Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 10
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin Rexton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum og auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem eru ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Áformað er að verja allt að 120 m.kr. til íslenskukennslu útlendinga árið 2018*. Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrir- tækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru viðurkenndir fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við viðurkenndan aðila, sem annast kennsluna, fylgja umsókninni. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á rannis.is. Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 5. desember 2017. *Með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjárlögum 2018. Upplýsingar um sjóðinn veitir Jón Svanur Jóhannsson, sími 515 5820, jon.svanur.johannsson@rannis.is H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Íslenskukennsla fyrir útlendinga Umsóknarfrestur 5. desember 2017 www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! MARAÞON NOW OG 11GB Á 3.990 KR.* *á mánuði TYRKLAND Aðild Tyrklands að Evr- ópusambandinu (ESB) er lausn á öllum langvarandi vandamálum þess. Þetta segir Recep Tayyip Erdogan, forseti landsins. Tyrkland sótti um aðild að ESB árið 1987 og hóf samningavið- ræður um inngöngu árið 2005. Þær hafa verið á ís um árabil. Nokkurrar andstöðu gætir í garð aðildar Tyrkja að sambandinu en í síðasta mán- uði sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, að rétt væri að Tyrkir væru áfram utan þess. „Evrópa án Tyrklands mun þurfa að kljást við einangrun, örvæntingu og missætti íbúa sambandsins. Það er ekki Tyrkland sem þarf Evrópu heldur Evrópa sem þarf Tyrkland,“ sagði Erdogan á fundi í Ankara, höfuðborg Tyrklands, í gær. „Í Evrópu er útlendingaandúð að vaxa ásmegin og nýnasistaflokkar svo sterkir að þeir eru þátttakendur í samsteypustjórnum. Sú Evrópa stefnir í átt að glötun,“ sagði Erdog- an. „Evrópa sem myrðir grundvall- argildi sín með sínum eigin höndum mun eiga svarta framtíð.“ Orðsendingar hafa gengið milli yfirvalda í Tyrklandi og ráðamanna ESB á síðustu mánuðum. Tyrkir hafa sakað ríki sambandsins um að styðja við hryðjuverkahópa en vísa þeir þar til minnihlutahóps Kúrda sem vilja koma á fót sjálfstæðu ríki. Evrópa hefur á móti sakað Tyrki um að traðka á mannréttindum íbúa landsins. Nægir í því samhengi að nefna handtökur í kjölfar valda- ránstilraunar síðasta sumar og vilja tyrkneskra stjórnvalda til að inn- leiða dauðarefsingu á nýjan leik. Sem ríki í umsóknarferli nýtur Tyrkland ýmissa greiðslna frá sam- bandinu. Á fundi í Brussel í liðinni viku beindu leiðtogar þjóða sam- bandsins meðal annars þeirri fyrir- spurn til framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins hvort rétt væri að loka á þær greiðslur, eða draga úr þeim að minnsta kosti, meðan ekk- ert miðar í viðræðunum. „Þó leiðtogar Evrópu vilji ekki sjá það þá er Tyrkland, og aðild þess að ESB, lausn á þeim langvarandi vandamálum sem við því blasa,“ sagði Erdogan. Hann mæltist til þess að sambandið hefði „heilbrigða skynsemi“ að leiðarljósi við næstu skref varðandi Tyrkland og sam- skipti við landið. Þrátt fyrir að andað hafi köldu á undanförnum mánuðum hafa Tyrk- land og ESB unnið að sameiginlegu markmiði í málefnum Sýrlands og flóttamanna sem leita á náðir Evr- ópu. Eru margir afhuga því að úti- loka Tyrkland þar sem þeir óttast að við það muni kastast enn frekar í kekki og samvinnan vera fyrir bí. johannoli@frettabladid.is Segir Evrópu þurfa á Tyrklandi að halda Forseti Tyrklands hvetur evrópska ráðamenn til að taka á samskiptavanda lands síns og Evrópusambandsins með heilbrigða skynsemi að leiðarljósi. Uppi eru hugmyndir um að stöðva greiðslur frá Evrópusambandinu til Tyrklands. Orðsendingar hafa gengið á milli yfirvalda í Tyrklandi og ráðamanna ESB á síðustu mánuðum. NORDIC PHOTOS/AFP 2 4 . o K T ó b e R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R10 f R é T T I R ∙ f R é T T A b L A Ð I Ð 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 A -A 5 E 8 1 E 0 A -A 4 A C 1 E 0 A -A 3 7 0 1 E 0 A -A 2 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.