Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Page 27
Vikublað 28. febrúar–2. mars 2017 Kynningarblað - Úr og skartgripir 7
Aldagamlar hefðir og nýmóðins
silfursmíð, allt í einni kistu
Gullkistan smíðar eftir þrjú hundruð ára gömlu stokkabelti
A
ð koma í Gullkistuna
á Frakkastíg er svolítið
eins og að kíkja í
kistu fulla af gulli og
gersemum. Bak við
búðarborðið er hún Dóra Jóns-
dóttir, núverandi eigandi og gull-
smiður. Dóra man tímana tvenna
í sögu gullsmíði á Íslandi en hún
byrjaði að læra fagið árið 1949 og
hefur starfað í Gullkistunni síðan
þá. Gullkistuna má líklega titla
sem elsta gullsmíðaverkstæði á
Íslandi en það var upphaflega
stofnað árið 1870 af gullsmiðnum
Erlendi Magnússyni. Þá var versl-
unin staðsett að Þingholtsstræti.
Í Gullkistunni hefur verið unnið
það góða starf að viðhalda hefðum
í skartgripagerð og vinna með
gamla víravirkið sem og aldagömul
mynstur. Gullkistan er þekktust fyrir
smíði á skarti fyrir þjóðbúninga út
frá gömlum mynstrum og myndum
sem Erlendur safnaði á sínum tíma
en mótin, sem gerð voru fyrir sand-
steypu, fylgdu verkstæðinu. Enn er
farið eftir þessum gömlu mynstrum,
en gömlu mótin eru nú komin í
varðveislu á Árbæjarsafni.
Varðveita þekkinguna
Aðspurð hvort gamla handverkið sé
nokkuð að glatast segir Dóra að það
sé síður en svo hætta á því. „Gömlu
hefðunum hefur alltaf verið haldið
vel við hér á landi. Við höfum haft
þónokkra lærlinga hjá okkur sem
varðveita þekkinguna og þannig
mun handverkið varðveitast áfram
um ókomna tíð.“ Ásamt því að vera
einn helsti fulltrúi þjóðbúninga-
silfursins á Íslandi þá sinnir Gull-
kistan að sjálfsögðu almennri þjón-
ustu við gullsmíði svo sem hreinsun
og lagfæringu og framleiðir ýmsa
fallega gripi út frá eigin hönnum,
enda leikur málmurinn í fagmann-
legum höndum Dóru.
Mynstrin löngu orðin íslensk
Eins og áður sagði þá hann-
ar Gullkistan meðal annars skart
út frá eldgömlum mynstrum sem
rekja rætur sínar langt aftur í ald-
ir. Dóra má heita nokkurs kon-
ar sérfræðingur í þessum gömlu
mynstrum og hún tekur strax til
við að fræða blaðamann um efnið.
„ Myndirnar í mynstrinu segja okkur
sögur af riddurum og hetjum í bar-
dögum á þjóðflutningatímanum.
Þessi mynstur eru líklega frá mið-
öldum eða jafnvel eldri og voru að
berast hingað smátt og smátt frá
meginlandinu. Þeim fylgja engar
skýringar og vinna menn hörðum
höndum að því að rannsaka upp-
runa þeirra. Mynstrin eru nú mörg
hver löngu orðin íslensk þar sem
þau hafa verið smíðuð hér í mörg
hundruð ár. Dæmi er um stokka-
belti á Þjóðminjasafninu í Kaup-
mannahöfn sem er líklega orðið
þrjú hundruð ára gamalt og svo eru
sams konar belti á Þjóðminjasafni
Íslands frá 16. öld,“ segir Dóra.
Aldagömul stokkabelti og
nýmóðins tunnel-lokkar
Í Gullkistunni hefur engu verið
gleymt og gömlu hefðunum ætíð
verið haldið þar við. Hjá Dóru
er meðal annars hægt að fá eins
stokkabelti og það sem finnst á
Þjóðminjasafninu í Kaupmanna-
höfn. Einnig hannar Dóra ný
mynstur út frá gömlu mynstrun-
um og notar við smíðar skarts. Svo
smíðar hún einnig ýmiss konar ný-
móðins skartgripi af mikilli list. Þess
má geta að Dóra hefur ekki látið sitt
eftir liggja í „tunnel“-æðinu sem
gripið hefur landann að undan-
förnu, en í Gullkistunni má finna
dýrindis silfurlokka sem prýða slík
eyrnagöt vel.
Verslunin er staðsett á Frakkastíg
10. Opið alla virka daga frá kl. 14.00
til 18.00 og laugardaga frá kl. 11.00
til 14.00. Sími: 551-3160 Hægt er að
nálgast frekari upplýsingar um versl-
unina á heimasíðu verslunarinnar. n
Tunnel-lokkur
Tunnel-lokkur
Mynd HeiðA HelgAdóTTir
Mynd HeiðA HelgAdóTTir
dóra Jónsdóttir
Eigandi Gullkistunnar.
Mynd ÞorMAr Vignir gunnArsson