Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 6. október 2017fréttir Spurning vikunnar Hækkun launa hjá millistéttinni og baráttu gegn því að við göngum í Evrópusambandið. Valva Árnadóttir Það þarf að rétta hlut þeirra lægst launuðu. Gunnar Freyr Gunnarsson Mér finnst að þar sé nauðsynlegt að setja heilbrigðismál í forgrunn. Anna Helga Kristinsdóttir Það er mjög nauðsynlegt að hækka laun hjá ellilífeyris- þegum og huga að kjörum þeirra. Það er verið að hækka laun hjá þeim tekjuhæstu en ekkert hugsað um öryrkja og ellilífeyrisþega. Hörður Sævar Símonarson Hvaða áherslumál viltu sjá í forgrunni í kosningabaráttunni? Í vikunni var greint frá því að Okkar bakarí ehf., sem rek­ ur þrjú bakarí, tvö í Garðabæ og eitt í Hafnarfirði, hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta. Eigandi fyrirtækisins er Jón Heiðar Rík­ harðsson en hann keypti og tók við blómlegum rekstri fyrirtækisins árið 2012. Jarek Kuczynski, sem á og rekur Hverafold bakarí, sig hafa verið illa svikinn í viðskiptum sín­ um við Jón Heiðar. Hann hafði skrifað undir samning um kaup á fyrirtækinu skömmu fyrir gjald­ þrotið. Hann hafi þegar byrjað að reyna að laga reksturinn og farið í talsverð fjárútlát til þess. Viku síð­ ar hafi lögfræðingur Jóns Heiðars tilkynnt honum að fyrirtækið yrði selt til samkeppnis aðila. „Þetta er algjört rugl. Ég skil ekki hvernig er hægt að hegða sér á þennan hátt í viðskiptum,“ segir Jarek í samtali við DV. Fastakúnnum blöskraði ástandið Okkar bakarí var tekið til gjald­ þrotaskipta þann 26. september síðastliðinn og verður skiptafund­ ur haldinn þann 19. desember. Rekstrinum hafði hrakað hratt undanfarin misseri og aðdragandi gjaldþrotsins virðist hafa verið farsakenndur í meira lagi. Starfs­ fólk situr eftir með sárt ennið. „Það var orðið erfitt að fá vörur til að selja. Allt bakkelsið var bak­ að í versluninni í Iðnbúð en tæk­ in voru orðin lúin. Það sem kom til okkar var stundum hrátt eða brennt. Það er fjöldi eldri borgara hérna í nágrenninu sem voru fastir viðskiptavinir og þeim var farið að blöskra ástandið. Að lokum gáfust flestir upp á að versla við okkur,“ segir starfsmaður fyrirtækisins sem var staðsettur í útibúi bakarís­ ins í Sjálandshverfi. Að sögn starfsmannsins hafi flestir starfsmenn gefist upp og hætt undanfarna mánuði. „Það voru margir sem hættu 1. septem­ ber enda fékk fólk ekki laun greidd. Bakararnir voru líka flestir horfnir til annarra starfa og það var aðal­ lega treyst á nema í bakstrinum,“ segir starfsmaðurinn. Sem dæmi um slæmt ástand rekstursins hafði útibúið í Sjálandi ekki verið þrifið í marga mánuði. „Ástandið var enn verra í Iðnbúð. Þar var ógeðslega skítugt.“ Þá segir starfsmaðurinn að skömmu fyrir gjaldþrotið hafi ósáttur eigandi útkeyrslu fyrirtækis mætt á útsölustaðina í Garða­ bæ og hreinsað út flestar vörurn­ ar sem eftir voru í kælinum upp í skuld. Handsalaði kaupin Að sögn starfsmannsins eru margir starfsmenn í fullkominni óvissu varðandi launagreiðslur. „Jón Heiðar skuldar mér september mánuð en ég veit um marga starfsmenn sem eiga inni nokkurra mánaða laun. Þeir eru mjög sárir og reiðir vegna ástandsins og hafa flestir leitað til stéttarfélaga sinna. Við fengum engar upplýsingar frá eiganda fyr­ irtækisins um hvað væri yfirvof­ andi,“ segir starfsmaðurinn. Að lokum þurfti Jón Heiðar sjálfur að sinna afgreiðslu í bakaríinu í Iðn­ búð enda höfðu allir starfsmenn yfirgefið skútuna. Sem fyrr segir varð Jarek Kuczynski, sem á og rekur Hverafold bakarí í Grafarvogi, einna verst úti. Hann hafði íhugað að kaupa fyrir tækið um nokkurt skeið og það gekk í gegn skömmu fyrir gjaldþrotið, sem hann hafði ekki hugmynd um að væri yfirvof­ andi. „Okkar bakarí var eitt allra besta bakarí landsins. Það er það sem ég heyrði frá viðskiptavinum og starfsfólki,“ segir Jarek. Að hans sögn hafi rekstrinum hrakað hratt og hann hafi því séð gott tækifæri í að snúa rekstrinum við. Hann komst að samkomu­ lagi við Jón Heiðar um kaupverð og síðan var skrifað undir kaup­ samning. „Á honum voru nokkrir fyrirvarar, meðal annars um fjár­ mögnun. Ég fór beint í að tala við bankann og það gekk hratt og vel að fá vilyrði fyrir fjármögnun. Þegar samþykki bankans lá fyrir var kominn á kaupsamningur,“ segir Jarek. Hann sá að rekstrinum var að blæða út og hóf því þegar að reyna að koma fleyinu aft­ ur á flot. „Ég pantaði vörur og hráefni frá birgjum mínum fyrir rúma milljón og kom með vörur úr mínu bakaríi til að selja,“ segir Jarek. Hann hafi þó fljótlega rekið sig á að tæki og tól Okkar bakarís voru ekki í því ástandi sem hann taldi. „Það var allt meira og minna ónýtt, meðal annars stór kæli­ skápur. Það var óviðunandi og því eyddi ég um 150 þúsund krónum í að gera við hann,“ segir Jarek. Aldrei séð kaupsamning Jarek taldi að kaupin væru frá­ gengin og því kom honum gjör­ samlega í opna skjöldu þegar lög­ fræðingur Jóns Heiðars tilkynnti honum um að Jón Heiðar hefði gert samning við annan kaup­ anda, Jón Arilíusson, sem er jafn­ an kenndur við Kökulist. Jarek hyggst leita réttar síns. DV náði tali af Jóni Heiðari Ríkharðssyni en hann vildi ekki tjá sig um málið. Hann vís­ aði á skiptastjóra þrotabúsins, Jón Auðun Jónsson, varðandi frekari upplýsingar. „Það var ekki kominn á kaupsamning­ ur á milli Hvera foldar bakarís og Okkar bakarís. Fyrir lá kauptilboð sem var bundið í tíma og hafði runnið út. Báðir aðilar voru því lausir allra mála þegar seinna til­ boðið barst. Ég hef engan kaup­ samning séð og enginn nefnt það við mig, hvorki Jón Heiðar, Jarek eða starfsmenn bankans, að slík­ ur samningur hafi verið gerður,“ segir Jón Auðunn í skriflegu svari til DV. Hann segist ekki hafa komið að samkomulagi þessara aðila um rekstur bakarísins þessa síðustu daga fyrir þrot. „Ég þekki ekki efni þess en skilst að í megin dráttum hafi það gengið út á að Jarek útvegaði birgðirnar og ábyrgðist laun starfsmanna en tæki jafnframt allar tekjur. Þetta voru bara örfáir dagar en tilboðið rann út 30. september,“ segir Jón Auðunn. n Farsakennt gjaldþrot Okkar bakarís n Starfsmenn sitja eftir með sárt ennið n Væntanlegur kaupandi segist svikinn Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.