Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Qupperneq 12
Vikublað 28.–30. mars 201712 Fréttir
Vilja loka United Silicon vegna mengunar
„Allur framleiðslubúnaður og hreinsivirki verksmiðjunnar verða af nýjustu og bestu gerð“ stóð í matsskýrslunni 2008
Í
matsskýrslu sem lögð var til grund-
vallar starfsleyfis United Silicon,
árið 2008, er að finna fögur fyrirheit
um losun frá verksmiðjunni. „All-
ur framleiðslubúnaður og hreinsi-
virkiverksmiðjunar verða af nýjustu
og bestu gerð og beitt verður bestu fá-
anlegri tækni (BAT),“ segir á síðu tvö í
skýrslunni.
Vísir greindi frá því á mánudag að
fulltrúar Umhverfisstofnunar muni
fara á fund bæjarráðs Reykjanes bæjar
á fimmtudaginn þar sem mengun frá
verksmiðjunni verður rædd. Bæjar-
stjórnin hefur farið fram á að verk-
smiðjunni verði lokað þar til fyrirtæk-
ið geri úrbætur til að koma í veg fyrir
mengun.
DV greindi fyrst frá því á föstu-
daginn að sextán mismunandi
krabbameinsvaldandi efni, svokölluð
PAH-efni, sjö þungmálmar og brenni-
steinn berist með svifryki frá kísil-
málmverksmiðju United Silicon.
Þetta er staðfest í skýrslu Umhverfis-
stofnunar sem dagsett er þann 13.
mars síðastliðinn. Þar kemur fram
að niðurstöður á greiningu sýna frá
mælistöð United Silicon, sem stað-
sett er við Hólmbergsbraut, hafi með-
al annars sýnt fram á að hið eitraða
efni arsen hafi mælst yfir umhverfis-
mörkum.
Samkvæmt svörum frá Umhverfis-
stofnun geta umrædd eiturefni borist
yfir byggð í Reykjanesbæ, meðal
annars yfir leikskólann Heiðarsel þar
sem tæplega 100 börn eru vistuð.
Í starfsleyfinu sjálfu, neðst í
skýrslunni, sem gefið var út af Um-
hverfisstofnun, er kveðið á um að til
að halda mengun í lágmarki skuli
hönnun, smíði og rekstur verk-
smiðjunnar „notast við bestu fá-
anlegu tækni (BAT) til að halda
neikvæðum umhverfisáhrif-
um í lágmarki. Rekstraraðili
skal nýta orku vel til að lág-
marka neikvæð heildaráhrif
á umhverfið. Besta fáanlega
tækni er framleiðsluaðferð
og tækjakostur sem beitt er til
að lágmarka mengun og mynd-
un úrgangs. Tækninni hefur verið
lýst í BREF skjali um „non-ferrous“
málmiðnað, skv. ákvæðum tilskipun-
ar Evrópusambandsins 96/61/EB um
samþættar mengunarvarnir og eft-
irlit og verið skilgreind í tilmælum nr.
94/1 innan Parísarsamningsins um
varnir gegn mengun sjávar frá land-
stöðvum (PARCOM).“ n
baldur@dv.is
Mynd Sigtryggur Ari
n Engar skjalatöskur eða skrifleg tilboð
n „Umtalsverð upphæð“ til að liðka fyrir samningum
O
rðalagið var með ýms-
um hætti en ekki hægt að
skilja það öðruvísi en svo að
miðað við þá hagsmuni sem
þarna væru undir þá gætu
menn vel hugsað sér að sjá af ör-
lítilli prósentu til að liðka fyrir samn-
ingum og sú litla prósenta væri um-
talsverð upphæð,“ segir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, þingmaður
Framsóknarflokksins og fyrrverandi
forsætisráðherra, sem í samtali við
DV tekur af öll tvímæli um að einstak-
lingar á vegum vogunarsjóða hafi
boðið honum mútur fyrir hagfellda
niðurstöðu í viðræðum við íslensk
stjórnvöld. Það sé ekki svo að menn
hafi komið upp að honum með skjala-
töskur fullar fjár eða skriflegt tilboð,
hins vegar hafi ekki farið á milli mála
hvað um var að ræða.
Það var í Sprengisandi á Bylgj-
unni á sunnudag sem Sigmundur
Davíð kom inn á það að honum hefði
verið boðnar mútur sem forsætisráð-
herra af fulltrúum vogunarsjóðanna.
Ummælin vöktu athygli en Brynjar
Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður stjórnskipun-
ar- og eftirlitsnefndar Alþingis, sagði
þó í Bítinu á mánudag að hann teldi
ummæli Sigmundar óljós; hann yrði
að segja hreint út ef menn hefðu reynt
að bera á hann fé.
Sigmundur kveðst hafa komið inn á
þessi mál áður, meðal annars í þinginu,
svo Brynjar hafi hugsanlega ekki fylgst
nógu vel með undanfarin ár.
Engar skjalatöskur
eða skrifleg tilboð
„Reyndar finnst mér sérkennilegt
að menn ímyndi sér að svona hlutir
gerist með því að send séu inn skrif-
leg tilboð um mútur, eða byrjað á
því að nefna einhver tiltekin verð og
sagt að maður geti fengið tösku í skáp
á umferðarmiðstöðinni. Þetta ger-
ist ekki þannig, en nokkrum sinnum
voru menn sendir til að ræða við mig
og gera mér það ljóst að þeir væru
tilbúnir að leysa málin þannig að
stjórnvöld á Íslandi gætu ekki kvart-
að en ég gæti jafnframt orðið mjög
sáttur sjálfur og hætt að hafa áhyggjur
af þessu stjórnmálavafstri,“ segir Sig-
mundur í samtali við DV. Bætir hann
við að sem fyrr segir að ekki hafi ver-
ið hægt að skilja þessi tilboð öðruvísi
en að hans biði skerfur af þeim hags-
munum sem þarna var um að tefla.
Þótt tilboð þessi hafi verið
undir rós segir Sigmund-
ur sem fyrr að skilaboð-
in hafi verið mun skýr-
ari á seinni stigum
málsins.
„Þegar menn fóru
hina leiðina og sendu
menn til að hóta mér og
sögðu mér að ég hlyti að
gera mér grein fyrir því
sem upplýstur maður að
þegar svona miklir
hags-
munir væru undir þá væri ekki hægt
að leyfa okkur Íslendingum að búa til
það fordæmi sem ég var að reyna að
búa til. Öðruvísi en að mönnum yrði
á einhvern hátt refsað fyrir það. Sem
sagt, að ég skyldi ekki láta mér detta
í hug að ég kæmist upp með þetta.
Þannig að það var allt saman mjög
skýrt, en þegar menn reyna að opna
á að gefa einhverjum hlutdeild í ein-
hverjum ávinningi þá ímynda ég mér
nú að það sé alltaf gert á þann hátt að
hægt sé að neita því síðar. Og iðulega í
gegnum einhverja milliliði.“
Boðið upp á hótelherbergi í London
Sigmundur Davíð hafði í viðtalinu
á Sprengisandi sagt vogunarsjóðina
stóru hafa verið komna með allar
helstu PR-stofur og lögfræðistofur
landsins í vinnu. Blaðamaður spyr
því hvort ekki hafi verið hægt að
bregðast við þessum tilboðum
og/eða hótunum með ein-
hverjum hætti og rekja
þær og tilkynna.
Sigmundur segir að
í tilviki Íslendinga hér
á Íslandi hafi það ekki
verið þannig að það hafi
mætt lögmaður á hans
fund í formlegum erinda-
gjörðum.
„Heldur voru heldur
einhverjir „freelance“
menn sendir með skila-
boð. Hins vegar
gerðist það frekar
í útlöndum að
þar mættu ein-
hverjir starfs-
menn þessara aðila og gripu mann,
líkt og ég hef nefnt sem dæmi þegar
ég var í London að halda erindi á ráð-
stefnu þar, þá eltu þeir mig uppi á hót-
elinu og tóku mig tali fyrir, í kaffinu og
eftir. Búnir að taka frá hótel herbergi
og vildu fá mig með sér upp að ræða
málin á hótelherberginu. Síðan var
maður eltur á röndum meira að
segja til Norður-Dakóta þegar ég fór
að hitta Vestur-Íslendinga. Reyndar
komu þeir ekki með en þeir voru bún-
ir að segjast vera með aðstöðu þar til
að hitta mig ef ég vildi hitta þá á af-
viknum stað þar sem enginn myndi
nokkurn tímann vita af fundi okkar.“
Viðbrögð fældu frá
Aðspurður hvort það hafi einhvern
tímann komið til greina af hans hálfu,
sem forsætisráðherra, að upplýsa eða
tilkynna um starfshætti þessara sjóða
þá og þegar. Ljóst megi vera að þarna
voru menn reiðubúnir til að fremja
lögbrot með því að reyna að bera fé á
forsætisráðherra, þótt það hafi verið
undir rós. Kom það til greina?
„Maður ræddi þessi mál fyrst og
fremst við samstarfsmennina sem
voru að fást við þetta með manni en jú,
ég velti hinu fyrir mér. En þegar mað-
ur sá viðbrögðin við því þegar ég fór að
tjá mig um þetta, til að mynda á flokks-
þingi Framsóknarmanna 2015, þá voru
það bara útúrsnúningar og grín gert
að því. Þá hugsaði ég bara að menn
skildu þetta ekki, menn væru ekkert að
kveikja á því hversu umfangsmikið og
stórt þetta allt saman er. Hvernig kaup-
in gerast á eyrinni og hvernig menn
haga sér í þessum heimi.“
Sigmundur segir að það sé þó
að skýrast núna. Fólk sé að átta sig
á þessu. Heimildamyndir á borð
við Ransacked og síðan atburðir að
undanförnu, meðal annars salan á
hlutnum í Arion banka geri það að
verkum að menn séu meira farnir að
spá í hvernig þessir aðilar starfi.
„Þannig að mér finnst nú eins og
það sé að renna upp ljós fyrir mönn-
um, þótt Brynjar blessaður vilji hafa
varann á.“
Bók í farvatninu?
Sigmundur ítrekar að ekki hafi farið
á milli mála að þarna hafi verið
annars vegar um að ræða tilboð sem
fólu í sér mútur og hins vegar hótanir
í hans garð. En hvers eðlis voru þess-
ar hótanir? spyr blaðamaður.
„Þetta var ekki hótun um líkam-
legar meiðingar en ég hef skrifað
margt af þessu hjá mér, held þessu
til haga og mun einhvern tímann
fara yfir þessa sögu alla. Ég kom að-
eins inn á þetta á miðstjórnarfundi
hjá okkur á Akureyri en þar fyrir utan
þá held ég þessu öllu til haga og fer
einhvern tímann vel yfir þessa sögu
alla.“
Ertu að boða bók?
„Við sjáum til hvaða vettvangur
hentar best í það. Þetta er mögnuð
saga og margt ótrúlegt sem Ís-
lendingar eru búnir að upplifa að
undanförnu en við höfum með
þessu kynnst heimi sem hefur verið
býsna fjarri Íslandi þar til bara fyrir
nokkrum árum. Og það verður að
segjast að hann er ekki mjög geðs-
legur að mörgu leyti.“ n
„Vildu fá
mig með
sér upp að ræða
málin á hótel-
herberginu
Sigmundur
tekur af öll
tvímæli:
Þeir reyndu
að múta mér
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fór ekki á milli mála Sigmundur Davíð segir að í
nokkur skipti hafi fulltrúar vogunarsjóða reynt að bera
á hann fé sem forsætisráðherra. Á seinni stigum mála
hafi slík tilboð vikið fyrir hótunum. Myndir Sigtryggur Ari
Óljós Brynjar Níelsson taldi Sigmund ekki hafa talað
nógu hreint út um mútutilboð vogunarsjóðanna.