Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Qupperneq 16
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201716 Fréttir Erlent Gæti þjóðernispopúlisti orðið forseti Frakklands? n Le Pen líkleg til að sigra í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna n Mundi gjörbreyta samfélaginu E ftir sigur Donalds Trump í bandarísku forsetakosn- ingunum og eftir sigur út- göngusinna í Brexit-kosn- ingunum í Bretlandi, gæti þá frambjóðandi öfgahægriflokks orðið forseti í Frakklandi? Stjórn- málaskýrendur vilja ekki útiloka að Marine Le Pen, leiðtogi hinnar þjóð- ernispopúlísku Þjóðfylkingar, Front National, gæti haft sigur í frönsku forsetakosningunum en fyrri umferð þeirra fer fram 23. apríl næstkom- andi. Hægriöfgar gegn múslimum Þjóðfylkingin, sem er hægriöfga- sinnaður og þjóðernispopúlískur flokkur sem er andsnúinn innflytj- endum, hefur talað gegn Evrópu- sambandinu og evrunni og rekur einangrunarhyggju í Frakklandi. Þá hefur flokkurinn, og þar með talið Le Pen, talað opinskátt gegn múslimum. Staða flokksins í frönsk- um stjórnmálum hefur styrkst veru- lega síðustu misseri og er það meðal annars rekið til hryðjuverkaárásanna í Frakklandi, árásanna á ritstjórnar- skrifstofur Charlie Hebdo, árásanna í París og hryðjuverkanna í Nice. Le Pen hefur styrkst Kannanir síðustu vikna sýna að Le Pen hefur styrkt stöðu sína í barátt- unni um forsetastólinn. Í könnun sem birt var í síðustu viku mældist hún með 26 prósenta stuðning. Emmanuel Macron, frambjóðandi En Marche! og fyrrverandi ráðherra sósíalista í stjórn Manuel Valls for- sætisráðherra, mælist nú óvænt með 22 prósenta stuðning. Á sama tíma mældist íhaldsmaðurinn François Fillon, fyrrverandi forsætisráðherra Lýðveldisflokksins, sem lengi vel var í forystu í kosningabaráttunni, með 21 prósents stuðning. Kosn- ingabarátta Fillon varð fyrir veru- legu höggi í byrjun árs þegar settar voru fram ásakanir um að hann hefði greitt konu sinni og tveimur börnum yfir 100 milljónir króna, um 900.000 evrur, í launagreiðslur fyrir störf sem þau sinntu ekki í raun og veru. Benoit Hamon, frambjóðandi Sósíal ista, var síðan fjórði með 16 prósenta stuðning. Myndi tapa seinni umferðinni En þrátt fyrir þessar tölur er annað upp á teningnum þegar kemur að annarri umferð forsetakosninganna sem fram fara 7. maí, að því gefnu að enginn einn frambjóðandi nái meirihlutakosningu. Fari svo munu tveir efstu frambjóðendurnir takast á að nýju. Þó talið sé mjög líklegt, mið- að við þróun skoðanakannana síð- ustu vikna, að Le Pen hafi sigur í fyrri umferðinni benda kannanir eindreg- ið til þess að bæði Macron og Fillon myndu hafa betur í þeirri síðari. Í nýjustu könnunum er því spáð að Macron myndi fá 59 prósent atkvæða ef þau Le Pen tækjust á í seinni um- ferðinni. Fillon myndi hljóta 58 pró- sent atkvæða. Hins vegar er rétt að taka fram að Le Pen hefur sótt á þá báða frá því í könnunum sem birtar voru í byrjun þessa mánaðar. Ekki óþekkt staða Þetta er ekki í fyrsta skipti sem for- setaframbjóðandi með eftirnafnið Le Pen hristir upp í frönskum stjórn- málum. Árið 2002 varð faðir Marine Le Pen, Jean-Marie Le Pen, í öðru sæti í fyrri umferð forsetakosning- anna á eftir sitjandi forseta Jacques Chirac. Jean-Marie Le Pen stofnaði einmitt Þjóðfylkinguna og var for- maður flokksins sem var á þeim tíma enn öfgasinnaðri en í dag. Í seinni umferðinni hvöttu hins vegar nálega allir franskir stjórnmálamenn stuðn- ingsmenn flokka sinna til að kjósa gegn Le Pen, bæði vinstrimenn og hægrimenn. Chirac hafði því sigur með heilum 82 prósentum atkvæða. Stjórnmálaskýrendur eru margir á þeirri skoðun að þetta verði raun- in nú einnig. Komist Marine Le Pen í aðra umferð kosninganna, eins og flest bendir til, fylki menn liði gegn henni og hún eigi ekki möguleika á sigri. Ekki á vísan að róa En það eru þó ekki allir sannfærðir um að svo fari. Bent er á að fram- bjóðendur vinstri flokkanna, Hamon og Jean-Luc Mélenchon, hafi saman- lagt um og yfir 25 prósenta stuðning. Ekki sé hægt að treysta því fullkom- lega að stuðningsmenn þeirra muni greiða atkvæði með andstæðingi Le Pen, hver sem það verður. Þannig er bent á að í sveitarstjórnarkosn- ingunum 2014 hafi Þjóðfylkingin unnið stórsigur víða þar sem sósía- listar höfðu áður ráðið lögum og lof- um. Því sé ekki á vísan að róa í þess- um efnum. Færi svo að Le Pen hefði sigur óttast menn afleiðingarnar mjög. Því er spáð að það myndi þýða fall evrunnar og jafnvel endalok. Þá óttast menn einnig að Frakkland gæti tekið ákvörðun um útgöngu úr Evrópusambandinu, að Frexit gæti orðið að veruleika. Það myndi gjör- breyta Evrópu. n Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is Le Pen ávarpar stuðningsmenn Gæti hægriöfgamanneskja orðið forseti Frakklands? Stjórnmálaskýrendur vilja ekki útiloka að Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar, gæti haft sigur í kosningunum. Nýtur stuðnings Emmanuel Macron, frambjóðandi En Marche!, mælist nú með 22 prósenta stuðning. MyNd EPA Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16 Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is Blóm og gjafavara við öll tækifæri Góð og persónuleg þjónusta Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.