Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Side 22
Vikublað 28.–30. mars 201722 Lífsstíll
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Þess vegna er strembið að
losna við síðustu aukakílóin
Næringarfræðingur bendir á algeng vandamál og gefur lausnirnar við þeim
M
örgum þeirra sem hafa náð
góðum árangri í baráttu
við offitu hættir til að eiga
erfitt með að losna við síð-
ustu aukakílóin til að kom-
ast í kjörþyngd. Oft eru það þessi síð-
ustu 5–10 kíló sem fólk á erfitt með.
Næringarfræðingurinn Jessica Levin-
son, stofnandi hinnar vinsælu Nutriti-
oulicious-vefsíðu, gaf lesendum Men‘s
Health góð ráð hvað þetta varðar fyrir
skemmstu þar sem hún tók fyrir nokk-
ur vandamál, sem fólk stendur frammi
fyrir, og lausnir á þeim. n
Ekki hætta að borða
Vandamál: Að sögn Levinson hættir sumum til að borða allt of lítið, jafnvel minna
en 1.200 hitaeiningar á dag, til að ná lokamarkmiði sínu. Hún segir að með þessu geri fólk
slæm mistök því líkaminn geti brugðist þannig við að hann hægi verulega á grunnefna
skiptum sínum, brennslunni með öðrum orðum, til að spara orkuna í líkamanum. Þá fer
líkaminn að ganga á vöðva líkamans sem orkugjafa sem kann ekki góðri lukku að stýra.
Lausn: Levinson hvetur fólk til að fara varlega og taka ekki of stór skref í einu.
Reyndu að forðast mjög hitaeiningaríka fæðu en veldu þess í stað próteinríka fæðu og
grænmeti sem dæmi. Passaðu að líkaminn fái það sem hann þarf.
„Hollur“ matur er
stundum óhollur
Vandamál: Stundum er fæða, sem markaðssett
er sem hollustuvara, full af sykri og næringarsnauðum
hitaeiningum. Þetta á til dæmis við um orkudrykki og
svokölluð próteinstykki í sumum tilfellum. „Viðbættur
sykur í fæðu getur kallað fram aukna sykurlöngun,“ segir
hún.
Lausn: Kynntu þér hvað er í fæðunni sem þú lætur
ofan í þig. Ef fæðan inniheldur meira en 10 grömm af sykri
í hverjum skammti skaltu fá þér eitthvað annað.
Ekki forðast alla fitu
Vandamál: Rannsóknir hafa sýnt að þeir
sem borða litla fitu hafa meiri matarlyst en til
dæmis þeir sem aðhyllast lágkolvetnalífsstíl.
Samt er því oft haldið fram að fólk þurfi að
forðast fitu eins og heitan eldinn. „Fita er
mjög mikilvæg vegna þess að hún hægir á
meltingunni og heldur aftur af hækkun
blóðsykurs,“ segir Levinson sem bætir
við að fituríkari fæða haldi manni
söddum lengur en ella. Það gerir að
verkum að maður er síður líklegur til að borða
of mikið.
Lausn: Levinson mælir með að 20 til 35 prósent þeirra hitaeininga sem fólk neytir
komi úr fitu, eða milli 40 og 60 grömm. Levinson hvetur fólk þó til að sækja í hollari fitu
sem fæst til dæmis úr laxi, hnetum, fræjum og avókadó sem dæmi.
Fáðu nægan svefn
Vandamál:Rannsóknir hafa leitt í ljós að þeir sem sofa ekki nóg borði að jafnaði
385 hitaeiningum meira daginn eftir. Og þegar þú ert svo nálægt markmiði þínu getur
það gert gæfumuninn þegar til lengri tíma er litið.
Lausn: Þótt það geti stundum verið erfitt, til dæmis þegar lítil börn eru í spilinu, segir
Levinson að fólk eigi að gera það að forgangsatriði að fá 7 til 9 tíma svefn á hverri nóttu.
Þá hvetur Levinson fólk til að taka ekki síma, iPad eða tölvu með sér upp í rúm áður en
farið er að sofa.
Fáðu þér vatn
Vandamál: Levinson segir að
auðvelt sé að rugla saman hungur
tilfinningu og þorsta. Þegar þú finnur
fyrir svengd gæti líkaminn í raun verið
að kalla á vatn.
Lausn: Levinson mælir með að fólk
prófi að fá sér vatnsglas þegar hungrið
sverfur að. Í rannsókn frá árinu 2015
kom í ljós að þeir sem þjáðust af offitu
innbyrtu mun færri hitaeiningar en
samanburðarhópurinn ef þeir drukku
tæpan hálfan lítra af vatni hálftíma fyrir
máltíð. „Að drekka vatn getur hjálpað
manni að þekkja betur þau skilaboð sem
líkaminn sendir og komast að raun um
hvort maður sé í raun og veru svangur
eða þyrstur.“
Góð ráð Jessica
hefur marga fjöruna
sopið þegar kemur að
næringarráðgjöf.