Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 14
14 Helgarblað 6. október 2017fréttir
selja blíðu. Ég er alltaf í þörf fyrir
nálægð við konu. Fyrirgefðu
misskilning. Þekkjumst við eitt-
hvað?“
„Ég var með gamalt facebook
sem var hakkað og var að adda
öllum gömlu, var viss um að ég
hefði verið með þig þar sko.“ svar-
aði Sigrún. Sigrún sagðist vera 16
ára og væri nýbúin að klára grunn-
skóla. Hún væri að fara í mennta-
skóla í haust og væri að safna sér
pening til að eiga í vetur. „Það er
bara drulluerfitt að ná að safna sér
eitthvað þegar maður er að vinna
bara á kassa í Hagkaup lol,“ sagði
Sigrún.
„Já, mér líst vel á þessi áform
hjá þér,“ sagði skólabílstjórinn og
bætti við: „Þú veist kannski að ég
er 60 ára einmana karl. Hefur þú
tækifæri á að fá aðra vinnu?“
„Hefði geta farið í unglinga-
vinnu eða eitthvað svo Hagkaup er
ok eða þú veist,“ svaraði Sigrún og
spurði síðan: „Hvað gerir þú?“
„Ég er rútubílstjóri. Keyri
útlendinga um landið,“ sagði
bílstjórinn og spurði um aldur
og Sigrún sagðist hafa verið að
klára grunnskóla, væri 16 ára.
„Ég skil. […] Hvað ætlar þú að
gera til að fá aukapening?“
„Veit ekki, get ég ekki bara
verið aðstoðarrútubílstjóri hjá
þér haha?“ spurði Sigrún og
skellti inn nokkrum brosköllum.
„Dettur þér eitthvað í hug sem ég
gæti gert? Fyrir auka pening?“
„Mér dettur eitt í hug en þú
ert svo ung,“ svaraði bílstjórinn
og virtist eitt augnablik vera um-
hyggjusamur.
„Ræna banka 🙂 haha eða,“
stakk Sigrún upp á í gríni
„Nei. Ég mundi aldrei stinga
upp á slíku,“ svaraði bílstjórinn.
„Hvaða áhuga hefur þú á kynlífi?“
spurði bílstjórinn nú alveg upp úr
þurru.
„Pínu persónuleg spurning,“
svaraði Sigrún „Sko en hef ekki
mikla reynslu sko. Átt einn kærasta
– hættum saman fyrir viku.“
„Æ, það var leitt að heyra,“
sagði bílstjórinn og bætti svo við:
„Hvað mundir þú segja ef ég býð
greiðslu fyrir nektarmyndir af þér.“
Sigrún svaraði að henni hefði ver-
ið kennt að senda aldrei af sér
nektarmyndir. Óttaðist að þá gætu
myndir farið í deilingu á netinu.
Sigrún ákvað samt að spyrja hvað
skólabílstjórinn væri að borga
unglingum fyrir nektarmyndir.
„Nei þú skalt aldrei birta mynd-
ir af þér á netið. Það eyðist aldrei
út,“ sagði bílstjórinn áður en hann
svaraði að verðið færi eftir hvað
hún myndi ganga langt. „7500 al-
snakin. 10.000 fyrir putta í píkuna.
Legg inn á reikninginn þinn. Þú
sendir myndir á e-mailið mitt.
Fullum trúnaði veitt og ég vænti
þess sama frá þér. Ég vil enga vit-
leysu eða rugl. […] Mundir þú þora
að hitta mig fyrir 150 dollara?“ Bíl-
stjórinn spurði svo hvort Sigrún
væri á pillunni. Hún svaraði ját-
andi. „Flott. Eigum við að prófa
þetta núna.“
„Ég veit samt ekki hvort ég þori
sko,“ svaraði Sigrún og kvaðst afar
óreynd þegar kæmi að kynlífi.
„Ok. Þetta er ekkert mál. Bara
að láta sér líða vel og gera eitt-
hvað sem þig langar að gera,“
svaraði bílstjórinn. Þú verður að
ákveða þetta alveg sjálf. Það getur
engin tekið ákvörðun fyrir þig með
svona,“ hélt bílstjórinn áfram: „Þú
mátt gista ef þú vilt en ég þarf að
fara kl. 7 í fyrramálið. Þannig að
ef þú vilt, væri gott ef þú kæmir
núna.“
„Ég held ég bara hugsi málið –
hef aldrei gert svona – finnst nógu
vandræðalegt að gera þetta – ég
er eiginl hreyn mey hehe,“ svaraði
Sigrún.
Nauðgarinn
Sama dag hafði
Anthony Lee
Bellere sam-
skipti við Sig-
rúnu. Árið 2008
var Anthony Lee
Bellere dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyrir
alvarleg kyn-
ferðisbrot gegn
þremur stúlk-
um á árunum
2005–2006. Þá
voru stúlkurnar
tólf til sextán
ára. Hæstiréttur
Íslands þyngdi
dóminn í fimm
ár. Brotin eiga
það öll sameig-
inlegt að hafa
byrjað á netinu.
Anthony Lee
var fundinn sek-
ur um að hafa
á skipulegan og
yfirvegaðan hátt
tælt stúlkurnar
og síðan nauðg-
að, misnotað
eða misboðið þeim kynferðislega.
Anthony er síbrotamaður og sam-
kvæmt dómi Hæstaréttar 2008
sýndi hann einbeittan brotavilja.
Hann gerir það enn. Áður fyrr not-
aði hann dulnefni og þóttist vera
18 eða 19 ára. Í samskiptum við
Sigrúnu á Facebook notaði hann
sitt rétta nafn. Anthony er 51 árs,
býr rétt hjá Ingólfstorgi, keyrir um
á rafmagnsvespum og tínir dósir
um helgar í miðborginni.
Anthony taldi fyrst að Sigrún
væri 16 ára. Seinna átti hún eftir
að greina honum frá því að hún
væri 14 ára. Það varð ekki til þess
að hann hætti samskiptum. Hann
hótaði Sigrúnu ítrekað að hann
fremdi sjálfsmorð ef hún kæmi
ekki heim til hans.
Aðferð sem hann hafði notað áður.
„Hehe þú verður að bíða
kannski aðeins, of ung lol.“ Sigrún
bætti því við að hún hefði aðeins
átt einn kærasta sem hún hætti
með í vikunni á undan.
Þá varð Anthony ágengur og
setti Sigrúnu úrslitakosti, eitthvað
sem hann gerði ítrekað í sam-
skiptum þeirra. „Já eða nei, svar-
aðu já eða nei,“ var eitthvað sem
hann var vanur að segja endurtek-
ið, mörgum sinnum á dag.
Anthony: „Svaraðu já eða nei
viltu kúra hjá mér já eða nei.“
Sigrún sagðist ekki þora því en
kannski seinna. Anthony bað þá
„bara“ um kúr og sagðist „grát-
biðja“ Sigrúnu.
Anthony bað svo um síma-
númerið hjá Sigrúnu sem hún
lét hann ekki fá, hún sagðist vera
feimin og ekki þekkja hann.
28. júlí
Rútubílstjórinn hafði aftur sam-
band við Sigrúnu. Sigrún spurði
hvort hún gæti mögulega feng-
ið dollarana ef hún gerði eitthvað
annað en stunda kynlíf. Þar sem
hún var ekki viss um að þora að
ganga alla leið.
„Þú mátt koma og leika þér við
þig með putta. Þú mátt gera það
og leyfa mér að sleikja þig. 60
dollara fyrir það,“ svaraði bíl-
stjórinn.
Þann sama dag hafði
Anthony aftur samband og var
nú nokkuð rólegri. Fór hann að
forvitnast um hvar Sigrún býr
og hvar hún vilji búa í fram-
tíðinni. Þarna byrjaði hann að
mála sig sem „góða gaurinn“
sem ætlaði að eiga greiða inni.
Rútubílstjórinn setti sig
einnig aftur í samband við
Sigrúnu á Facebook og reyndi
að fá hana til að koma heim
til sín. Þegar hún sagðist ekki
geta komist bað hann aftur
um myndir. Sigrún sagðist
ekki treysta því, myndirnar
gætu farið í umferð og sagð-
ist óttast að myndir af henni
gætu birst á viðbjóðslegum
síðum þar sem Íslendingar
deila myndum af unglings-
stúlkum. Vildi bílstjórinn vita um
hvaða síðu væri að ræða.
Skólabílstjóri vill trekant með
Sigrúnu og vændiskonu
29. júlí hafði skólabílstjórinn
aftur samband og spurði hvort
Sigrún hefði áhuga á að vera
með honum og annarri dömu
á sama tíma. „Ég hef lengi haft
áhuga á að að vera með 2 stelp-
um,“ sagði bílstjórinn og bætti
við að Sigrún ætti að sleikja kyn-
færi konunnar sem myndi taka
þátt í kynlífi með þeim. „Svo ríð
ég ykkur til skiptis. Hún er 26
ára. Rosalega flott með yndis-
lega píku og kann að ríða. Hún
gæti kennt þér ýmislegt. Vertu
bara vel rökuð og
blaut. Mig langar svo
að sjá þig.“ Sigrún ít-
rekaði að hún væri
óreynd. „Það fer fljótt
af,“ svaraði skólabíl-
stjórinn. „En þú
nærð í æfingu líka.
Ég geri aldrei neitt
sem meiðir.“
Gísli mætir á
svæðið
Gísli sagðist vera
fertugur og frá
Akur eyri. Hann
notaði augljóslega
ekki sitt rétta nafn.
Hann minntist ít-
rekað á kynlíf við
Sigrúnu og talaði á
klámfengin hátt við
hana. Hann sendi henni þrisvar
sinnum mynd af getnaðarlim sín-
um. Síðustu samskipti hans við
Sigrúnu voru 2. október.
29. júlí hafði samband maður
sem kallar sig Ástrík á Facebook.
Hann þakkaði Sigrúnu fyrir að
samþykkja gamlan og graðan vin.
Sagðist hann vera 52 ára. Sagðist
hann vera ágætlega stæður ef hana
„Ef við
myndum
ríða þá gæti það
verið pínu sárt
Kveðja BUGL Kristjón tók mynd af Guðrúnu Ósk fyrir utan BUGL. Þarna er Guðrún í hlutverki tálbeitunnar Sigrúnar. Myndin var sett á Face-
book-síðu Sigrúnar. Var Sigrún Ósk ósátt við að vera lokuð inni á BUGL og fagnaði að vera loks laus. Fékk hún skilaboð frá karlmönnum sem
byrjuðu á að sína hluttekningu en óskuðu svo eftir nektarmyndum og vændi.