Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2017, Side 40
Vikublað 28. febrúar–2. mars 201732 Menning
Sannleikur þjóðlífsins
Bókin Í hálfkæringi og alvöru er gefin út í tilefni af 85 ára afmæli Árna Björnssonar
Í
hálfkæringi og alvöru er bók
sem geymir úrval greina, erinda
og ritgerða um margvísleg efni
eftir Árna Björnsson þjóðhátta
fræðing.
„Ég var að taka til, til að firra af
komendur þeim vandræðum að
ákveða hverju ætti að fleygja, og sá
þá að ég átti til heilmikið efni. Spurn
ingin var hvort það ætti að fara í sorp
tunnuna eða í bók. Svo varð úr að
megnið fór í þennan doðrant,“ segir
Árni. Í bókinni er mikið um áður
óbirt efni sem aðeins hefur
verið flutt munnlega, þar á
meðal þættir af einkenni
legum mönnum og pólitísk
þroskasaga höfundar. Elstu
textarnir eru frá skólaárum
höfundar en þeir yngstu frá
síðustu árum.
Sterk efagirni
Þú segir í formála bókarinnar
að þú hafir alltaf haft hneigð
til að draga í efa margt sem
kallað hefur verið almenn
sannindi.
„Þetta gerði mjög snemma
vart við sig. Eftir fermingu og
á menntaskólaárunum fór
ég að draga í efa margt sem
mér hafði sem barni verið
innrætt sem almenn sann
indi, til dæmis varðandi trú
mál og stjórnmál. Ýmislegt
var fullyrt, til dæmis að fólk
væri fátækt af því það nennti
ekki að vinna. Svo sá ég að
fáir unnu meira en einmitt fá
tæka fólkið. Það var hins vegar
ekki sama við hvað fólk vann.
Flinkur verðbréfasali gat hæg
lega haft tífaldar tekjur á við
góðan barnakennara. Ég fór
að spyrja mig hvaða réttlæti
eða vit væri eiginlega í þessu.
Þessi efagirni hefur aldrei
yfirgefið mig. Það er þó alls ekki
þannig að ég sé alltaf fullviss um að
hafa komist að réttri niðurstöðu en
ég tel það þó sennilegra en ýmislegt
sem hefur verið haldið fram. Ég get
tekið lítið dæmi. Við lærðum það í
barnaskóla að Goðafoss hefði feng
ið nafn sitt af því að Þorgeir Ljósvetn
ingagoði hefði kastað goðum sínum
í fossinn. Einhvern tímann ætlaði ég
að vísa í frumheimild þessarar sögu
en fann hana hvergi. Ekki stóð þetta
í Kristnisögu, ekki í Íslendingabók,
ekki í Landnámu og ekki í Ljósvetn
ingasögu. Þetta reyndist vera frásögn
dansks fræðimanns sem var hér seint
á 19. öld og heyrði þessi munnmæli
en Jónas frá Hriflu tók upp og setti
fram sem sannleik í kennslubók fyrir
börn. Og þjóðin vissi ekki betur.“
Breytt viðhorf
Hluti af bókinni er pólitísk ævisaga
þín. Hvenær varðstu vinstri maður?
„Á menntaskólaárunum gerðist
það smám saman. Ég gekk í gegnum
ýmis stig á þeirri braut og viðhorfin
breyttust eftir því sem ég varð reynsl
unni ríkari. Í háskólanum hafði ég
ágæta leiðbeinendur, ögn eldri félaga
mína, menn eins og Jón Böðvarsson
og séra Baldur Vilhelmsson og aðra
sem innrættu mönnum ákveðinn
rétttrúnað. Það skeið stóð þó ekki
nema fáein ár, svo fór ég aftur að
hugsa meira sjálfstætt og það gerðu
þeir reyndar líka.
Meginatriðin standa vissulega
óhögguð eins og til dæmis sú ömur
lega staðreynd að 1 prósent mannkyns
skuli eiga 50 prósent af öllum auðæf
um jarðarinnar. Ég hef aldrei getað
séð neitt réttlæti í því og mig undrar
að alþýðufólk sem hefur þó haft al
mennan kosningarétt í hundrað ár
skuli enn kjósa til að viðhalda þessu
ástandi. Jafnvel greindustu menn láta
eins og þetta sé eðlilegt. Þeir fárast
kannski yfir spillingu sem þó er varla
annað en útvöxtur úr hinu stóra lög
leyfða misrétti. Þeir sem hagnast á
þessu rangláta kerfi hafa reyndar allt í
höndum sér: alla stærstu fjölmiðla og
fréttastofur, allt hervald og útbreidd
ustu trúarstofnanir. Það er vissulega
ekki auðvelt við að eiga fyrir þá sem
reyna að andæfa.“
Hef látið rekast fyrir tilviljunum
Þú ert þekktastur fyrir skrif þín um
þjóðfræði. Vaknaði áhugi þinn á
þeirri grein snemma?
„Þetta varð atvinna mín en kom
ekki af sjálfsdáðum. Það kom þannig
til að ég fór í íslensk fræði í háskólan
um. Það var samkvæmt útilokunar
aðferðinni. Ég vildi ekki fara í læknis
fræði, ekki guðfræði, ekki lögfræði og
þá voru íslensk fræði eftir. Svo fékk
ég skemmtilegt verkefni í málfræði
sem hét Aldur, uppruni og saga ís
lenskra hátíðarnafna. Ég fór að hafa
gaman af þessu og hélt áfram.
Líf mitt hefur verið nokkrum til
viljunum háð. Meðal annars að ég
starfaði hjá Alþjóðasambandi stúd
enta í eitt ár og var sendikennari við
þýska háskóla í 4 ár. Önnur tilvilj
un varð til þess að ég fór að vinna á
Þjóðminjasafninu. Þar losnaði óvænt
staða við þjóðháttadeild vegna þess
að Kristján Eldjárn var kosinn for
seti. Ég hef oft látið rekast fyrir tilvilj
unum og er mjög sáttur við það.“
Hefur ungt fólk áhuga á þjóðfræði?
„Greinilega en mér sýnist að
það sé mjög upptekið af því sem ég
vil kalla dellu, eins og draugatrú og
álfum. Ég er löngu vaxinn upp úr
því. Mér finnst sannleikur þjóðlífsins
yfirleitt enn skemmtilegri þegar farið
er að grúska í honum.“ n
Í hálfkæringi og alvöru Á kápu er mynd sem Sverrir Haraldsson teiknaði
á sínum tíma af Árna. „Það er þó alls ekki
þannig að ég sé
alltaf fullviss um að hafa
komist að réttri niður-
stöðu en ég tel það þó
sennilegra en ýmislegt
sem hefur verið haldið
fram.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Árni Björnsson „Líf mitt
hefur verið nokkrum tilviljunum
háð.“ Mynd Sigtryggur Ari
ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD
MÚRUM & SMÍÐUM ehf
Ertu að fara í framkvæmdir ?
Ekkert verk of smátt né stórt !
Fagleg og góð þjónusta .
Upplýsingar í síma 788 8870 eða
murumogsmidum@murumogsmidum.is TIL
BOÐ
ÞÉ
R A
Ð
KO
STN
AÐA
RLA
USU
!
Múrvinna
Smíðavinna
Málningarvinna
Jarðvinna