Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 6. október 2017fréttir
Í
vikunni var tilkynnt um að skipt
um væri lokið á búinu G1000
ehf. Alls var kröfum upp á rúm
lega 247 milljónir króna lýst í
búið. Forgangskröfur upp á um
sex milljónir króna fengust greidd
ar að fullu en aðeins var hægt að
greiða rúmlega 16 milljónir króna
af almennum kröfum. G1000 ehf.
hét áður GT verk ehf. en á dögun
um var annað félag í eigu sömu að
ila, GT hreinsun ehf. hlutskarpast í
tveimur stórum útboðum Reykja
víkurborgar. Alls hljóða verkin upp
á rúmlega 300 milljónir króna. Um
er að ræða enn eitt dæmið um
viðskipti Reykjavíkurborgar við
kennitöluflakkara.
Breyttu um nafn rétt fyrir þrot
Fyrirtækið GT verktakar ehf.
var stofnað árið 2001 af Gísla G.
Sveinbjörnssyni og Trausta Finn
bogasyni. Þegar ljóst var í hvað
stefndi, í júlí 2014, var nafni fyrir
tækisins breytt í G1000 ehf. Slíkt
er yfirleitt gert til þess að gjald
þrot fyrirtækisins veki ekki eins
mikla eftirtekt. Í auglýsingum
Lögbirtingablaðsins gætu ein
hverjir kannast við GT verktaka
en fáir kveikja á heitinu G1000
ehf. Fyrirtækið var síðan lýst
gjaldþrota í mars 2015 og rúm
um tveimur og hálfu ári síðar var
skiptum loks lokið.
Árið 2004 var fyrirtækið Talna
bær ehf. stofnað en reksturinn
snerist um ýmiss konar bókhald.
Sex árum síðar, í október 2010,
eignuðust Trausti og Gísli fyrir
tækið og breyttu nafni þess í GT
hreinsun ehf. Þá voru rekstrarerf
iðleikar farnir að láta á sér kræla
í tengslum við GT verk ehf. og því
handhægt að hafa aðra kenni
tölu til taks. Það kom á daginn
þegar áðurnefnt þrot GT verks
ehf. (G1000 ehf.) gekk í gegn en
þá hófu Gísli og Trausti sam
bærilegan rekstur í gegnum GT
hreinsun ehf. Hringekjan var
síðan fullkomnuð þegar nafni
GT hreinsun ehf. var breytt í GT
verktakar ehf. í ágúst á þessu ári.
274 milljóna króna
samningar við borgina
GT hreinsun ehf. varð síðan
hlutskarpast í tveimur útboðum
Reykjavíkurborgar varðandi
jarðvegsvinnu við Hlíðarenda og
við frjálsíþróttavöll ÍR. Verkið að
Hlíðarenda hljóðaði upp á 179,2
milljónir en ÍR verkefnið hljóðaði
upp á 94,5 milljónir. Í bæði skipt
in bauð GT hreinsun rúmlega
60 prósent af kostnaðaráætlun
borgaryfirvalda og jarðaði keppi
nauta sína. Varðandi ÍR verkefnið
bauð Háfell ehf. næstlægst en á
dögunum fjallaði DV um kenni
töluflakk eigenda þess.
Áður hefur komið fram að inn
kaupareglur Reykjavíkurborgar
heimila að hægt sé að hafna til
boðum frá aðilum sem hafa ný
lega farið í þrot eða eru með slíkt
yfir höfði sér. Þó aðeins að því
gefnu að hægt sé að sýna fram
á að um sömu eigendur sé að
ræða og sömu rekstrareiningu.
Þar kemur sér vel fyrir GTbræð
ur að hafa keypt aðra kennitölu
áður en sú fyrri fór í þrot. Borgar
lögmaður ályktaði nefnilega í
áðurnefndu dæmi Háfells ehf.
að þar sem kennitölurnar væru
báðar í rekstri á sama tíma þá
væri ekki um sömu rekstrarein
ingu að ræða og því gæti Reykja
víkurborg ekki hafnað tilboðinu.
Engu skipti þó að fyrirtækin
tækju að sér sam bærileg verk
efni, notast væri við sömu tæki
og tól að mestu leyti, mestmegn
is sama starfsfólk og einnig sama
verkstæði. Ljóst má vera að inn
kaupareglur Reykjavíkurborgar
ganga of skammt ef raunveru
legur pólitískur vilji er til þess að
setja hömlur á kennitöluflakk. n
stórir samningar í skugga
240 milljóna gjaldþrots
Reykjavíkurborg stundar umfangsmikil viðskipti við kennitöluflakkara
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Reykjavíkurborg Jarðvinnufyrirtækið GT hreinsun
ehf. hreppti nýlega tvö verk á vegum borgarinnar að
andvirði um 274 milljóna króna. Á dögunum lauk skiptum
á öðru fyrirtæki í eigu sömu aðila, GT verktakar ehf.
Sími 567 4467 - www.gummisteypa.isAllAr gerðir reimA og færibAndA