Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Blaðsíða 38
38 fólk Vikublað 16.–18. maí 2017 → Inni- og útimerkingar → Sandblástursfilmur → Striga- og ljósmyndaprentun → Bílamerkingar → Gluggamerkingar → Prentun á símahulstur → Frágangur ... og margt fleira Skoðaðu þjónustu okkar á Xprent.is SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS Ætluðu að gefast upp Allir eiga sína vondu daga, líka fræga fólkið. Þessir frábæru listamenn íhuguðu sjálfs- morð og sumir reyndu það án árangurs. J.K. Rowling Þegar Rowling var einstæð móðir sem átti vart fyrir húsaleigunni barðist hún við þunglyndi og íhug- aði að fyrirfara sér. Hún leitaði sér síðan sálfræðiaðstoðar. Hún segir að dóttir sín, Jessica, hafi verið ástæðan fyrir því að hún ákvað að leita til sérfræðings. „Ég hugsaði með mér, ég get ekki gert henni það að ala hana upp í þessu ástandi.“ Rowling segist ekki skammast sín á nokkurn hátt fyrir að hafa verið þunglynd. „Hvað ætti ég að skammast mín fyrir? Ég gekk í gegnum afar erfiða tíma og ég er mjög stolt af að hafa komist í gegnum þá.“ Elton John Tónlistarmaðurinn reyndi eitt sinn að fyrirfara sér vegna ang- istarinnar sem greip hann vegna samkynhneigðar. Hann setti höfuðið í gasofn en vinur hans kom að honum og lífi hans var bjargað. Elton John fann síðan hamingjuna með eiginmanni sínum David Furnish og tveimur sonum. Frank Sinatra Stóran hluta ævinnar glímdi Sinatra við þunglyndi og reyndi nokkrum sinnum að svipta sig lífi. Upp úr 1950, þegar stjarna hans virtist vera fallandi, var hann á Times Square í New York og sá hrifningarfullar stúlkur bíða eftir að komast inn á tónleika með Eddie Fisher. Niðurbrotinn Sinatra fór heim og setti höfuð inn í gasofn. Umboðsmaður hans fann hann í tíma. Þegar hjónaband hans og leikkonunnar Övu Gardner var hvað storma- samast reyndi hann oftar en einu sinni að fyrirfara sér. Sammy Davis Jr. Árið 1958 var söngvarinn ástfanginn af leikkonunni Kim Novak sem var hvít. Mafían blandaði sér í málið og hótaði að stinga annað augað úr Davis og fótbrjóta hann ef hann sliti ekki sambandinu og auk þess var þess krafist að hann gengi í hjónaband með svartri konu. Davis giftist til málamynda svörtum dansara, Loray White. Hann drakk of mik- ið í brúðkaupsveislunni og heyrðist veina: „Af hverju get ég ekki verið með konunni sem ég elska!“ Davis varð ofurölvi og var komið í rúmið. Þegar vinur hans leit til hans kom hann að söngvaranum þar sem hann beindi hlaðinni byssu að höfði sér. Vinurinn afvopnaði Davis. Hjónabandinu var slitið nokkrum mánuðum síðar. Halle Berry Halle Berry gerði til- raun til að svipta sig lífi þegar hjónaband hennar og íþrótta- mannsins David Justice var komið í hundana. „Ég sat í bílnum mínum og vissi að útblásturinn væri um það bil að fylla bílinn þegar ég sá í huganum móður mína komandi að mér látinni,“ sagði hún. Berry snerist hugur og segir: „Í kjölfarið hét ég því að verða aldrei heigull.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.