Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 18
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 „Ég mæli með öllu sem veitir manni gleði og hreyfingu í leiðinni,“ segir Ólöf. MYND/ANTON BRINK „Súkkulaðidrykkur sem allir á mínu heimili elska, jafnt að morgni sem um miðjan dag eftir skóla.“ MYND/ANTON BRINK Mikilvægt er að passa upp á að fá meiri hreyfingu almennt inn í daglega lífið, hvort sem það er sumar eða vetur. Auðvitað er alltaf hægt að fara í ræktina og flestar líkams- ræktarstöðvar bjóða upp á fjöl- breytta tíma sem miða að því að auka mýkt, styrk, þol og liðleika. Hins vegar má líka auka daglega hreyfingu með því einfaldlega að ganga á milli staða, taka stigann frekar en lyftuna og standa oftar upp frá vinnunni,“ segir Ólöf Björnsdóttir en hún hefur langa reynslu af því að koma fólki í betra form. Hún er einkaþjálfari og kennir í hópatímum hjá Reebok, auk þess sem hún lýkur námi í íþróttafræði frá Háskól- anum í Reykjavík næsta vor. „Nýjustu rannsóknir sýna að þeir sem hreyfa sig reglulega yfir daginn í vinnunni en fara ekki sérstaklega í ræktina eru hraust- ari en þeir sem sitja allan daginn og fara síðan í ræktina eftir vinnu í klukkutíma í senn,“ upplýsir Ólöf. 30 mínútur á dag Ólöf segir að viðmiðið fyrir full- orðna manneskju sé 30 mínútna hreyfing á dag en því miður gefa fæstir sér tíma til þess. „Það er meira að segja hægt að skipta þessu í tvennt, korter á morgnana og korter að kvöldi. Hreyfing þarf ekki að vera flókin en gott er að setja sér raunhæf markmið og ætla sér ekki of mikið. Ég er líka mikill aðdáandi þess að hreyfa sig utandyra og mæli því hik- laust með gönguferðum en þær geta komið fólki af stað í regluleg hreyfingu. Til að auka styrk má ákveða að stoppa alls staðar þar sem það eru bekkir og nota þá til að fá meira út úr göngunni, setjast niður tuttugu sinnum og standa hratt upp, stíga tíu sinnum upp á bekkinn, taka nokkrar arm- beygjur og halda síðan áfram. Tilvalið er að taka börnin með og gera gönguferðina að skemmti- legri samverustund og njóta útivistar í leiðinni,“ segir Ólöf brosandi og bætir við að mikil- vægast sé að hver og einn finni sér líkamsrækt sem hann hafi gaman af. „Það má leigja badmintonvöll með vinunum eða fara á dans- námskeið. Ég mæli með öllu sem veitir manni gleði og hreyfingu í leiðinni,“ segir hún. Sjálf fer Ólöf til Spánar með hópa tvisvar á ári, í maí og sept- ember, í svokallaðar hreyfiferðir. „Ég fer út á vegum Gaman Ferða. Hópurinn slakar á, æfir, hjólar um og hefur það almennt gaman og á þennan hátt koma margir sér í hreyfigírinn eða fá útrás fyrir hreyfigleði,“ segir hún. Teygjan gerir gagn Með hækkandi aldri þarf að huga að því að halda nægum vöðva- massa og segir Ólöf að þá sé gott að styrkja sig með því að æfa í tækjasal. „Heima við er hægt að nota teygju á ýmsan máta til að styrkja handleggi, brjóst, bak og axlir. Teygjuna má setja utan um borðfót, setjast á rassinn og tosa hana að sér. Teygjuna má toga upp og niður og svo er líka hægt að fara á fjóra fætur og spyrna henni upp og út. Á YouTube eru líka alls konar æfingamyndbönd til að koma sér af stað.“ Spurð hvort hún mæli með því að hlaupa úti yfir veturinn segist Ólöf ekki sjá neitt því til fyrirstöðu. „En það þarf að gæta vel að sér um leið og það fer að frysta því í hálku eykst hætta á meiðslum.“ Yfir sumartímann borða flestir léttari mat en á veturna og segir Ólöf það alveg eðlilegt því kuldinn kalli á meiri orku. „Yfir veturinn þurfa flestir meira seðjandi mat, eins og matarmiklar súpur og pott- rétti. Slíkir réttir gefa góða nær- ingu og auðvelt er að lauma miklu grænmeti í þá. Almennt mæli ég með því að sleppa sykri og hvítu hveiti og forðast unnar matvörur. Ekki þó þannig að það sé alveg bannað og megi bókstaflega aldrei borða aftur því það er svo leiðin- legt, en best er að sleppa þessu eins og hægt er. Ég mæli líka hiklaust með góðum morgunverði. Hann kemur manni í gegnum daginn og dregur úr hungri í eftirmiðdaginn.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Nýjustu rann- sóknir sýna að þeir sem hreyfa sig reglulega yfir daginn í vinnunni en fara ekki sérstaklega í ræktina eru hraustari en þeir sem sitja allan dag- inn og fara síðan í rækt- ina eftir vinnu í klukku- tíma í senn. Súkkulaðidrykkur sem allir á mínu heimili elska, jafnt að morgni sem um miðjan dag eftir skóla. 1 lúka möndlur 2 dl vatn 1 tsk. kakó 2 tsk. chia-fræ (má sleppa en gefur góðar fitusýrur og trefjar) 1 tsk. maca-duft (má sleppa) 2 döðlur 1 banani, ferskur eða frosinn Möndlur og vatn sett í blandara og maukað saman, öll þurrefni sett saman við og loks bananinn. Allt maukað vel svo úr verður góður orku- drykkur. LOKSINS ERU ÞÆR KOMNAR yfirhafnirnar og vinsælu vetrarbuxurnar Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 A -C 8 7 8 1 E 0 A -C 7 3 C 1 E 0 A -C 6 0 0 1 E 0 A -C 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.