Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 4
Vikublað 28.–30. mars 20174 Fréttir
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Íslendingar
eiga flesta bíla
í heimi – miðað
við höfðatölu
Íslendingar og Ítalir eru þær
þjóðir heims sem eiga flestar bif-
reiðar. Í þessum löndum er 1,6
einstaklingur á hvern bíl að jafn-
aði. Þessi niðurstaða byggir á töl-
um frá árinu 2015 sem Opplysn-
ingsrådet for Veitrafikken (OFV),
hefur tekið saman.
Að meðaltali eru 2,4 um
hvern bíl í Evrópu en Evrópa er
sú heimsálfa þar sem flesta bíla
er að finna miðað við höfðatölu.
Í Ameríku eru 3,7 um hverja bif-
reið og í Asíu 19,7. Í Afríku er
til ein bifreið á hverja 45 íbúa. Í
Eyjaálfu eru 2,5 um hvern bíl en
árið 2014 voru 8,6 jarðarbúar á
hvern bíl að jafnaði.
Virtu ekki
hvíldartíma
Fimm ökumenn voru kærðir í
umdæmi lögreglunnar á Suður-
landi í liðinni viku fyrir brot gegn
lögum um hvíldartíma og notkun
ökurita. Í dagbók lögreglu kem-
ur fram að lögregla hafi ráðist í,
ásamt starfsmönnum ríkisskatt-
stjóra, eftirlit með ökumönnum
hópferðabifreiða þar sem hugað
var að rekstrarleyfum, aksturs- og
hvíldartíma og fleiru. Alls voru
höfð afskipti af 52 ökumönnum.
Auk þeirra fimm sem hér að fram-
an eru nefndir voru tveir ökumenn
boðaðir með ökutæki í skoðun og
ríkisskattstjóri birti sjö ökumönn-
um tilmæli um lagfæringar.
Reisa öRyggisgiRðingu
en íbúaR fá engin svöR
n Kergja vegna Rangársels í Seljahverfi n „Þetta getur ekki talist góð stjórnsýsla“
Í
vikunni munu tveir einstaklingar
flytja inn á neðri hæð íbúðakjarna
við Rangársel 16–20 í Seljahverfi í
Breiðholti. Það væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir þá staðreynd
að nágrannar hafa fylgst með miklum
endurbótum á húsnæðinu sem lítur
núna helst út sem lítið öryggisfangelsi
þökk sé fjögurra metra háum
girðingum og fjölmörgum ör-
yggismyndavélum.
Íbúar í nágrenni við íbúða-
kjarnann eru ósáttir við
feluleik Reykjavíkurborgar
vegna starfseminnar en engin
kynning hefur átt sér stað um
hvaða starfsemi verði þar.
„Okkur var lofað því að
hættulegir einstaklingar
yrðu ekki vistaðir þarna
og að íbúum yrði haldið
upplýstum,“ segir Regína
María Sigurðardóttir, sem
býr í næsta nágrenni. Þá
segir hún íbúana telja að
Reykjavíkurborg sé að
brjóta lög með því að afla
ekki tilskilinna leyfa fyrir
framkvæmdunum.
Sauð upp úr fyrir tveimur árum
Deilur íbúa í hverfinu og Reykjavíkur-
borgar vegna íbúðakjarnans í Rangár-
seli eiga sér nokkra sögu. Um árabil
dvöldust hreyfihamlaðir einstaklingar
í húsnæðinu á vegum Öryrkjabanda-
lags Íslands og gekk það sambýli
afar vel. Í lok árs 2014 keyptu Félags-
bústaðir hf. fasteignina og skömmu
síðar dró ský fyrir sólu.
Upp úr sauð í maí 2015 þegar fjöl-
mennur íbúafundur var haldinn í
Seljakirkju. Þá hafði spurst út að fyrir-
hugaðar væru þær breytingar að fólk
með fíkniefnavanda fengi athvarf í
Rangárseli. Yfir því voru íbúar í hverf-
inu uggandi. Ásamt íbúum mættu fjöl-
margir borgarfulltrúar á fundinn og
var fundargestum heitt í hamsi. Eng-
um þó heitara en Björk Vilhelms-
dóttur, þáverandi formanni velferð-
arráðs Reykjavíkurborgar, sem jós
skömmum yfir fundargesti fyrir að
ákveða fyrirfram hegðun fólks til fram-
tíðar og tala niður þá sem minnst
máttu sín í samfélaginu. Þá var hún
sérstaklega ósátt við sóknarprest Selja-
kirkju fyrir að lána guðshús undir slík-
an fund.
„Í skjóli nætur“
„Við héldum þennan fund fyrst og
fremst vegna þess að við fengum
engar upplýsingar frá borginni um
hvaða starfsemi ætti að vera í húsinu.
Eftir nokkra fundi með starfsmönn-
um borgarinnar þá var okkur lofað
að hættulegir einstaklingar yrðu ekki
vistaðir þarna. Þannig róaðist málið
um skeið en núna á að lauma starf-
seminni inn í skjóli nætur. Reykja-
víkurborg hefur ekki upplýst nágranna
á neinn hátt um hvaða starfsemi verð-
ur í húsinu og á meðan fylgjumst við
með því hvernig húsnæðinu er breytt
og lítur núna út eins og öryggisfang-
elsi. Eðli málsins samkvæmt spyr
maður sig hvaða starfsemi þarf slíka
öryggisgæslu,“ segir Rebekka María.
Varð fyrir fólskulegri líkamsárás
Rebekka María hefur svo sannarlega
ástæðu til þess að vera uggandi varð-
andi störf Reykjavíkurborgar því um
mitt ár 2015 varð hún fyrir fólskulegri
líkamsárás af hálfu andlega veikrar
konu sem vistuð var í Rangárseli. „Það
fluttu tveir íbúar inn í Rangárselið árið
2015. Kona og karl sem bæði glímdu
við andleg veikindi. Til að byrja með
var gæslan í kringum þau afar slök og
þau ollu talsverðum usla í hverfinu.
Maðurinn glímdi við strípihneigð, sem
fór ekki framhjá okkur nágrönnunum
og varð meðal annars til þess að far-
ið var fram á að sett yrði speglagler í
glugga byggingarinnar. Þá fékk konan
að ganga óáreitt um hverfið, sem var
ámælisvert því hún var mjög árásar-
gjörn. Meðal annars bankaði hún upp
á hjá mér og kýldi mig þegar ég kom til
dyra,“ segir Rebekka María, sem hlaut
talsverða áverka við árásina. Hún lagði
inn kæru mánuði síðar sem varð ekki
síst til þess að þrýsta á breytingar.
Hugsanleg lögbrot
Reykjavíkurborgar
„Þessir einstaklingar búa enn í íbúða-
kjarnanum en gæslan í kringum þá
hefur tekið stakkaskiptum. Síðan
fluttust inn einhverfir einstaklingar í
húsið og sú sambúð hefur verið frá-
bær þannig að starfsemin var komin í
ágætan farveg. Miðað við breytingarn-
ar á húsinu þá er greinilegt að hættu-
legir einstaklingar verða vistaðir
þarna og það er með hreinum ólíkind-
um að íbúar í hverfinu séu ekki upp-
lýstir um fyrirhugaða starfsemi,“ segir
Rebekka. Að hennar mati þá er líka
vafamál hvort framkvæmdir borgar-
innar standist hreinlega lög. „Borgin
reisir þarna fjögurra metra hátt grind-
verk fyrir framan húsið og gerir um-
talsverðar skipulagsbreytingar á hús-
inu. Íbúar hér í kring hafa leitað eftir
upplýsingum hjá skipulagsyfirvöldum
um hvort að tilskilin leyfi séu til stað-
ar en svo virðist ekki vera. Þetta get-
ur ekki talist góð stjórnsýsla,“ segir
Rebekka María.
Engar upplýsingar veittar
Í svari frá Regínu Ástvaldsdóttur, sviðs-
stjóra velferðarsviðs Reykjavíkur-
borgar, kemur fram að framkvæmd-
irnar á neðri hæð hússins séu vegna
tveggja einstaklinga sem muni flytja
inn á næstu dögum. „Þeir verða með
mjög mikla mönnun og sérstakan for-
stöðumann,“ segir Regína. Hún segist
ekki geta svarað því hvort íbúarnir séu
með dóm á bakinu eða hvort þeir hafi
verið metnir ósakhæfir. „Mér er ekki
heimilt að segja frá einkamálefnum
þess fólks sem við vinnum með,“ segir
Regína.
Þá segir hún að borgin veiti fólki
sem á í vanda þjónustu úti um alla
borg enda sé það svo að lög um mál-
efni fatlaðra kveði beinlínis á um að
íbúðir fyrir þessa einstaklinga skuli
vera í íbúðabyggð og nálægt almennri
og opinberri þjónustu. „Við munum
gera allt sem í okkar valdi stendur til
að tryggja öryggi þessara tilteknu íbúa
og starfsfólks,“ segir Regína.
Þá segir Regína að starfsemin hefj-
ist ekki fyrr en búið sé að fá leyfi hjá
byggingarfulltrúa fyrir girðingunum
sem umlykja neðri hæð hússins. n
Rebekka María Sigurðardóttir Rebekka hefur fylgst undrandi með uppbyggingu
Reykjavíkurborgar við Rangársel í ljósi þess að borgarstarfsmenn hafi lofað því að
hættulegir einstaklingar yrðu ekki vistaðir þar. Mynd SigtRygguR ARi
Áverkar Fyrir tæpum tveimur
árum varð Rebekka fyrir líkams-
árás af hálfu andlega veikrar konu
sem vistuð var í Rangárseli.
Rangársel Undanfarin misseri hefur Reykjavíkur-
borg reist háar girðingar í kringum íbúðir á jarðhæð
Rangársels og sett upp öryggismyndavélar. Íbúar
í nærliggjandi húsum eru ósáttir við að fá engar
upplýsingar um hvers kyns starfsemi mun fara
fram í húsinu. Mynd SigtRygguR ARi
Öryggismynda-
vélar Tvær af
fjölmörgum mynda-
vélum sem eru
innan- og utandyra
að Rangárseli 16–20.
Mynd SigtRygguR ARi
Brot á lögum?
Íbúar í hverfinu
spyrja sig hvort
Reykjavíkurborg
hafi ekki þurft leyfi
fyrir umfangs-
miklum skipulags-
breytingum innan-
og utanhúss að
Rangárseli 16–20.
Mynd SigtRygguR ARi
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is