Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Blaðsíða 22
22 sport Vikublað 16.–18. maí 2017
Arnar Grétarsson Var rekinn úr starfi eftir
aðeins tvo leiki. Blikar eru enn án stiga eftir tap
gegn Stjörnunni á sunnudag í þriðju umferðinni.
Mynd SiGtryGGur Ari
U
m fátt annað hefur verið rætt
í íslenskum knattspyrnu-
heimi síðustu vikuna en
þá ákvörðun Breiðabliks
að reka Arnar Grétarsson
þjálfara úr starfi eftir aðeins tvo leiki
í Pepsi-deildinni. Ákvörðunin er
mjög umdeild og eiga flestir erfitt
með að skilja tímasetninguna. Áhrifa
ákvörðunarinnar gætti ekki í fyrsta
leik liðsins eftir brottreksturinn þar
sem liðið tapaði fyrir Stjörnunni á
sunnudagskvöld.
Breiðablik er án stiga í Pepsi-
deildinni eftir þrjár umferðir en liðið
hafði farið illa af stað á fyrstu tveim-
ur árum Arnars í deildinni. Gengi
Breiðabliks í vetur og undir lok síð-
asta árs hefur þó væntanlega átt sinn
þátt í þessari umdeildu ákvörðun
Blika.
Hafði alltaf unnið Stjörnuna
Sú ákvörðunin að láta Arnar fara
fyrir leik gegn Stjörnunni er líka
áhugaverð í ljósi þeirrar staðreyndar
að Arnar hafði aldrei tapað gegn
Stjörnunni, hann hafði raunar aldrei
tapað stigi gegn liðinu. Í fjórum leikj-
um Breiðabliks undir stjórn Arnars
í Pepsi-deild karla hafði liðið unnið
alla leikina, Stjarnan hafði heldur
ekki unnið í Kópavogi í 23 ár. Það er
því erfitt að skilja af hverju Arnar fékk
ekki tækifæri til að rétta skútuna af
gegn Stjörnunni, sigur gegn því liði
hefði getað gefið Breiðabliki mikið
sjálfstraust. Staðan er hins vegar
þannig eftir leikinn gegn Stjörnunni
að Breiðablik er án stiga og þjálfara-
laust.
Hvert var planið?
Nú, viku eftir að hafa látið Arnar fara,
eru Blikar ekki komnir með þjálfara,
stjórn félagsins setti markið hátt og
reyndi að ráða til starfa Allan Kuhn.
Sá er danskur og gerði Malmö að
sænskum meisturum á síðustu leik-
tíð og því hefði verið mikinn metn-
aður í þeirri ráðningu. Kuhn hafnaði
hins vegar Blikum í annað sinn á
ferli sínum. Honum stóð nefnilega
til boða að taka við Blikum vetur-
inn 2014 eftir að Arnar hafði hafnað
starfinu fyrst um sinn, samningar
náðust þá ekki við Kuhn og þá hafði
Arnari snúist hugur og vildi starfið.
Nú þegar Kuhn hefur hafnað starfinu
þá virðast Blikar ekki vita hvaða skref
þeir eiga að stíga, þjálfaramarkað-
urinn hér á landi er ekki stór og þeir
bitar sem eru á lausu virka ekki ýkja
spennandi.
Ástæðan fyrir brottrekstrinum?
Í yfirlýsingu Breiðabliks kom fram
að úrslitin undanfarið misseri væri
ástæðan fyrr brottrekstri Arnars og
væntanlega á stjórn Breiðabliks við
að Breiðablik hafði ekki unnið leik
gegn Pepsi-deildar liði frá því í sept-
ember á síðustu leiktíð. Síðasti sigur-
leikur liðsins gegn Pepsi-deildar liði
í keppnisleik fór fram þann 15. sept-
ember er liðið vann öruggan 3-0
sigur á Val á útivelli. Eftir það fór af
stað atburðarás sem gæti hafa reynst
banabiti Arnars í starfi, tveir leik-
menn félagsins fóru út í vikunni fyrir
leik gegn ÍBV og voru settir í aga-
bann. Leikmennirnir voru ekki að
hella sig fulla en voru of lengi úti að
mati Arnars. Þeir Damir Muminovic
og Gísli Eyjólfsson voru því settir til
hliðar í upphafi leiks, þessi ákvörðun
Arnars fór ekki vel í leikmannahóp
liðsins og virtist hafa áhrif út tímabil-
ið. Veturinn var svo þungur fyrir
Blika þar sem úrslitin voru ekki sér-
staklega sterk. Fjórtán leikir án sig-
urs gegn Pepsi-deildar liðum virðast
vera stærsta ástæða þess að stjórn
Breiðabliks tók svo snögglega í gikk-
inn.
Helmingur stjórnar vildi
reka Arnar í fyrrahaust
Það að Arnar hafi verið rekinn á þess-
um tímapunkti kom flestum á óvart,
starf hans var í hættu í fyrrahaust
og þá voru margir á því að hann
myndi missa starfið. Stjórn Breiða-
bliks fundaði um stöðu mála eftir
síðasta tímabil þegar liðið missti af
Evrópusæti með klaufalegum hætti,
þá var ekki samhljómur í stjórninni
og samkvæmt heimildum DV vildi
helmingur hennar reka Arnar úr
starfi en helmingur halda honum.
Það var því ákveðið að halda sam-
starfinu áfram með von um betri tíð.
Borghildur Sigurðardóttir, sem hafði
verið formaður knattspyrnudeildar,
lét af störfum í byrjun árs og við starfi
hennar tók Ólafur Hrafn Ólafsson.
Sú staðreynd gæti hafa kostað Arnar
starfið en hann og Borghildur höfðu
átt í góðu samstarfi.
Stjórnin vildi þó bjóða Arnari
nýjan samning snemma á þessu
ári en hann neitaði að skrifa undir
þann samning. Ástæðan fyrir því
að Arnar hafnaði samningum var
sú að félagið vildi að hann mætti til
vinnu í 3–4 tíma á dag á skrifstofu.
Það fannst Arnari ekki rétt og taldi
stjórnina fara fram á hluti sem ekki
væru eðlilegir fyrir þjálfara, auk
þess að þjálfa meistaraflokk félags-
ins hafði Arnar stýrt æfingum fyrir
leikmenn félagsins á morgnana.
Efnilegum þjálfara fórnað Þrátt
fyrir að Arnar hafi gengið í gegn-
um erfiða tíma sem þjálfari þá má
ljóst vera að hann er einn efnileg-
asti þjálfari liðsins, fáir íslensk-
ir þjálfarar eru jafn sterkir þegar
kemur að taktískum hluta leiksins
og það gætu reynst stór mistök að
standa ekki með honum lengur.
Sumarið 2015, sem var fyrsta sum-
ar Arnars í þjálfun, var frábært,
Breiðablik setti þá stigamet félags-
ins í efstu deild og spilaði frábæran
sóknarbolta. Agaður varnarleikur
var líka einn af helstu styrkleikum
liðsins undir stjórn Arnars. Hefði
stjórn Breiðabliks ekki mátt standa
með Arnari lengra inn í sumar-
ið þrátt fyrir að það hefði kostað
liðið einhver stig? Enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur, gæti
komið upp í huga Blika þegar líður
á sumarið. n
Umdeild ákvörðun
stjórnar Breiðabliks
n Arnar Grétarsson þjálfari rekinn fyrir viku n Framhaldið í óvissu
Gengi Breiðabliks
frá síðasta hausti
n Íslandsmót 2017: Tap gegn KA
og Fjölni
n Lengjubikarinn 2017: Tap gegn FH.
Jafntefli gegn Stjörnunni og Grindavík
n Fótbolti.net-mótið 2017:
Tap gegn ÍBV og FH Jafntefli gegn
Grindavík
n Bose-mótið 2016: Jafntefli gegn
Fjölni og Stjörnunni (sigur í vítaspyrn-
ukeppni) Tap gegn Víkingi
n Eftir agabann á Íslandsmóti
2016: Tap gegn Fjölni og ÍA Jafntefli
gegn ÍBV
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is