Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Page 37
Brot af því besta 3Helgarblað 6 október 2017 KYNNINGARBLAÐ Meira afl og minni eyðsla með tölvustýrðri vélarstillingu KraftKort Það er merkileg stað-reynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum og spara eldsneyti með því að uppfæra gögn í tölvu- búnaði. Vélar í nútímabílum nota tölvukerfi við stjórn- un vélarinnar. fjölmargir skynjarar nema aðstæður og mata vélartölvu bílsins með upplýsingum sem síðan eru notaðar til að stjórna hegðun vélarinnar. Þessir skynjarar mæla t.d. lofthita úti, lofthita í soggrein vélarinnar, vatnshita vélarinnar, stöðu inngjafar, snúningshraða vélar og fjölda annarra þátta sem nauðsyn- legir eru til að beita vélinni sem best við viðkomandi aðstæður. fyrirtækið Kraftkort, sem er að Súlunesi 10 í Garða- bæ, hefur veitt fjölmörgum bílum aukið afl og dregið úr eldsneytisnotkun þeirra með þessari nútímalegu vélastill- ingu. Guðmundur rögnvalds- son, sem rekur fyrirtækið ásamt ragnari Má Sigrúnar- syni, útskýrir aðferðina svo í stuttu máli: „Þetta snýst um það að við lesum bíltölvuna og erum í samstarfi við breskt fyrirtæki sem heitir Viezu technologies og er einn stærsti aðilinn á þessu sviði. Við sendum þeim skrána sem er á vélartölvunni í bílnum. Þeir senda okkur nýja skrá með breyttum still- ingum sem við keyrum inn á tölvuna. forritunin sjálf á sér stað hjá þeim en ekki okkur.“ Öll forritin eru prófuð á dyno-bekkjum hjá Viezu til að sannreyna tölurnar sem gefnar eru upp fyrir hvern bíl. Eins og áður segir stuðl- ar endurforritunin bæði að auknu afli og meiri spar- neytni: „Ef við tökum dísilbíla, þá getum við fengið bæði svokallað Performance Map sem lýtur meira að aflaukningu ásamt því að minnka eldsneytisnotkun, og Eco Map, sem veldur minni aflaukningu en meiri elds- neytissparnaði og dregur úr mengun frá bílnum,“ segir Guðmundur. Einnig er hægt að endur- forrita vélatölvur í bensínbíl- um en fyrir þá er eingöngu til Performance Map. Með auknu afli erfiðar vélin hins vegar minna og því minnkar eyðsla með sama aksturslagi. Guðmundur tók við starf- semi Kraftkorts í vor en að hans sögn hefur verið boð- ið upp á þessa þjónustu í nokkur ár. Sem nærri má geta hefur þjónustan þróast í gegnum árin: „Bílar eru auð- vitað ekki eins og þeir voru fyrir nokkrum árum, það er alltaf að koma eitthvað nýtt og hægt að gera fleira.“ Hér með greininni fylgja nokkur dæmi um bíla sem hafa öðlast endurbætt líf, ef svo má segja, eftir tölvu- stýrða vélastillingu hjá Kraft- korti. Sem fyrr segir er fyrir- tækið staðsett að Súlunesi 10 í Garðabæ. Heimasíða er kraftkort.net og Facebook- síða www.facebook.com/ kraftkortgr. Símanúmer er 857-0210. Hægt er að panta þjónustu eða fá frekari upp- lýsingar með því að hringja eða senda skilaboð á Face- book-síðunni. Jafnframt er áhugavert að skoða heima- síðu Viezu Technologies, viezu.com. Þessi 2017 Land Rover Discovery Sport fékk aflaukningu og fór úr 148 hestöflum í 178 hestöfl, togið fór úr 380 nm í 440 nm. Þessi 2015 BMW f31 320d fékk aflaukningu og fór úr 181 hestafli í 226 hestöfl og togið fór úr 380 nm í 450 nm. Einnig má reikna með að eyðsla fari niður um allt að 10%. Þessi 2012 Man tGS 35.440 fékk aflaukningu og fór úr 440 hest- öflum í 510 hestöfl, togið fór úr 2100 nm í 2450 nm, einnig má reikna með að eyðsla fari niður um allt að 13%. Þessi 2008 Mercedes Benz axor 1824 fékk aflaukningu og fór úr 231 hestafli í 261 hestafl, togið fór úr 810 nm í 870 nm, einnig hefur eyðslan farið niður um 15%.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.