Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Blaðsíða 28
28 lífsstíll Vikublað 16.–18. maí 2017
Þetta gerist þegar þú
hættir að hreyfa þig
n Líkaminn og starfsemi hans breytast n Hófleg hreyfing getur gert kraftaverk
M
argir kannast eflaust við
þá tilfinningu að missa
áhugann á líkamsrækt
eftir að hafa lagt mikið
á sig. Margar ástæður
liggja þarna að baki; sumum finnst
árangurinn ekki erfiðisins virði,
aðrir játa sig sigraða vegna anna á
meðan enn aðrir telja sig þurfa hvíld
vegna þreytu.
Hvað sem öllu þessu líður
hefur það margvísleg áhrif á lík-
amann að hætta að hreyfa sig. Hér
má sjá hvað gerist í líkamanum
þegar við hættum að stunda hreyf-
ingu. Með hreyfingu er átt við hvers
konar líkamsrækt; allt frá daglegum
gönguferðum og langhlaupum til
lyftinga. Vefritið health.com tók
saman fyrir skemmstu kosti hreyf-
ingar, en af samantekinni að dæma
borgar það sig aldrei að hætta henni
með öllu. Lítil eða hófleg hreyfing
getur jafnvel gert kraftaverk. n
Heilinn breytist
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum hafa rennt stoðum undir
mikilvægi hreyfingar fyrir heilann. Samkvæmt einni slíkri, sem framkvæmd var
árið 2013, getur hreyfing dregið úr líkum á aldurstengdu minnistapi. Þá birtust fyrir
skemmstu niðurstöður athyglisverðrar rannsóknar í tímaritinu Frontiers in Aging
Neuroscience. Rannsóknin leiddi í ljós að jafnvel stutt hvíld frá hreyfingu hafði talsverð
áhrif á blóðflæði til heilans, nánar tiltekið til hins svokallaða dreka (e. Hippocampus)
sem gegnir mikilvægu hlutverki varðandi móttöku og úrvinnslu upplýsinga sem við
fáum í hinu daglega lífi. Tíu þrautþjálfaðir langhlauparar tóku þátt í rannsókninni og
voru þeir settir í segulómun meðan rannsóknin stóð yfir. Rannsóknin sýndi að eftir tíu
daga hvíld minnkaði blóðflæði til drekans.
Blóðþrýstingur
hækkar
Tengsl hreyfingarleysis
við of háan blóðþrýsting
hafa löngum verið ljós, en
háþrýstingur getur haft
ýmislegt óæskilegt í för með
sér; æðakölkun, hjartabilun
og nýrnabilun svo dæmi séu
tekin. Vísindamenn í Suður-Afríku
rannsökuðu þetta ekki alls fyrir löngu og komust að því
að tveggja vikna hvíld frá æfingum var nóg til að gera
jákvæð áhrif tveggja vikna lotuþjálfunar undir miklu
álagi að engu. Er þá átt við að blóðþrýstingurinn komst í
betra horf meðan á æfingalotunni stóð en fór svo aftur í
sama farið tveimur vikum eftir að æfingum var hætt.
Líkamsstyrkur
minnkar
Hameed, lífeðlisfræðingurinn sem vísað er í hér að fram-
an, segir að fólk muni finna fyrir vöðvatapi tveimur vikum
eftir að æfingum er hætt. Hjá sumum geti það þó gerst
seinna, eða eftir um mánuð. Hameed bendir á að vöðva-
styrkurinn tapist hægar en úthaldið þótt erfitt sé að bera
þessa tvo hluti saman. Í umfjöllun health.com er vísað í
rannsókn frá árinu 2011 á hópi karlmanna sem allir höfðu
stundað lyftingar í ákveðinn tíma. Nær allir nutu enn góðs
af lyftingunum sem þeir stunduðu sex mánuðum eftir að
þeim var hætt.
Líkamsfita eykst
Hameed segist telja að sex vikum eftir að hreyfingu er hætt
muni fólk taka eftir líkamsbreytingum, annaðhvort með
því að líta í spegil eða með því að stíga á vigtina. Enginn
er óhultur fyrir þessu, ekki einu sinni afreksíþróttamenn. Í
niðurstöðum rannsóknar frá 2012 sem birtust í Journal of
Strength and Conditioning Research kom fram að sundmenn
sem tóku sér fimm vikna hvíld frá æfingum bættu á sig
talsverðri fitu. Líkamsfita jókst hjá þeim að jafnaði um tólf
prósent. Tekið er fram að sundmennirnir hafi ekki hætt allri
hreyfingu heldur dregið verulega úr henni.
Úthaldið minnkar hratt
Hreyfingarleysi gerir að verkum að úthaldið sem þú hefur byggt upp minnkar
hratt. Fólk finnur fyrir þessu til dæmis þegar það gengur upp stiga eða byrjar
að hreyfa sig aftur; hjartað pumpar af meiri ákafa og það verður andstyttra
en áður. Þegar við hættum að hreyfa okkur minnkar svokölluð hámarks-
súrefnisupptaka, eða Vo2max, hjá okkur. Í stuttu máli kveður hún á um getu
líkamans til að nýta það súrefni sem hann fær með öndun. Þegar hámarks-
súrefnisupptöku er náð myndast mjólkursýra í vöðvum.
Lífeðlisfræðingurinn Farah Hameed segir við health.com að
eftir tveggja vikna hreyfingarleysi minnki hámarkssúrefnisupp-
taka um tíu prósent að jafnaði, 15 prósent eftir fjórar vikur og
20 prósent eftir þrjá mánuði. Jafnvel lítil hreyfing getur þó
unnið á móti þessu. Í rannsókn frá árinu 2009, á hópi
kajakræðara, kom í ljós að þeir sem tóku sér fimm
vikna hvíld frá æfingum upplifðu 11,3 prósenta
minnkun á hámarkssúrefnisupptöku. Þeir
sem hreyfðu sig hóflega
nokkrum sinnum í viku
upplifðu aðeins 5,6
prósenta minnkun.
Hreyfing Er öllum
nauðsynleg.
Mynd Sigtryggur Ari