Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 30
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201722 Fólk
Nýjar vörur
La La Land sigurvegari
þrátt fyrir slæm mistök
Óskarsverðlaunin voru afhent í 89. skipti á sunnudagskvöld
Ó
skarsverðlaunin voru afhent í
Dolby Theatre í Hollywood á
sunnudagskvöld, en þetta var í
89. skipti sem þessi mikla hátíð
er haldin. Mikið var um dýrðir á
hátíðinni sem þó gekk ekki áfallalaust
fyrir sig. Besta myndin var Moonlight
en mistök urðu til þess að nafn La La
Land var lesið upp. Aðstandendur La
La Land ættu þó að geta vel við unað
enda hlaut myndin sex Óskarsverð-
laun, þar á meðal fyrir bestu leikstjórn-
ina, bestu leikkonuna í aðalhlutverki
og bestu tónlistina. Moonlight vann
til þrennra verðlauna á hátíðinni og
Manchester by the Sea til tvennra, þar
á meðal fékk Casey Affleck verðlaun
fyrir besta leik í aðalhlutverki. n
Tók lagið Justin Timberlake tók lagið á hátíðinni við mikinn fögnuð viðstaddra. Justin fékk
tilnefningu fyrir besta frumsamda lagið, Can't Stop the Feeling í teiknimyndinni Trolls, en
verðlaunin fékk lagið City of Stars í myndinni La La Land. Mynd EPA
Ósvikin gleði Þessi börn fengu að vaka aðeins lengur en jafnaldrar þeirra. Þessi
mynd var tekin af kórnemendum Bakats Ter-skólans í Ungverjalandi og fóru þau
með veigamikið hlutverk í myndinni Sing sem var tilnefnd sem besta stuttmyndin.
Myndinni er leikstýrt af Ungverjanum Kristof Deak og hlaut hún verðlaunin í sínum
flokki. Mynd EPA
Ruglingur
Vandræðaleg
uppákoma varð þegar
tilkynnt var um bestu
myndina. Mistök
urðu til þess að nafn
La La Land var lesið
upp en verðlaunin
áttu að koma í hlut
Moonlight. Hér sést
kynnirinn Jimmy
Kimmel útskýra
mistökin. Mynd EPA
Mikil viðurkenning Hér sjást aðstandendur Moonlight sem valin var besta myndin.
Frá vinstri: Jeremy Kleiner, Adele Romanski og leikstjórinn Barry Jenkins. Mynd EPA
Ungur en góður Damien Chazelle var valinn
besti leikstjórinn en hann leikstýrði sem kunnugt er
La La Land. Þess má geta að Chazelle er aðeins 32
ára og er hann yngsti leikstjórinn sem hlýtur þessi
eftirsóttu verðlaun. Hann leikstýrði einnig Ósk-
arsverðlaunamyndinni Whiplash árið 2014. Mynd EPA
Stórleikur Emma Stone þykir sýna stórleik í myndinni La La Land enda hlaut hún Ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn. Þetta eru fyrstu Óskarsverðlaun hennar en hún var tilnefnd
fyrir leik í aukahlutverki árið 2015 fyrir myndina Birdman. Mynd EPA
Bestu leikararnir Óskarsverðlaunin fyrir besta leik komu í hlut þessara
leikara. Mahershala Ali hlaut verðlaun sem besti leikarinn í aukahlutverki
fyrir myndina Moonlight, Emma Stone hlaut verðlaun sem besta leikkonan í
aðalhlutverki fyrir myndina La La Land, Viola Davis fyrir besta leik kvenna í
aukahlutverki fyrir Fences og Casey Affleck fyrir besta leik karla í aðahlutverki
fyrir Manchester by the Sea. Mynd EPA