Alls
skuldbatt bankinn sig til að greiða
starfsmönnum 430 milljónir króna í
bónusgreiðslur í fyrra.
Þetta er meðal þess sem fram kem
ur í nýbirtum ársreikningi Íslands
banka, sem er að fullu í eigu ríkis ins
og hefur verið síðan Samkeppnis
eftirlitið samþykkti breytingu á yfir
ráðum hans í mars 2016 þegar
Glitnir hf. undirritaði nauðasamn
ing um að framselja 95% eignarhlut
sinn í bankanum til íslenska ríkis
ins sem hluta af stöðugleikaframlagi.
Síðan þá hefur bankastjóri Íslands
banka í raun verið langlaunahæsti
ríkisstarfsmaðurinn, með ríflega
fjórar milljónir króna í mánaðarlaun.
Skákar hún þar sjálfum forseta Ís
lands sem kjararáð ákvarðaði tæpar
þrjár milljónir króna í mánaðarlaun
í umdeildum úrskurði í nóvember í
fyrra. Sömuleiðis er bankastjórinn
með tveimur milljónum meira en
forsætisráðherra á mánuði.
Launin munu ekki lækka
Launakjör Birnu Einarsdóttur hafa
verið til umfjöllunar eftir að kjara
ráð ákvarðaði laun hennar með úr
skurði í síðustu viku. En líkt og DV
greindi frá mun sú ákvörðun, sem
hefði lækkað mánaðarlaun Birnu
um helming, aldrei koma til fram
kvæmda vegna þess að til að laun
Birnu, samkvæmt ákvörðun kjara
ráðs, þarf fyrst að segja upp ráðn
ingarsamningi hennar við bankann
þar sem kveðið er á um 12 mánaða
uppsagnarfrest. Í millitíðinni, eða í
júlí næstkomandi, taka gildi nýjar
lagabreytingar um kjararáð þar
sem ákvörðunarvald yfir launum
bankastjóra verður fært aftur und
ir stjórn bankans. Stjórn bankans
þykir af yfirlýsingum sínum ólíkleg
til að lækka laun Birnu jafn hraust
lega og kjararáð.
Hækkuðu töluvert milli ára
Árslaun Birnu námu árið 2015
43,7 milljónum króna en við það
bættust síðan 7,2 milljónir króna
í frammistöðutengdar greiðslur.
Samkvæmt ársreikningi 2016 námu
árslaun hennar 49,1 milljón króna
í fyrra og bónusgreiðslurnar höfðu
hækkað verulega, upp í 9,1 milljón
króna. Birna var því með tæplega
4,1 milljón króna í mánaðarlaun
og þáði 1,9 milljónum króna hærri
bónusgreiðslur en árið áður.
Afkoman lakari
Þessar hækkanir, á bæði launum og
frammistöðutengdum greiðslum,
eru athyglisverðar í ljósi afkomu
bankans. Samkvæmt ársreikningi
dróst hagnaður bankans eilítið
saman á síðasta ári frá árinu 2015.
Hagnaður nam 20,2 milljörðum
króna í fyrra en 20,6 milljörðum
árið 2015. Þá dróst afkoma bank
ans af reglulegri starfsemi saman,
var 15,1 milljarður króna, saman
borið við 16,2 milljarða árið áður.
Arðsemi eigin fjár lækkaði einnig
í 10,2% samanborið við 10,8% árið
2015. Hreinar vaxtatekjur hækkuðu
þó um 14% og hreinar þóknunar
tekjur hækkuðu um hálfan milljarð
og voru í fyrra 13,7 milljarðar.
4,9 milljónir í bónus á mann
En það voru ekki aðeins laun Birnu
sem tóku slíkum stakkaskiptum
milli ára. Framkvæmdastjórar
bankans, sem eru átta talsins, hækk
uðu sömuleiðis í launum. Laun og
bónusgreiðslur framkvæmdastjór
anna eru ekki sundurliðuð í árs
reikningi og aðeins birtar heildar
tölur. Árslaun þeirra voru alls 221,3
milljónir króna árið 2015 en voru
232,3 milljónir i fyrra.Sem ger
ir 5% hækkun á heildarárslaunum.
Frammistöðutengdu greiðslurnar
hækkuðu þó umtalsvert meira eða
um 36,7%. Framkvæmdastjórarnir
átta fengu 11 milljónum meira í
bónus í fyrra en árið áður. Heildar
greiðslur til þeirra námu 29,1 millj
ón (3,6 milljónum á mann) árið
2015 en voru 39,8 milljónir (4,9
milljónir á mann) í fyrra.
430 milljónir í bónusa í fyrra
Alls skuldbatt Íslandsbanki sig til
að greiða 430 milljónir króna á
síðasta ári vegna frammistöðu
tengdra greiðslna til starfsmanna
fyrirtækisins og dótturfélaga. Þar
af námu bónusgreiðslur til átta
framkvæmdastjóra bankans og
bankastjóra 48,9 milljónum króna.
Bónusgreiðslur bankans hækkuðu
um 52 milljónir á milli ára, eða um
13,7%, miðað við að þær námu 378
milljónum króna árið 2015 líkt og
DV hefur áður fjallað um. n
Launahækkun
lykilstjórnenda
Birna Einarsdóttir, bankastjóri:
n Árslaun 2015: 43,7 milljónir kr.
n Árslaun 2016: 49,1 milljón kr.
n Hækkun á árslaunum:
5,4 milljónir (12,3%)
n Bónusgreiðslur 2015: 7,2 milljónir kr.
n Bónusgreiðslur 2016: 9,1 milljón kr.
n Hækkun á bónus: 1,9 milljónir (26%)
Laun framkvæmdastjóra (8)
n Árslaun 2015: 221,3 milljónir kr.
n Árslaun 2016: 232,3 milljónir kr.
n Hækkun á heildarárslaunum:
11 milljónir kr. (5%)
n Bónusgreiðslur 2015: 29,1 milljón kr.
(3,6 milljónir á mann)
n Bónusgreiðslur 2016: 39,8 milljónir kr.
(4,9 milljónir á mann)
n Hækkun á bónusgreiðslum:
10,7 milljónir kr. (36,7%)
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Elín Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
VÍB.
Sverrir Örn
Þorvaldsson
Framkvæmdastjóri
áhættustýringar.
Jón Guðni
Ómarsson
Framkvæmdastjóri
fjármálasviðs.
Sigríður Olgeirs-
dóttir Fram-
kvæmdastjóri
rekstrar- og upplýs-
ingatæknisviðs.
Björgvin Ingi
Ólafsson Fram-
kvæmdastjóri við-
skipta og þróunar.
Vilhelm Már
Þorsteinsson
Framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs.
Tryggvi Björn
Davíðsson
Framkvæmdastjóri
markaða.
Una Steins-
dóttir Fram-
kvæmdastjóri við-
skiptabankasviðs.
MynDIr ÍSLAnDSBAnkI.IS
Birna Einars-
dóttir Bankastjóri
Íslandsbanka. MynD
ÞOrMAr VIGnIr GUnnArSSOn
Framkvæmdastjórn
Íslandsbanka Árslaun
framkvæmdastjóranna
átta og bankastjórans
námu 281 milljón króna
árið 2016. Frammistöð-
utengdar greiðslur
níumenninganna námu
tæpum 49 milljónum.
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu gómsætar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka
Frosið hrefnukjöt
fæst í næstu verslun
Marinerað
& ÓMarinerað
hreFnukjöt