Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 27
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Kynningarblað - Úr og skartgripir 7 Aldagamlar hefðir og nýmóðins silfursmíð, allt í einni kistu Gullkistan smíðar eftir þrjú hundruð ára gömlu stokkabelti A ð koma í Gullkistuna á Frakkastíg er svolítið eins og að kíkja í kistu fulla af gulli og gersemum. Bak við búðarborðið er hún Dóra Jóns- dóttir, núverandi eigandi og gull- smiður. Dóra man tímana tvenna í sögu gullsmíði á Íslandi en hún byrjaði að læra fagið árið 1949 og hefur starfað í Gullkistunni síðan þá. Gullkistuna má líklega titla sem elsta gullsmíðaverkstæði á Íslandi en það var upphaflega stofnað árið 1870 af gullsmiðnum Erlendi Magnússyni. Þá var versl- unin staðsett að Þingholtsstræti. Í Gullkistunni hefur verið unnið það góða starf að viðhalda hefðum í skartgripagerð og vinna með gamla víravirkið sem og aldagömul mynstur. Gullkistan er þekktust fyrir smíði á skarti fyrir þjóðbúninga út frá gömlum mynstrum og myndum sem Erlendur safnaði á sínum tíma en mótin, sem gerð voru fyrir sand- steypu, fylgdu verkstæðinu. Enn er farið eftir þessum gömlu mynstrum, en gömlu mótin eru nú komin í varðveislu á Árbæjarsafni. Varðveita þekkinguna Aðspurð hvort gamla handverkið sé nokkuð að glatast segir Dóra að það sé síður en svo hætta á því. „Gömlu hefðunum hefur alltaf verið haldið vel við hér á landi. Við höfum haft þónokkra lærlinga hjá okkur sem varðveita þekkinguna og þannig mun handverkið varðveitast áfram um ókomna tíð.“ Ásamt því að vera einn helsti fulltrúi þjóðbúninga- silfursins á Íslandi þá sinnir Gull- kistan að sjálfsögðu almennri þjón- ustu við gullsmíði svo sem hreinsun og lagfæringu og framleiðir ýmsa fallega gripi út frá eigin hönnum, enda leikur málmurinn í fagmann- legum höndum Dóru. Mynstrin löngu orðin íslensk Eins og áður sagði þá hann- ar Gullkistan meðal annars skart út frá eldgömlum mynstrum sem rekja rætur sínar langt aftur í ald- ir. Dóra má heita nokkurs kon- ar sérfræðingur í þessum gömlu mynstrum og hún tekur strax til við að fræða blaðamann um efnið. „ Myndirnar í mynstrinu segja okkur sögur af riddurum og hetjum í bar- dögum á þjóðflutningatímanum. Þessi mynstur eru líklega frá mið- öldum eða jafnvel eldri og voru að berast hingað smátt og smátt frá meginlandinu. Þeim fylgja engar skýringar og vinna menn hörðum höndum að því að rannsaka upp- runa þeirra. Mynstrin eru nú mörg hver löngu orðin íslensk þar sem þau hafa verið smíðuð hér í mörg hundruð ár. Dæmi er um stokka- belti á Þjóðminjasafninu í Kaup- mannahöfn sem er líklega orðið þrjú hundruð ára gamalt og svo eru sams konar belti á Þjóðminjasafni Íslands frá 16. öld,“ segir Dóra. Aldagömul stokkabelti og nýmóðins tunnel-lokkar Í Gullkistunni hefur engu verið gleymt og gömlu hefðunum ætíð verið haldið þar við. Hjá Dóru er meðal annars hægt að fá eins stokkabelti og það sem finnst á Þjóðminjasafninu í Kaupmanna- höfn. Einnig hannar Dóra ný mynstur út frá gömlu mynstrun- um og notar við smíðar skarts. Svo smíðar hún einnig ýmiss konar ný- móðins skartgripi af mikilli list. Þess má geta að Dóra hefur ekki látið sitt eftir liggja í „tunnel“-æðinu sem gripið hefur landann að undan- förnu, en í Gullkistunni má finna dýrindis silfurlokka sem prýða slík eyrnagöt vel. Verslunin er staðsett á Frakkastíg 10. Opið alla virka daga frá kl. 14.00 til 18.00 og laugardaga frá kl. 11.00 til 14.00. Sími: 551-3160 Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um versl- unina á heimasíðu verslunarinnar. n Tunnel-lokkur Tunnel-lokkur Mynd HeiðA HelgAdóTTir Mynd HeiðA HelgAdóTTir dóra Jónsdóttir Eigandi Gullkistunnar. Mynd ÞorMAr Vignir gunnArsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.