Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Blaðsíða 18
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201718 Fréttir Erlent
Nettröll fékk það óþvegið
n Bradley fékk óþægileg skilaboð árið 2012 n Undi sér ekki hvíldar fyrr en réttlætinu var fullnægt
B
radley Cohen, eigandi
bandarísks fjárfestingafélags,
fær tæpar 40 milljónir
Bandaríkjadala í bætur, eða
sem nemur rúmum fjórum
milljörðum króna, eftir að hafa orðið
fyrir barðinu á nettrölli sem fór
langt með að leggja líf hans í rúst.
Málið hefur vakið talsverða athygli
í Bandaríkjunum enda varði Cohen
nokkrum árum og milljónum dala í
að endurheimta mannorð sitt.
Óþægileg skilaboð
Það var árið 2012 að Cohen var á
ferðalagi ásamt eiginkonu sinni
í Evrópu. Cohen hafði helgað líf
sitt fjárfestingafélagi sínu, Cohen
Asset Management Inc., sem einna
helst beindi sjónum sínum að
fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum
og hafði Cohen þénað vel á því. Það
var svo þennan dag árið 2012 að hann
fékk veður af því að um netið gengi
grein þar sem því var haldið fram að
starfsemi hans væri ekkert annað
en pýramídasvindl. „Er Bradley S.
Cohen næsti Bernie Maddoff?“ var
fyrirsögn greinarinnar með vísan í
fjársvikarann Bernie Maddoff sem
sveik 65 milljarða Bandaríkjadala út
úr viðskiptavinum sínum. Maddoff
þessi var dæmdur í 150 ára fangelsi
árið 2009.
Sagður „svindlari“ og „þjófur“
Í umræddri grein sem gekk um netið
var því ranglega haldið fram að Cohen
hefði áður hlotið dóm fyrir fjársvik og
peningaþvætti. Hann var kallaður
„lygari“, „þjófur“ og „svindlari“ og
fólk var hvatt til þess að hafa varann á
í samskiptum við hann, að því er segir
í umfjöllun Wall Street Journal um
málið. Þegar Cohen sló nafn sitt inn
í leitarvél Google var umrædd grein
fyrsta niðurstaðan sem birtist og
áhrifin voru ekki lengi að koma fram.
Hægt og bítandi fóru viðskiptavinir
hans að leita annað enda töldu þeir
að hagsmunum sínum væri betur
borgið annars staðar en í viðskiptum
við meintan svindlara.
Lagðist í rannsóknarvinnu
Í stað þess að láta greinina sem
vind um eyru þjóta ákvað Cohen að
leita allra leiða til að endurheimta
mannorð sitt. Hann lagðist í mikla
rannsóknarvinnu, fékk teymi
sérfræðinga til að finna uppruna
síðunnar og lagði talsverða fjármuni
í að reyna að koma því þannig fyrir
að síðan kæmi ekki upp á fyrstu
síðu þegar nafn hans var slegið inn í
Google. Þó að þessi vinna hafi verið
seinvirk og kostnaðarsöm – hann
varði sem nemur 300 milljónum
króna í málið – borgaði hún sig að
lokum. Í ljós kom að maður að nafni
Ross Hansen hafði stofnað síðuna til
að hefna sín á Cohen.
Ósætti vegna mengunar
Hansen þessi var stofnandi
stálframleiðslufyrirtækis í Seattle,
Northwest Territorial Mint, en
fyrirtækið leigði húsnæði og lóð af
Cohen undir hluta starfsemi sinnar.
Fyrirtækið hafði komið sér ágætlega
fyrir og lét Hansen útbúa sérstaka tjörn
á lóðinni undir skjaldbökur sem hann
átti. Þegar skjaldbökurnar drápust
óvænt vildi Hansen að leigusalinn,
fyrirtæki Cohens, skoðaði málið
þar sem hann taldi að svæðið væri
mengað. Forsvarsmenn Cohen Asset
Management töldu að mengunin
stafaði frá fyrirtæki Hansen og undir
það tók dómari þegar málið kom til
kasta dómstóla. Fyrirtæki Hansen
var talið skaðabótaskylt og fór svo að
því var gert að greiða sem nemur 300
milljónum króna í bætur.
Hótanir og FBI
Hansen var ósáttur við þessi málalok
og til að ná sér niðri á Cohen stofnaði
hann umrædda síðu og lagðist í
herferð til að draga Cohen niður í
svaðið. Greinin var ekki það eina
sem Hansen stóð á bak við því
ýmsar hótanir fylgdu einnig með auk
þess sem fleiri vefsíður skutu upp
kollinum.
Það voru rannsakendur á vegum
Cohens og fulltrúar bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, sem komust
að hinu sanna í málinu. Dómur féll
undir lok síðasta árs á þann veg að
Bradley fær 38,3 milljónir dala í bætur.
Hansen viðurkenndi fyrir dómi að
kveikjan að þessari herferð gegn
Cohen og fyrirtæki hans hafi verið
umrætt dómsmál þar sem honum
var gert að greiða 300 milljónir króna.
Þá hefði hann einnig verið reiður
vegna örlaga skjaldbakanna sem
drápust í tjörninni. Í umfjöllun Wall
Street Journal kemur fram að Cohen
hafi ekki enn fengið krónu af þeim
38 milljónum dala sem honum voru
dæmdar í bætur. Hann er þó þegar
farinn að eyða peningunum – að
minnsta kosti hluta af þeim – og hefur
hann til að mynda keypt vefsíðurnar
sem notaðar voru gegn honum. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Hafði betur Líf Cohens umturnaðist
árið 2012 þegar hann að ósekju var sagður
fjársvikari.
Herferð Það getur verið erfitt að eiga
við einstaklinga sem svífast einskis til
að valda skaða í gegnum netið. Bradley
fór þó alla leið og sigraði.
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
„Gerum íslensku
að leiðandi
tungumáli á
vinnustöðum”
Aneta Matuszewska
Skólastjóri og eigandi
Retor Fræðslu
Hafið samband í
síma 519 4800 eða
á retor@retor.is