Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 22
Vikublað 28.–30. mars 201722 Lífsstíll Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan starfsmann. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á steinn@dv.is Þess vegna er strembið að losna við síðustu aukakílóin Næringarfræðingur bendir á algeng vandamál og gefur lausnirnar við þeim M örgum þeirra sem hafa náð góðum árangri í baráttu við offitu hættir til að eiga erfitt með að losna við síð- ustu aukakílóin til að kom- ast í kjörþyngd. Oft eru það þessi síð- ustu 5–10 kíló sem fólk á erfitt með. Næringarfræðingurinn Jessica Levin- son, stofnandi hinnar vinsælu Nutriti- oulicious-vefsíðu, gaf lesendum Men‘s Health góð ráð hvað þetta varðar fyrir skemmstu þar sem hún tók fyrir nokk- ur vandamál, sem fólk stendur frammi fyrir, og lausnir á þeim. n Ekki hætta að borða Vandamál: Að sögn Levinson hættir sumum til að borða allt of lítið, jafnvel minna en 1.200 hitaeiningar á dag, til að ná lokamarkmiði sínu. Hún segir að með þessu geri fólk slæm mistök því líkaminn geti brugðist þannig við að hann hægi verulega á grunnefna­ skiptum sínum, brennslunni með öðrum orðum, til að spara orkuna í líkamanum. Þá fer líkaminn að ganga á vöðva líkamans sem orkugjafa sem kann ekki góðri lukku að stýra. Lausn: Levinson hvetur fólk til að fara varlega og taka ekki of stór skref í einu. Reyndu að forðast mjög hitaeiningaríka fæðu en veldu þess í stað próteinríka fæðu og grænmeti sem dæmi. Passaðu að líkaminn fái það sem hann þarf. „Hollur“ matur er stundum óhollur Vandamál: Stundum er fæða, sem markaðssett er sem hollustuvara, full af sykri og næringarsnauðum hitaeiningum. Þetta á til dæmis við um orkudrykki og svokölluð próteinstykki í sumum tilfellum. „Viðbættur sykur í fæðu getur kallað fram aukna sykurlöngun,“ segir hún. Lausn: Kynntu þér hvað er í fæðunni sem þú lætur ofan í þig. Ef fæðan inniheldur meira en 10 grömm af sykri í hverjum skammti skaltu fá þér eitthvað annað. Ekki forðast alla fitu Vandamál: Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem borða litla fitu hafa meiri matarlyst en til dæmis þeir sem aðhyllast lágkolvetnalífsstíl. Samt er því oft haldið fram að fólk þurfi að forðast fitu eins og heitan eldinn. „Fita er mjög mikilvæg vegna þess að hún hægir á meltingunni og heldur aftur af hækkun blóðsykurs,“ segir Levinson sem bætir við að fituríkari fæða haldi manni söddum lengur en ella. Það gerir að verkum að maður er síður líklegur til að borða of mikið. Lausn: Levinson mælir með að 20 til 35 prósent þeirra hitaeininga sem fólk neytir komi úr fitu, eða milli 40 og 60 grömm. Levinson hvetur fólk þó til að sækja í hollari fitu sem fæst til dæmis úr laxi, hnetum, fræjum og avókadó sem dæmi. Fáðu nægan svefn Vandamál:Rannsóknir hafa leitt í ljós að þeir sem sofa ekki nóg borði að jafnaði 385 hitaeiningum meira daginn eftir. Og þegar þú ert svo nálægt markmiði þínu getur það gert gæfumuninn þegar til lengri tíma er litið. Lausn: Þótt það geti stundum verið erfitt, til dæmis þegar lítil börn eru í spilinu, segir Levinson að fólk eigi að gera það að forgangsatriði að fá 7 til 9 tíma svefn á hverri nóttu. Þá hvetur Levinson fólk til að taka ekki síma, iPad eða tölvu með sér upp í rúm áður en farið er að sofa. Fáðu þér vatn Vandamál: Levinson segir að auðvelt sé að rugla saman hungur­ tilfinningu og þorsta. Þegar þú finnur fyrir svengd gæti líkaminn í raun verið að kalla á vatn. Lausn: Levinson mælir með að fólk prófi að fá sér vatnsglas þegar hungrið sverfur að. Í rannsókn frá árinu 2015 kom í ljós að þeir sem þjáðust af offitu innbyrtu mun færri hitaeiningar en samanburðarhópurinn ef þeir drukku tæpan hálfan lítra af vatni hálftíma fyrir máltíð. „Að drekka vatn getur hjálpað manni að þekkja betur þau skilaboð sem líkaminn sendir og komast að raun um hvort maður sé í raun og veru svangur eða þyrstur.“ Góð ráð Jessica hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að næringarráðgjöf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.