Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Blaðsíða 19
Vikublað 16.–18. maí 2017 19fréttir - erlent
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
Ávextir í áskrift kosta um
550 kr. á mann á viku
og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Það er ekkert
við beinu
bananana
Ávaxtaðu betur
H
ö
n
n
u
n
: I
n
g
va
r
Ví
ki
n
g
ss
o
n
Krufning á líkinu leiddi í ljós
að konan hafði verið á lífi þegar
eldur var borinn að henni þar
sem hún hafði andað að sér reyk
áður en hún lést. Þá fundust 50 til
70 svefntöflur í maga hennar sem
voru meltar að hluta. Bensín fannst
við líkið og virðist það hafa verið
notað til að magna eldinn upp.
Úrskurðað var að konan hafði svipt
sig lífi en margir eiga bágt með
að trúa því að svo hafi verið. Hver
myndi fara út fyrir bæinn, taka inn
svefntöflur og kveikja í sér? Það var
svo í febrúar árið 1971 að konan var
borin til grafar. Lögregla taldi sig
vera búna að rannsaka alla anga
málsins og svo lengi sem engar
nýjar upplýsingar kæmu fram lá
rannsóknin niðri. Myndir voru
teknar í útförinni ef ske kynni að
einhver náinn konunni myndi gefa
sig fram. En ekkert nýtt kom fram
sem hald var í.
Hreyfing kemst á málið
Enn þann dag í dag vonast
lögreglan til að leysa málið og
varpa ljósi á um hvaða konu er
að ræða. Þó að rannsókn NRK og
lögreglu sé tiltölulega skammt
á veg komin eru þegar komnar
fram gagnlegar upplýsingar. Ekki
er langt síðan tennur konunnar
fundust í kjallara Haukeland-
háskólasjúkrahússins, en talið var
að þær væru týndar fyrir fullt og
allt. Nú stendur yfir rannsókn á
þeim. Með nýjustu tækni er vonast
til þess að tennurnar geti gefið
upplýsingar um hvaða mat konan
borðaði, hvernig vatn hún drakk og
hvaðan það kom. Þá hefur ítarlega
DNA-rannsókn þegar farið fram
á líkamsvef konunnar, en þegar
líkið fannst var sú tækni ekki fyrir
hendi. Á föstudag var greint frá því
að konan væri af evrópsku bergi
brotin og framundan er vinna við
að senda þessar upplýsingar til
evrópskra löggæslustofnana í þeirri
von að DNA-samsvörun finnist.
„Ef einhver nákominn henni er til
í DNA-gagnabönkum þá munum
við finna samsvörun,“ segir Ståle
Hansen, fréttamaður hjá NRK, í
samtali við BBC. „Þetta er mjög
spennandi,“ bætir hann við.
Þó að enn sé margt á huldu í
málinu virðist heilmikil hreyfing
vera komin á það. Hver veit nema
hægt verði að bera loks kennsl
á konuna og loka þessu máli
sem fengið hefur sérfræðinga
og almenning til að klóra sér í
kollinum í tæpa hálfa öld. n
„Þetta var á
árum Kalda
stríðsins og á þeim tíma
voru örugglega margir
njósnarar í Noregi.
Töskur og smyrsl Þetta eru töskurnar
sem fundust og voru raktar til konunnar.
Þá fannst einnig smyrsl sem konan hafði
fengið ávísað vegna exems. Búið var að
afmá allar merkingar sem hefði verið hægt
að rekja til konunnar.
Verðmæti Armbandsúr og skartgripir voru meðal þess sem fannst á vettvangi.