Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 6. október 2017fréttir Í vikunni var tilkynnt um að skipt­ um væri lokið á búinu G1000 ehf. Alls var kröfum upp á rúm­ lega 247 milljónir króna lýst í búið. Forgangskröfur upp á um sex milljónir króna fengust greidd­ ar að fullu en aðeins var hægt að greiða rúmlega 16 milljónir króna af almennum kröfum. G1000 ehf. hét áður GT verk ehf. en á dögun­ um var annað félag í eigu sömu að­ ila, GT hreinsun ehf. hlutskarpast í tveimur stórum útboðum Reykja­ víkurborgar. Alls hljóða verkin upp á rúmlega 300 milljónir króna. Um er að ræða enn eitt dæmið um viðskipti Reykjavíkurborgar við kennitöluflakkara. Breyttu um nafn rétt fyrir þrot Fyrirtækið GT verktakar ehf. var stofnað árið 2001 af Gísla G. Sveinbjörnssyni og Trausta Finn­ bogasyni. Þegar ljóst var í hvað stefndi, í júlí 2014, var nafni fyrir­ tækisins breytt í G1000 ehf. Slíkt er yfirleitt gert til þess að gjald­ þrot fyrirtækisins veki ekki eins mikla eftirtekt. Í auglýsingum Lögbirtingablaðsins gætu ein­ hverjir kannast við GT verktaka en fáir kveikja á heitinu G1000 ehf. Fyrirtækið var síðan lýst gjaldþrota í mars 2015 og rúm­ um tveimur og hálfu ári síðar var skiptum loks lokið. Árið 2004 var fyrirtækið Talna­ bær ehf. stofnað en reksturinn snerist um ýmiss konar bókhald. Sex árum síðar, í október 2010, eignuðust Trausti og Gísli fyrir­ tækið og breyttu nafni þess í GT hreinsun ehf. Þá voru rekstrarerf­ iðleikar farnir að láta á sér kræla í tengslum við GT verk ehf. og því handhægt að hafa aðra kenni­ tölu til taks. Það kom á daginn þegar áðurnefnt þrot GT verks ehf. (G1000 ehf.) gekk í gegn en þá hófu Gísli og Trausti sam­ bærilegan rekstur í gegnum GT hreinsun ehf. Hringekjan var síðan fullkomnuð þegar nafni GT hreinsun ehf. var breytt í GT verktakar ehf. í ágúst á þessu ári. 274 milljóna króna samningar við borgina GT hreinsun ehf. varð síðan hlutskarpast í tveimur útboðum Reykjavíkurborgar varðandi jarðvegsvinnu við Hlíðarenda og við frjálsíþróttavöll ÍR. Verkið að Hlíðarenda hljóðaði upp á 179,2 milljónir en ÍR verkefnið hljóðaði upp á 94,5 milljónir. Í bæði skipt­ in bauð GT hreinsun rúmlega 60 prósent af kostnaðaráætlun borgaryfirvalda og jarðaði keppi­ nauta sína. Varðandi ÍR verkefnið bauð Háfell ehf. næstlægst en á dögunum fjallaði DV um kenni­ töluflakk eigenda þess. Áður hefur komið fram að inn­ kaupareglur Reykjavíkurborgar heimila að hægt sé að hafna til­ boðum frá aðilum sem hafa ný­ lega farið í þrot eða eru með slíkt yfir höfði sér. Þó aðeins að því gefnu að hægt sé að sýna fram á að um sömu eigendur sé að ræða og sömu rekstrareiningu. Þar kemur sér vel fyrir GT­bræð­ ur að hafa keypt aðra kennitölu áður en sú fyrri fór í þrot. Borgar­ lögmaður ályktaði nefnilega í áðurnefndu dæmi Háfells ehf. að þar sem kennitölurnar væru báðar í rekstri á sama tíma þá væri ekki um sömu rekstrarein­ ingu að ræða og því gæti Reykja­ víkurborg ekki hafnað tilboðinu. Engu skipti þó að fyrirtækin tækju að sér sam bærileg verk­ efni, notast væri við sömu tæki og tól að mestu leyti, mestmegn­ is sama starfsfólk og einnig sama verkstæði. Ljóst má vera að inn­ kaupareglur Reykjavíkurborgar ganga of skammt ef raunveru­ legur pólitískur vilji er til þess að setja hömlur á kennitöluflakk. n stórir samningar í skugga 240 milljóna gjaldþrots Reykjavíkurborg stundar umfangsmikil viðskipti við kennitöluflakkara Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Reykjavíkurborg Jarðvinnufyrirtækið GT hreinsun ehf. hreppti nýlega tvö verk á vegum borgarinnar að andvirði um 274 milljóna króna. Á dögunum lauk skiptum á öðru fyrirtæki í eigu sömu aðila, GT verktakar ehf. Sími 567 4467 - www.gummisteypa.isAllAr gerðir reimA og færibAndA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.