Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 26
Vikublað 28.–30. mars 201726 Skrýtið Verstu myndirnar sem unnu Óskarsverðlaun Slógu ekki beint í gegn en unnu samt hin eftirsóttu verðlaun Ó skarsverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn fyrir skemmstu. Þó að hátíðin eigi að verðlauna framúrskarandi kvikmyndagerð hefur það margoft gerst að myndir, sem ekki beint hafa slegið í gegn hjá gagn- rýnendum, hafa unnið til verðlauna. Business Insider tók saman nokkur dæmi um slíkar myndir. n Harry and the Hendersons (1987) Verðlaunuð fyrir: Bestu förðun Einkunn á IMDB: 5,9 Einkunn á Metacritic: 41 Myndin segir frá fjölskyldu sem verður fyrir því óláni að aka á sjálfan Bigfoot. Þeim verður þó vel til vina eftir þetta og verður Bigfoot eins konar gæludýr fjölskyldunnar. Hér er um ágætis fjölskyldumynd að ræða en lítið meira en það. Í umfjöllun Business Insider segir að þótt myndin hafi fengið verðlaun fyrir bestu förðun hafi hún í raun ekki verið upp á marga fiska. How the Grinch Stole Christmas (2000) Verðlaunuð fyrir: Bestu förðun Einkunn á IMDB: 6,0 Einkunn á Metacritic: 46 Þessi mynd naut talsverðrar velgengni á sínum tíma enda var Jim Carrey á hátindi ferils síns á þeim tíma. Myndin hlaut þó ekki sérstaka dóma og er að margra mati í hópi verstu mynda sem hlotið hafa Óskarsverðlaun. Pearl Harbor (2001) Verðlaunuð fyrir: Bestu hljóðvinnsluna Einkunn á IMDB: 6,1 Einkunn á Metacritic: 44 Þessi sögulega stórmynd sem var heilir þrír tímar að lengd segir frá atburðunum á Pearl Harbor árið 1941. Ben Affleck, Josh Hartnett og Kate Beckinsale fóru með aðalhlutverk myndarinnar sem þótti í raun alveg afleit. Þrátt fyrir það var myndin tilnefnd til fjögurra verðlauna en hlaut sem fyrr segir verðlaun fyrir bestu hljóðvinnsl- una. Crash (2004) Verðlaunuð fyrir: Bestu myndina, besta handritið, bestu klippingu Einkunn á IMDB: 7,8 Einkunn á Metacritic: 69 Þessi mynd í leikstjórn Paul Haggis er alls ekki svo slæm, en að flestra mati var hún alls ekki það góð að hún ætti skilið að vinna til Óskarsverðlauna sem besta myndin. Raunin varð hins vegar sú og vann hún til þrennra Óskarsverð- launa í það heila auk þess að hljóta þrjár tilnefningar til viðbótar. The Blind Side (2009) Verðlaunuð fyrir: Bestu leikkonu í aðalhlutverki Einkunn á IMDB: 7,7 Einkunn á Metacritic: 53 The Blind Side segir frá Michael Oher, ungum dreng sem þvert á væntingar gerðist atvinummaður í NFL-deildinni með aðstoð góðhjartaðrar konu. Þessi kona var leikin af Söndru Bullock sem hlaut Óskarinn sem besta leikkona í aðalhlutverki. Þess má geta að myndin var einnig tilnefnd sem besta myndin á hátíðinni árið 2010 en The Hurt Locker hreppti þau verðlaun. The Wolfman (2011) Verðlaunuð fyrir: Bestu förðunina Einkunn á IMDB: 5,8 Einkunn á Metacritic: 43 Óskarsverðlaunaakademían virðist stundum þurfa að grafa djúpt þegar tilnefnt er til verð- launa í flokknum besta förðunin. The Wolfman, með Benicio Del Toro í hlutverki varúlfs, hlaut verðlaunin á hátíðinni 2011 en myndin þótti í raun arfaslök og var varúlfurinn í raun ekkert ógnvekjandi, að sögn gagnrýnenda. Les Miserables (2012) Verðlaunuð fyrir: Bestu leikkonu í aukahlutverki, bestu hljóðvinnslu, bestu förðun og hágreiðslu Einkunn á IMDB: 7,6 Einkunn á Metacritic: 63 Dans- og söngvamyndir hafa lengi átt upp á pallborðið hjá akademíunni og sitt sýnist hverjum um það. Les Miserables hlaut þrenn Óskarsverð- laun á sínum tíma og var tilnefnd til fimm verðlauna til viðbótar. Alls fékk hún átta tilnefningar sem þótti býsna mikið miðað við að myndin þótti alls ekkert framúrskarandi. The Great Gatsby (2013) Verðlaunuð fyrir: Bestu búningahönnun, bestu listrænu stjórnun Einkunn á IMDB: 7,3 Einkunn á Metacritic: 55 The Great Gatsby er mynd sem í raun hafði allt; Leonardo di Caprio, Jay Z, glamúr, djass og morð. Myndin hlaut samt heldur slaka dóma hjá gagnrýnendum og þá virtist almenningur ekki vera allt of hrifinn, að minnsta kosti ef marka má einkunnina á IMDB sem fengin er frá 380 þúsund notendum síðunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.