Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 12
Vikublað 28.–30. mars 201712 Fréttir Vilja loka United Silicon vegna mengunar „Allur framleiðslubúnaður og hreinsivirki verksmiðjunnar verða af nýjustu og bestu gerð“ stóð í matsskýrslunni 2008 Í matsskýrslu sem lögð var til grund- vallar starfsleyfis United Silicon, árið 2008, er að finna fögur fyrirheit um losun frá verksmiðjunni. „All- ur framleiðslubúnaður og hreinsi- virkiverksmiðjunar verða af nýjustu og bestu gerð og beitt verður bestu fá- anlegri tækni (BAT),“ segir á síðu tvö í skýrslunni. Vísir greindi frá því á mánudag að fulltrúar Umhverfisstofnunar muni fara á fund bæjarráðs Reykjanes bæjar á fimmtudaginn þar sem mengun frá verksmiðjunni verður rædd. Bæjar- stjórnin hefur farið fram á að verk- smiðjunni verði lokað þar til fyrirtæk- ið geri úrbætur til að koma í veg fyrir mengun. DV greindi fyrst frá því á föstu- daginn að sextán mismunandi krabbameinsvaldandi efni, svokölluð PAH-efni, sjö þungmálmar og brenni- steinn berist með svifryki frá kísil- málmverksmiðju United Silicon. Þetta er staðfest í skýrslu Umhverfis- stofnunar sem dagsett er þann 13. mars síðastliðinn. Þar kemur fram að niðurstöður á greiningu sýna frá mælistöð United Silicon, sem stað- sett er við Hólmbergsbraut, hafi með- al annars sýnt fram á að hið eitraða efni arsen hafi mælst yfir umhverfis- mörkum. Samkvæmt svörum frá Umhverfis- stofnun geta umrædd eiturefni borist yfir byggð í Reykjanesbæ, meðal annars yfir leikskólann Heiðarsel þar sem tæplega 100 börn eru vistuð. Í starfsleyfinu sjálfu, neðst í skýrslunni, sem gefið var út af Um- hverfisstofnun, er kveðið á um að til að halda mengun í lágmarki skuli hönnun, smíði og rekstur verk- smiðjunnar „notast við bestu fá- anlegu tækni (BAT) til að halda neikvæðum umhverfisáhrif- um í lágmarki. Rekstraraðili skal nýta orku vel til að lág- marka neikvæð heildaráhrif á umhverfið. Besta fáanlega tækni er framleiðsluaðferð og tækjakostur sem beitt er til að lágmarka mengun og mynd- un úrgangs. Tækninni hefur verið lýst í BREF skjali um „non-ferrous“ málmiðnað, skv. ákvæðum tilskipun- ar Evrópusambandsins 96/61/EB um samþættar mengunarvarnir og eft- irlit og verið skilgreind í tilmælum nr. 94/1 innan Parísarsamningsins um varnir gegn mengun sjávar frá land- stöðvum (PARCOM).“ n baldur@dv.is Mynd Sigtryggur Ari n Engar skjalatöskur eða skrifleg tilboð n „Umtalsverð upphæð“ til að liðka fyrir samningum O rðalagið var með ýms- um hætti en ekki hægt að skilja það öðruvísi en svo að miðað við þá hagsmuni sem þarna væru undir þá gætu menn vel hugsað sér að sjá af ör- lítilli prósentu til að liðka fyrir samn- ingum og sú litla prósenta væri um- talsverð upphæð,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, sem í samtali við DV tekur af öll tvímæli um að einstak- lingar á vegum vogunarsjóða hafi boðið honum mútur fyrir hagfellda niðurstöðu í viðræðum við íslensk stjórnvöld. Það sé ekki svo að menn hafi komið upp að honum með skjala- töskur fullar fjár eða skriflegt tilboð, hins vegar hafi ekki farið á milli mála hvað um var að ræða. Það var í Sprengisandi á Bylgj- unni á sunnudag sem Sigmundur Davíð kom inn á það að honum hefði verið boðnar mútur sem forsætisráð- herra af fulltrúum vogunarsjóðanna. Ummælin vöktu athygli en Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og formaður stjórnskipun- ar- og eftirlitsnefndar Alþingis, sagði þó í Bítinu á mánudag að hann teldi ummæli Sigmundar óljós; hann yrði að segja hreint út ef menn hefðu reynt að bera á hann fé. Sigmundur kveðst hafa komið inn á þessi mál áður, meðal annars í þinginu, svo Brynjar hafi hugsanlega ekki fylgst nógu vel með undanfarin ár. Engar skjalatöskur eða skrifleg tilboð „Reyndar finnst mér sérkennilegt að menn ímyndi sér að svona hlutir gerist með því að send séu inn skrif- leg tilboð um mútur, eða byrjað á því að nefna einhver tiltekin verð og sagt að maður geti fengið tösku í skáp á umferðarmiðstöðinni. Þetta ger- ist ekki þannig, en nokkrum sinnum voru menn sendir til að ræða við mig og gera mér það ljóst að þeir væru tilbúnir að leysa málin þannig að stjórnvöld á Íslandi gætu ekki kvart- að en ég gæti jafnframt orðið mjög sáttur sjálfur og hætt að hafa áhyggjur af þessu stjórnmálavafstri,“ segir Sig- mundur í samtali við DV. Bætir hann við að sem fyrr segir að ekki hafi ver- ið hægt að skilja þessi tilboð öðruvísi en að hans biði skerfur af þeim hags- munum sem þarna var um að tefla. Þótt tilboð þessi hafi verið undir rós segir Sigmund- ur sem fyrr að skilaboð- in hafi verið mun skýr- ari á seinni stigum málsins. „Þegar menn fóru hina leiðina og sendu menn til að hóta mér og sögðu mér að ég hlyti að gera mér grein fyrir því sem upplýstur maður að þegar svona miklir hags- munir væru undir þá væri ekki hægt að leyfa okkur Íslendingum að búa til það fordæmi sem ég var að reyna að búa til. Öðruvísi en að mönnum yrði á einhvern hátt refsað fyrir það. Sem sagt, að ég skyldi ekki láta mér detta í hug að ég kæmist upp með þetta. Þannig að það var allt saman mjög skýrt, en þegar menn reyna að opna á að gefa einhverjum hlutdeild í ein- hverjum ávinningi þá ímynda ég mér nú að það sé alltaf gert á þann hátt að hægt sé að neita því síðar. Og iðulega í gegnum einhverja milliliði.“ Boðið upp á hótelherbergi í London Sigmundur Davíð hafði í viðtalinu á Sprengisandi sagt vogunarsjóðina stóru hafa verið komna með allar helstu PR-stofur og lögfræðistofur landsins í vinnu. Blaðamaður spyr því hvort ekki hafi verið hægt að bregðast við þessum tilboðum og/eða hótunum með ein- hverjum hætti og rekja þær og tilkynna. Sigmundur segir að í tilviki Íslendinga hér á Íslandi hafi það ekki verið þannig að það hafi mætt lögmaður á hans fund í formlegum erinda- gjörðum. „Heldur voru heldur einhverjir „freelance“ menn sendir með skila- boð. Hins vegar gerðist það frekar í útlöndum að þar mættu ein- hverjir starfs- menn þessara aðila og gripu mann, líkt og ég hef nefnt sem dæmi þegar ég var í London að halda erindi á ráð- stefnu þar, þá eltu þeir mig uppi á hót- elinu og tóku mig tali fyrir, í kaffinu og eftir. Búnir að taka frá hótel herbergi og vildu fá mig með sér upp að ræða málin á hótelherberginu. Síðan var maður eltur á röndum meira að segja til Norður-Dakóta þegar ég fór að hitta Vestur-Íslendinga. Reyndar komu þeir ekki með en þeir voru bún- ir að segjast vera með aðstöðu þar til að hitta mig ef ég vildi hitta þá á af- viknum stað þar sem enginn myndi nokkurn tímann vita af fundi okkar.“ Viðbrögð fældu frá Aðspurður hvort það hafi einhvern tímann komið til greina af hans hálfu, sem forsætisráðherra, að upplýsa eða tilkynna um starfshætti þessara sjóða þá og þegar. Ljóst megi vera að þarna voru menn reiðubúnir til að fremja lögbrot með því að reyna að bera fé á forsætisráðherra, þótt það hafi verið undir rós. Kom það til greina? „Maður ræddi þessi mál fyrst og fremst við samstarfsmennina sem voru að fást við þetta með manni en jú, ég velti hinu fyrir mér. En þegar mað- ur sá viðbrögðin við því þegar ég fór að tjá mig um þetta, til að mynda á flokks- þingi Framsóknarmanna 2015, þá voru það bara útúrsnúningar og grín gert að því. Þá hugsaði ég bara að menn skildu þetta ekki, menn væru ekkert að kveikja á því hversu umfangsmikið og stórt þetta allt saman er. Hvernig kaup- in gerast á eyrinni og hvernig menn haga sér í þessum heimi.“ Sigmundur segir að það sé þó að skýrast núna. Fólk sé að átta sig á þessu. Heimildamyndir á borð við Ransacked og síðan atburðir að undanförnu, meðal annars salan á hlutnum í Arion banka geri það að verkum að menn séu meira farnir að spá í hvernig þessir aðilar starfi. „Þannig að mér finnst nú eins og það sé að renna upp ljós fyrir mönn- um, þótt Brynjar blessaður vilji hafa varann á.“ Bók í farvatninu? Sigmundur ítrekar að ekki hafi farið á milli mála að þarna hafi verið annars vegar um að ræða tilboð sem fólu í sér mútur og hins vegar hótanir í hans garð. En hvers eðlis voru þess- ar hótanir? spyr blaðamaður. „Þetta var ekki hótun um líkam- legar meiðingar en ég hef skrifað margt af þessu hjá mér, held þessu til haga og mun einhvern tímann fara yfir þessa sögu alla. Ég kom að- eins inn á þetta á miðstjórnarfundi hjá okkur á Akureyri en þar fyrir utan þá held ég þessu öllu til haga og fer einhvern tímann vel yfir þessa sögu alla.“ Ertu að boða bók? „Við sjáum til hvaða vettvangur hentar best í það. Þetta er mögnuð saga og margt ótrúlegt sem Ís- lendingar eru búnir að upplifa að undanförnu en við höfum með þessu kynnst heimi sem hefur verið býsna fjarri Íslandi þar til bara fyrir nokkrum árum. Og það verður að segjast að hann er ekki mjög geðs- legur að mörgu leyti.“ n „Vildu fá mig með sér upp að ræða málin á hótel- herberginu Sigmundur tekur af öll tvímæli: Þeir reyndu að múta mér Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Fór ekki á milli mála Sigmundur Davíð segir að í nokkur skipti hafi fulltrúar vogunarsjóða reynt að bera á hann fé sem forsætisráðherra. Á seinni stigum mála hafi slík tilboð vikið fyrir hótunum. Myndir Sigtryggur Ari Óljós Brynjar Níelsson taldi Sigmund ekki hafa talað nógu hreint út um mútutilboð vogunarsjóðanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.