Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 37
Brot af því besta 3Helgarblað 6 október 2017 KYNNINGARBLAÐ
Meira afl og minni eyðsla með
tölvustýrðri vélarstillingu
KraftKort
Það er merkileg stað-reynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum
og spara eldsneyti með því
að uppfæra gögn í tölvu-
búnaði. Vélar í nútímabílum
nota tölvukerfi við stjórn-
un vélarinnar. fjölmargir
skynjarar nema aðstæður og
mata vélartölvu bílsins með
upplýsingum sem síðan eru
notaðar til að stjórna hegðun
vélarinnar. Þessir skynjarar
mæla t.d. lofthita úti, lofthita í
soggrein vélarinnar, vatnshita
vélarinnar, stöðu inngjafar,
snúningshraða vélar og fjölda
annarra þátta sem nauðsyn-
legir eru til að beita vélinni
sem best við viðkomandi
aðstæður.
fyrirtækið Kraftkort, sem
er að Súlunesi 10 í Garða-
bæ, hefur veitt fjölmörgum
bílum aukið afl og dregið úr
eldsneytisnotkun þeirra með
þessari nútímalegu vélastill-
ingu. Guðmundur rögnvalds-
son, sem rekur fyrirtækið
ásamt ragnari Má Sigrúnar-
syni, útskýrir aðferðina svo í
stuttu máli:
„Þetta snýst um það að við
lesum bíltölvuna og erum í
samstarfi við breskt fyrirtæki
sem heitir Viezu technologies
og er einn stærsti aðilinn á
þessu sviði. Við sendum þeim
skrána sem er á vélartölvunni
í bílnum. Þeir senda okkur
nýja skrá með breyttum still-
ingum sem við keyrum inn á
tölvuna. forritunin sjálf á sér
stað hjá þeim en ekki okkur.“
Öll forritin eru prófuð á
dyno-bekkjum hjá Viezu til
að sannreyna tölurnar sem
gefnar eru upp fyrir hvern bíl.
Eins og áður segir stuðl-
ar endurforritunin bæði að
auknu afli og meiri spar-
neytni: „Ef við tökum dísilbíla,
þá getum við fengið bæði
svokallað Performance
Map sem lýtur meira að
aflaukningu ásamt því að
minnka eldsneytisnotkun, og
Eco Map, sem veldur minni
aflaukningu en meiri elds-
neytissparnaði og dregur úr
mengun frá bílnum,“ segir
Guðmundur.
Einnig er hægt að endur-
forrita vélatölvur í bensínbíl-
um en fyrir þá er eingöngu
til Performance Map. Með
auknu afli erfiðar vélin hins
vegar minna og því minnkar
eyðsla með sama aksturslagi.
Guðmundur tók við starf-
semi Kraftkorts í vor en að
hans sögn hefur verið boð-
ið upp á þessa þjónustu í
nokkur ár. Sem nærri má
geta hefur þjónustan þróast í
gegnum árin: „Bílar eru auð-
vitað ekki eins og þeir voru
fyrir nokkrum árum, það er
alltaf að koma eitthvað nýtt
og hægt að gera fleira.“
Hér með greininni fylgja
nokkur dæmi um bíla sem
hafa öðlast endurbætt líf,
ef svo má segja, eftir tölvu-
stýrða vélastillingu hjá Kraft-
korti.
Sem fyrr segir er fyrir-
tækið staðsett að Súlunesi
10 í Garðabæ. Heimasíða er
kraftkort.net og Facebook-
síða www.facebook.com/
kraftkortgr. Símanúmer er
857-0210. Hægt er að panta
þjónustu eða fá frekari upp-
lýsingar með því að hringja
eða senda skilaboð á Face-
book-síðunni. Jafnframt er
áhugavert að skoða heima-
síðu Viezu Technologies,
viezu.com.
Þessi 2017 Land Rover Discovery
Sport fékk aflaukningu og fór úr 148
hestöflum í 178 hestöfl, togið fór úr
380 nm í 440 nm.
Þessi 2015 BMW f31 320d fékk
aflaukningu og fór úr 181 hestafli
í 226 hestöfl og togið fór úr 380
nm í 450 nm. Einnig má reikna
með að eyðsla fari niður um allt
að 10%.
Þessi 2012
Man tGS
35.440 fékk
aflaukningu
og fór úr
440 hest-
öflum í 510
hestöfl, togið
fór úr 2100
nm í 2450
nm, einnig
má reikna
með að
eyðsla fari
niður um allt
að 13%.
Þessi 2008 Mercedes Benz axor 1824 fékk aflaukningu
og fór úr 231 hestafli í 261 hestafl, togið fór úr 810 nm í
870 nm, einnig hefur eyðslan farið niður um 15%.