Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 24.10.2017, Blaðsíða 19
Nefstíflur eru úr sögunni hjá Þrymi eftir að hann fór að taka Ginger, Turmeric og Bromelain. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið. Engifer- og túrmerikrætur hafa í árþúsundir verið notaðar í lækningaskyni. Þessar rætur eru náskyldar og eru enn þann dag í dag notaðar bæði í kínverskum og indverskum náttúrulækningum. Bromelain er af öðrum meiði, en það er ensím, unnið úr ananas- plöntunni, sem hefur bæði góð áhrif á meltingu og bólgur og vís- bendingar eru um mun víðtækari heilsufarsleg áhrif. Bætir meltingu og minnkar bólgur „Engifer er afar vinsælt í bæði asískri og indverskri matargerð ásamt því að vera notað í lækn- inga skyni. Það er talið hafa góð áhrif á ógleði, verki og bólgur, er vatnslosandi og jafnar blóðsykur,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsu- markþjálfi hjá Artasan. „Það má neyta engifers á ýmsa vegu en við fáum sjaldnast nóg í matnum þrátt fyrir að það gefi gott bragð. Það má þó bæta það upp með inntöku á því einu og sér. Það er til dæmis gott rifið í vatn eða te, sem nýpress- aður safi eða sem bætiefni,“ segir Hrönn. Að hennar sögn er engifer búið enn fleiri kostum og er talið sérstaklega gott fyrir meltinguna. „Það dregur úr meltingarónotum, örvar framleiðslu munnvatns og galls og hefur jákvæð áhrif á ákveðnar tegundir meltingar- ensíma með því að auka eða bæta flæðið gegnum meltingarveginn.“ Að sögn Hrannar hitar engifer kroppinn innan frá og er því gott gegn kvefi. „Þá bendir ýmislegt til þess að það hafi góð áhrif á vöðvaverki sem skýrist sennilega af bólgueyðandi áhrifum þess.“ Krónískar bólgur Að sögn Hrannar er túrmerik (Curcuma longa) eitt öflugasta andoxunarefnið á markaðnum og er ekkert náttúrulegt efni sem hefur verið jafn mikið rannsakað. „Það er gríðarlega bólgueyðandi en eins og bráðar eða skammtíma bólgur í líkamanum geta verið nauðsynlegar eru langvarandi eða krónískar bólgur að sama skapi mjög slæmar. Krónískar bólgur eru rótin að mörgum lífsstílssjúk- dómum og hafa rannsóknir sýnt að kúrkúmín geti dregið úr líkum á þessum bólgum. Nokkrar rann- sóknir sýna meira að segja fram á að kúrkúmín standist samanburð við sum bólgueyðandi lyf, en er þó án allra aukaverkana. Frekari kostir túrmeriks verða svo ekki tíundaðir hér, enda efni í nýja grein,“ segir Hrönn. Fann mun eftir viku Þrymur Sveins- son hefur notað Ginger, Turmeric & Bromelain um þó nokkurt skeið með ótrúlegum árangri. „Fyrst þegar fjallað var um Ginger, Turmeric & Bromelain í Fréttablaðinu fannst mér samsetningin í bætiefninu vera áhugaverð. Ég las mér betur til á netinu og þar sem þær greinar sem ég fann um efnin gáfu sömu niður- stöðu ákvað ég að kaupa glas til reynslu. Ástæðan er sú að allt frá unga aldri hef ég glímt við vanda- mál í öndunar- færum sem lýsa sér meðal annars í stífluðu nefi. Engin lausn fannst þrátt fyrir heimsóknir til lækna og sérfræðinga sem skoðuðu mig vand- lega. Vandamálið versnaði stöðugt og ég var farinn að nota nefúða allt að fjórum sinnum á dag þegar ég var sem verstur. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vanda- málið horfið. Ég gat dregið andann áreynslulaust, án hjálparefna í fyrsta skipti síðan á unglingsaldri. Ég hef notað Ginger, Turmeric & Bromelain að staðaldri síðan og að mínu mati eru gæði þessa náttúru- lyfs ótvíræð.“ Bromelain kemur úr ananas Bromelain er ensím úr ananas- plöntunni sem brýtur niður prótein og getur því nýst fólki með meltingarvandamál, rétt eins og meltingarensím. „Þá er bromelain notað til að draga úr bólgum en það hefur hjálpað fólki með lið- verki og liðagigt. Vísbendingar eru um að það hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi, vandamál í ennis- og kinnholum, magabólgur eða magasár og niðurgang en það þarfnast þó fleiri rannsókna,“ upp- lýsir Hrönn. Vinnur gegn bólgum og eykur blóðflæði Að sögn Hrannar er erfitt í stuttu máli að telja upp kosti þeirra efna sem Ginger, Turm- eric & Bromelain inniheldur. „Kúrkúmín sem er virka efnið í túrmerik verndar liðina þar sem það eykur náttúrulega framleiðslu Nefstíflur horfnar eftir áratuga leit að lausn Ginger, Turmeric & Bromelain frá Natures Aid er mögnuð blanda byggð á árþúsunda gömlum austurlenskum lækningahefðum. Hún er öflug gegn bólgum, hvort sem í meltingarvegi, liðum eða annars staðar. kortisóns sem hefur bólgueyðandi áhrif. Engifer er blóðþynnandi og eykur blóðflæði. Það dregur úr bólgum, getur verið vatnslosandi, jafnað blóðsykur og minnkað ógleði. Einnig hafa báðar þessar rætur jákvæð áhrif á ónæmis- kerfið. Þriðja efnið í blöndunni er ensímið Bromelain sem er meðal annars græðandi, hefur góð áhrif á meltinguna og virðist geta unnið á ýmsum bólguvandamálum í ennis- og kinnholum.“ Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana Öflugt og á ótrúlegu verði Sore No More er náttúrulegt hita- og kæligel sem er verkjastillandi og bólgueyðandi. Það er öflug meðferð við tímabundnum vöðvaeymslum, bólgum, harðsperrum og þreytu í vöðvum. Það inniheldur einstaka blöndu af virkum plöntukjörnum í gelformi, án alkóhóls og kemískra íblöndunar- og geymsluefna. Árangursrík hita- og kælimeðferð Matthildur Rósenkranz Guðmundsdóttir (Lóló), einkaþjálfari hjá World Class: „Ég nota bæði hita- og kæligelið og mæli með þeim báðum við alla mína viðskiptavini sem eru að glíma við vöðvabólgu, stífa vöðva, slæmar harðsperrur og þráláta verki eins og vefja- og liða gigt, sinabólgur, tennisolnboga og frosna öxl.“ Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaða og verslana. NÁTTÚRULEGT VERKJAGEL FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 4 . o k Tó B e r 2 0 1 7 2 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 A -C 8 7 8 1 E 0 A -C 7 3 C 1 E 0 A -C 6 0 0 1 E 0 A -C 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.